14.4.2008 | 10:56
Beta biður að heilsa
Við mæðgur erum mættar á svæðið aftur en við skruppum yfir helgina til London og gistum hjá Dísinni vinkonu minni og höfðum það ofsalega notanlegt. Oddný Erla mín skemmti sér rosalega vel, fékk smá dekur, skruppum í Hamleys þar sem hún fékk að velja afmælisgjöfina sína frá systkinum sínum og til Þuríðar frá þeim sem henni fannst ofsalega gaman, kíktum í Disney búðina þar sem hún fékk að koma við allt prinsessudótið og lét sig dreyma. Vávh þetta fannst henni æðislega gaman og að sjálfsögðu fékk hún að velja pakka handa Þuríði og Theodóri þegar við komum heim, keyptum nokkrar flíkur fyrir sumarið og ekki fannst henni leiðinlegt að fá að máta. Þess á milli knúsuðumst við og höfðum það ofsalega gott. Auðvidað var kíkt í te til Betu en Kalli var ekki heima þannig við hittum hann ekki, var víst á skitteríi. Það var sem sagt æðislega gaman hjá okkur.
Næst á dagskrá er að safna vildarpunktum fyrir mig og hetjuna mína sem þarf líka á þessu að halda (en ég átti heilan helling af vildarpunktum sem ég nýtti í þessa ferð fyrir mig og perluna mína), ekki bara fá mömmutíma á spítalaheimsóknum, sjúkraþjálfun eða veikindum hérna heima.
Ég var einmitt að koma úr einni sjúkraþjálfunarheimsókninni með hetjunni minni en hún er á fullu í greiningum þar fyrir næst komandi haust og það gengur svona lala. Bara einsog við vissum þá eru grófhreifingar hennar á við 2-2 og hálfs árs börn, þannig það kallar bara fram meiri þjálfun fyrir hana, hittum sálfræðing seinna í vikunni, talmeinafræðing í næstu viku og svona mætti lengi telja. Hún stendur sig samt ótrúlega vel.
Á morgun er svo stóri dagurinn en þá er svæfing og myndatökur og mikil magapína fyrir foreldrana, fáum niðurstöður úr því síðasta lagi á miðvikudag og þá verður áframhaldið ákveðið með krabbameinsmeðferðina og vonandi fær hún að byrja aftur í henni í þessari viku. krossa alla putta og tær.
Læt fylgja nokkara myndir úr ferðinni okkar Oddnýjar minnar, njótið:
Mætt í flugvélina og farin að hlusta á Gosa
Perlan mín að fara sofa, fannst ofsalega sniðugt að vera með þetta fyrir augunum.
Erum á leiðinni í bæinn, kunni ekki alveg að snúa myndinni. dóóhh!!
Á leiðinni heim og Oddný perlan mín svakalega spennt að hitta systkin sín og auðvidað pabba sinn líka. Þegar við hittum þau á flugvellinum þá var það fyrsta sem Þuríður mín sagði við hana "þú ert svo fín og sæt" eheh. Þuríður hefur heldur aldrei verið jafn ánægð að hitta systir sína, saknaði hennar greinilega mjööööög mikið.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sætust
Ragnheiður , 14.4.2008 kl. 11:00
Þórhildur Daðadóttir, 14.4.2008 kl. 12:06
Við njótum þess svo sannarlega að sjá skvísuna.Góðar óskir með morgundaginn sem og alltaf.Bestu kveðjur
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 13:14
Bara æðislegt :)
Kveðja frá einni ókunnugri.
Binna (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 13:26
Takk fyrir myndirnar af fallegu stelpunni. Bið Guð um að gefa ykkur styrk á morgun.
Kristín (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 13:37
Frábært hjá ykkur að skreppa til Betu. Þetta hefur aldeilis verið góð helgi sem þið hafið svo sannarlega átt inni. Augnhlífarnar eru bara hrein snilld. Krossa alla putta fyrir morgundaginn. Guð veri með ykkur Fríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 14.4.2008 kl. 14:13
Þetta hefur verið yndislegt :) Er ánægð fyrir ykkar hönd.
Gangi ykkur vel í vikunni.
Hanna, 14.4.2008 kl. 14:53
Frábært hjá ykkur að fara til London Hugsa til ykkar áfram
Jóhanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 15:00
Ædislegt hvad ferdin var ánægjuleg Gangi ykkur súpervel á morgun,krossa allt sem krossast getur
María Guðmundsdóttir, 14.4.2008 kl. 15:03
Bara
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 14.4.2008 kl. 15:27
Sorrý-eitthvað var mín að flýta sér
Það átti að standa - bara flottust og til lukku með helgina góðu
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 14.4.2008 kl. 15:29
Frábært að þið áttuð svona fína helgi saman Gott að Oddný fær að njóta sín með þér og þú með henni.
Bið fyrir styrk og blessun ykkur til handa fyrir morgundaginn
Knús á mömmu þína og hlý kveðja frá Sunnevu til ykkar allra
Díana (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 15:35
knús á ykkur sætu mæðgur....
Þórunn Eva , 14.4.2008 kl. 15:55
En yndislegt hvað þið mæðgurnar áttuð góðar stundir saman í dekri út af fyrir ykkur. Það er ómetanlegt að geta átt svona tíma með börnunum sínum. Þið eruð alltaf í bænunum okkar elsku vinir. Vonandi sé ég ykkur fljótlega. Knús og kossar. Kristín Amelía.
Kristín Amelía (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 15:58
Gaman að heyra hvað Londonferðin gekk. Það er svo mikils virði að eiga gæðatíma með börnunum sínum. Gangi ykkur vel á morgun.
Helga Magnúsdóttir, 14.4.2008 kl. 16:21
Dásamlegt að allt var svona gaman hjá ykkur, enda örugglega fáir sem kunna að njóta á þann hátt sem þú gerir, því miður.
Sendi ykkur kærleiks og styrktarkveðjur og bið um kraftaverk fyrir ykkur öll á morgun sem og auðvitað alla daga..
með kærri kveðju
frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 21:45
Hugsum til ykkar! Gott að þið áttuð góða helgi saman;)
Katrín Ösp og Ólöf Alda (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 09:41
Fæ bara sting í hjartað
Bestu kveðjur
Steinþór Ásgeirsson, 15.4.2008 kl. 09:52
Frábært að þið skuluð hafa átt góða helgi saman
Guðborg Eyjólfsdóttir, 15.4.2008 kl. 11:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.