9.4.2008 | 09:48
Bwaaaahh
Þessi leiðinda pest er búin að vera bögga okkur fjölskylduna síðan á föstudag en Þuríður mín Arna er reyndar sú eina sem hefur sloppið sem er gott enda hefur hún ekki gott af því að fara gubba öllu sem hún lætur uppí sinn munn. Hún er farin að borða svo vel, varla búin með hádegismatinn sinn þegar hún spyr hvað eigi að vera í kvöldmat ehe. Yndislegust.
Hún er ágætlega hress, reyndar fljót að þreytast og fer alltaf snemma að sofa á kvöldin en það skemmtilegast finnst mér hvað hún er farin að sýna miklar tilfinningar. Hún er orðin rosaleg frekja, ef hún fær ekki eitthvað fer hún í fílu, gargar eða hleypur inní herbergi og skellir á eftir sér. Jamm þetta finnst mér gaman að sjá því þetta er ekki vaninn að sjá hjá henni.
Mömmuhelgin okkar Oddnýjar Erlu minnar hefst seinni partinn á morgun og líkur um miðjan dag á sunnudag, bara gaman!! Jú mamma og Oddný systir verða með í för, sem sagt helgi hjá mér með þremur Oddnýjum ehe. Við mæðgurnar ALLAR erum að deyja úr spenning og hlökkum mikið til.
Systurnar byrjuðu á sundnámskeiði í gær sem þær fíla í botn, 3x í viku, 45 mín í senn. Þetta er fljótt að rifjast upp fyrir þeim, ég má ekki hjálpa Oddnýju með neitt því hún segist kunna þetta allt saman sem er næstum því rétt hjá henni reyndar. Þetta er ótrúlega góð hreyfing fyrir Þuríði mína sem kafar einsog selur um alla laugina og verður orðin eldklár fyrir skólann næsta haust. Theodór minn var reyndar frekar fúll þegar hann sá að hann fengi ekki að koma með svo hann sagðist bara ætla í pottinn með mömmu sinni á meðan ehe well það verður ekki langt í það að hann fái að koma með.
Töffarinn minn hann Theodór Ingi úti á palli í sólbaði um helgina.
Oddný Erla "sjónræningi" (er alltaf í öskdagsfötunum sínum ehe) að leika sér í Wii tölvunni okkar sem þær "Survivor" stelpur gáfu okkur fyrir páska. Þvílík önnur eins snilld er þetta tölva, ótrúlega góð einsog fyrir Þuríði mína með fínhreyfingarnar að gera sérstaklega þegar það kemur að boxinu einsog þið sjáið Oddnýju mína gera en hún er að boxa við annan mann í tölvunni. Þetta er hrikalega sniðugt og skemmtilegt.
Þuríður Arna verðandi kokkur að hjálpa pabba sínum að grilla um helgina(fengum fullt af gestum sem skelltu kjöti á grillið), einsog þið sjáið þá hangir taska á henni en hana tekur hún með sér nánast hvert sem er því hún er alltaf á leiðinni í skólann að læra. Finnur sér alltaf til nesti (kex og epli) setur í töskuna og svo dröslar hún með þetta útum allt.
Hafi það ótrúlega gott, ég er allavega ákveðin í því að njóta helgarinnar í botn, löööööng helgi framundan og skemmtileg.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Njóttu helgarinnar. Gaman að sjá myndirnar af þeim
Ragnheiður , 9.4.2008 kl. 09:50
Frábært Hafið það sem allra best kæra fjölskylda, njótið lífsins í botn, hvar og hvenær sem ykkur best hentar
Jóhanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 10:02
Ohhh - yndislegar myndir :) Njótið helgarinnar í botn... bið að heilsa Dísinni ;) KNÚÚÚÚS
Elsa Nielsen, 9.4.2008 kl. 10:27
Gubban gengur yfir, það besta er að Þuríður skuli sleppa. Frábært hvað hún er að vakna til lífsins. Guð blessi ykkur Fríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 9.4.2008 kl. 11:01
Innlitskvitt
Kveðja, Lovísa.
Lovísa , 9.4.2008 kl. 11:11
Ljúft að lesa - njótið þið ykkar Oddnýjarnar þrjár og þú Gaman að myndunum, takk fyrir þær. Bestu kveðjur til mömmu þinnar Áslaug mín. XXX Stella A.
Stella Aðalsteinsd. (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 11:25
Það er frábært að skottan sleppur við æluna,enda ekki gott fyrir hana.En ég segi nú bara njótið helgarinnar sem framundan er og slakið á eins og þið getið.Ég veit að þetta verður skemmtileg helgi.Bið að heilsa hetjunni minni og sendi ykkur knús
Björk töffari (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 11:48
Frábært ad hetjan sé farin ad FREKJAST svona á thad ad vera.
Ædislegar myndir og eigid svo bara ÆDISLEGA helgi skvísurnar
María Guðmundsdóttir, 9.4.2008 kl. 12:10
Frábært hvað er bjart hjá ykkur núna. Vona að það verði þannig áfram. Altaf.
Góða helgi til ykkar.
Hulla Dan, 9.4.2008 kl. 12:11
Skemmtileg færsla og bara bestast að Þuríður er bæði að frekjast og ekki að gubba. Sterk eins og sönn hetja....þú ert bara fallegust og gaman að sjá myndir af þér svona glöð og sterk. Haltu svona áfram og guð gefi ykkur góða dag með gleði í hjarta. Njótið helgarinar.
Tendra ljósin fyrir ykkur
með kærleik 4 barna mamman
4 barna mamman (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 12:39
Flott að Þuríður sé farin að láta til sín taka. Vona að mömmu-frænku-ömmu helgin verði fín.
Helga Magnúsdóttir, 9.4.2008 kl. 12:46
Greinilegt að vel er skammtað á ykkar bæ. Og frábært að litla manneskjan er með besta móti.
Sendi ykkur öllum kærar kveðjur og óskir um að þið njótið mömmuhelgarinnar og hinir sem ekki eru með, ekki síður sinnar helgar.
frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 13:03
Snilld að sjá að dýrin (börnin mín) mín eru ekki þau einu sem vilja vera í búningum hvert sem þau fara. Dóttir mín fer í leikskólann eins og ofskreytt jólatré á hverjum degi og það eina sem gleður elskulega móður hennar er að hún amk sýnir ótúlegt "sjálfstæði" í klæðaburði :)
Knús og kossar frá Survivor
Inger Ericson (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 15:26
Frábært að heyra og sjá gleðina og birtuna hjá ykkur öllum
Ótrúlega flottir krakkar sem þú átt!
Njóttu helgarinnar!
Bergljót Hreinsdóttir, 9.4.2008 kl. 17:55
Love á þig sæta mín... hlakka til að heyra í þér þegar að þú kemur heim aftur... vá hað ég væri til í að vera að fara með ykkur út... vávává....
en við stefnum á haustið sæta mín LONDON eða jafnvel USA var þaggi ????
Þórunn Eva , 9.4.2008 kl. 19:44
Eigið frábæra helgi þið dömurnar,sem og hin að sjálfsögðu.Frábær börn.Kveðja
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 21:55
Guðrún Jóhannesdóttir, 9.4.2008 kl. 22:51
Híhí... bara flottust með töskuna :) Æ þau eru svo mikil krútt! Gangi ykkur vel öll sömul.
kveðja Guðrún
Guðrún (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 23:37
Skemmtið ykkur vel, þið eigið það svo innilega skilið. Gott að heyra að litla daman er með hressasta móti og vonandi sleppur hún við þessa flensu !
En hvar fást svona tölvur? Hef aldrei séð þetta eða heyrt neitt um þessa tegund tölvu og vissi ekki að þetta væri til. Virkar mjög sniðugt!
Emma Vilhjálmsdóttir, 10.4.2008 kl. 00:22
Skemmtilegur aldur Man eftir eldri dóttur minni þegar hún var að fara að byrja í skóla var hún alltaf að æfa sig með töskunni, og vildi hún helst sofa með hana njótið helgarinnar
Kristberg Snjólfsson, 10.4.2008 kl. 08:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.