15.4.2008 | 19:21
Þetta er gott, þetta er gaman.
Ég ætlaði að skrifa svakalega færslu um myndatökurnar hennar Þuríðar minnar og síðustu mánuði og ár en ég finn að öll orkan mín er að sogast úr mér þannig það eru engir kraftar til þess svo er ég líka að lognast útaf hérna fyrir framan tölvuna. Samt sofnaði ég með börnunum mínum kl hálf níu í gærkveldi og svaf í alla nótt sem gerist svona sirka 1-3x á ári, orkuleysið sem sagt að mæta á svæðið en það er bara gott og gaman vegna þess við fengum svo svakalega góðar fréttir í dag.
Jebbs doktor Halldóra hringdi í mig rúmlega þrjú í dag og tilkynnti mér þær frábæru fréttir að æxlið hafði minnkað og þá meina ég ekkert um einn millimeter eða svo, tjah ekki alveg bara svoooo miklu betra. Í síðustu myndatökum voru svokölluðu blöðrurnar inní æxlinu hjá Þuríði minni (sem hafa verið að stækka og engin veit hvað það hefur merkt) 2,2cm x 2,3cm en í dag voru þær 1,6cm x 1,4 eða mig minnir að doktorinn hafi sagt mér þessar tölur, allavega mjög nálægt þeim. Þvílíkt og annað eins kraftaverk hefur sjaldan séð. Þvílíkur draumur í dós. Reyndar hefði það komið okkur á óvart að það væri einhver stækkun þannig við bjuggumst bara við því að það héldist eins en NEI, krabbalyfin hennar hafa gert sitt. En þessi lyf sem hún var á annað hvort gera þau kraftaverk eða bara ekki neitt og þau greinilega eru að vinna sína vinnu. Þuríður mín fær samt ekki að byrja aftur á þeim alveg strax, læknarnir vilja að hún fái að halda áfram að safna kröftum fyrir næsta stríð og þá í sumar myndi hún byrja aftur í meðferð eða það eru svona grófar niðurstöður en við erum eftir að funda almennilega með öllum teaminum og vitum meira þá. Æxlið sjálft hefur líka minnkað eða skuggamyndunin kringum það er orðið miklu minni en síðast en ég veit ekki alveg hvursu minna. Mér er líka alveg sama, Þuríður mín er bara að sanna það að læknavísindin vita ekki allt þó við viljum það oftast en þá viljum við það ekki í þetta sinn sem hún er bara að sanna fyrir okkur.
Þessi færsla átti nú ekki að vera svona löng þó löng sé ekki (þannig séð) enda gjörsamlega búin á því einsog ég sagði en það er bara spurning hvernig við fjölskyldan eigum að halda uppá þessar fréttir? Hugmyndir? Skella sér til London mhúhahaha!! Djók!! Kanski við förum og fáum okkur eitthvað gott í gogginn á morgun sem sagt útað borða, hmmmm!!
Allavega bestu fréttir sem við höfum fengið síðustu mánuði.
Þetta er gott, þetta er gaman.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Innilega til hamingju með frábærar niðurstöður...
Ragnheiður , 15.4.2008 kl. 19:25
Þetta eru bar þær bestu fréttir sem ég hef fengið mjög lengi. Innilega til hamingju með þennan gríðarlega áfanga. Þarna hefur allt, já ég meina allt lagst á eitt það hefur virkað. Guð blessi þennan frá bæra dag. Sofið vel og mikið Fríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 15.4.2008 kl. 19:33
Þetta er æðislegar fréttir,til hamingju með það.Það er engin spurning að þessi litla stúlka er algert KRAFTAVERKA barn..Stórt knús á línuna.
Agnes Ólöf Thorarensen, 15.4.2008 kl. 19:47
Frábærar fréttir, til hamingju með það. Mikið er gaman að lesa svona jákvæðan og góðan pistil um Þuríði litlu. Enn og aftur til lukku.
Helga Magnúsdóttir, 15.4.2008 kl. 20:08
Elskuleg fjölskylda,til hamingju með þennann áfanga.Hún er algjört Furðu og Kraftaverk þessi hetja.Ekki má gleyma ykkur.Gleðikveðja
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 20:13
Innilega til hamingju með þessar frábæru fréttir , hún er algjör hetja þessi skvísa og auðvitað þið líka.
Voandi gerið þið eitthvað skemmtilegt til að halda upp á þessar frábærur fréttir.
En og aftur ; Frábærar fréttir,
kveðja
Helga Hrönn
Helga , 15.4.2008 kl. 20:21
Æðislegar fréttir Til hamingju með þetta.
Þið eruð frábær og standið ykkur hrikalega vel.
Vona innilega að þetta haldi bara áfram á þessari braut.
Góða nótt, Og óskir um hamingju til ykkar.
Kveðja frá dk
Hulla Dan, 15.4.2008 kl. 20:23
Elskulega fjölskylda - innilega til hamingju - kraftaverkin gerast enn - Guð veri með ykkur öllum, alla daga - það er greinilega spennufall hjá þér og ekki skrítið. Gangi ykkur sem best!
Ása (ókunnug) (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 20:24
Yndislegt og bros mitt (sem ekki sést) er eins og Visa segir Priceless. Mikið eru þetta yndisleg tíðindi fyrir ykkur kæra fjölskylda og mitt litla hjarta tók auka slag við að lesa þessi gleðitíðindi.
fagnið "your style" og njótið alls sem þið eigið í hvort öðru :)
Inger
Inger E (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 20:25
Þetta eru frábærar fréttir. Vona að krabbalyfin haldi áfram að hjálpa Þuríði Ernu hetjustelpu.
Brynja Hrönn
Brynja Hrönn (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 20:31
Æðislegt að lesa þessar GÓÐU fréttir :) hún er náttúrulega ein mesta hetja sem ég veit um.
Gangi ykkur áfram vel og æðislegt að sjá hvað þið eruð jákvæð :)
Kveðja
Lilja í Hafnarfirði
Lilja (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 20:31
Frábærar fréttir - samgleðis ykkur innilega
Til hamingju með þetta og megi allar góðar vættir halda í höndina á ykkur í baráttunni sem er framundan.
Dísa Dóra, 15.4.2008 kl. 20:40
þetta er bara frábært og til hamingju með þessar niðurstöður
Ellen (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 20:52
Til hamingju með þessar góðu fréttir Þetta er gott, þetta er gaman 100% góðar fréttir
Sessa (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 20:53
Ég er ein ókunnug sem fylgist reglulega með og vill óska ykkur til hamingju með þessar æðislegu fréttir. Hún Þuríður er sko að sanna það hversu sterk hún er. ótrúlegt hvað máttur hugans er sterkur. Haldiði áfram að vera svona frábær:)
ókunnug (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 21:01
æðislegar fréttir, innilegar hamingjuóskir með þær
Inga Dóra, 15.4.2008 kl. 21:04
JIBBÝ!!!!
Elva - ókunnug (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 21:05
Frábært
hm (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 21:12
Til hamingju með þessar frábæru fréttir. Hún Þuríður Arna er algjört kraftaverk. Þetta er bara ææðislegt. Stella A.
Stella A. (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 21:28
Frábærar fréttir. Stórt skref í erfiðri baráttu sem hetjan mun vinna
Kristberg Snjólfsson, 15.4.2008 kl. 21:30
Til hamingju með glæsilegar fréttir!
kv... Þórir - Minneapolis
Þórir (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 21:39
Frábærar fréttir
Dagrún (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 21:41
Yndislegar fréttir. Er búin að bíða í allan dag eftir þessu góðu fréttum og eins gott að þið farið að fagna á morgun með góðum mat nammi gott.
Knús frá okkur hérna í DK
kv. Brynja og co.
Brynja (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 21:44
Glæsilegt til hamingju elsku fjölskilda.
Eyrún Gísladóttir, 15.4.2008 kl. 21:50
Vá en frábærar fréttir og þvílíkt kraftaverk sem dóttir þín er. Hjartanlega til hamingju með þessar góðu fréttir.
Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 15.4.2008 kl. 21:52
Kæra fjölskylda!
Já, til hamingju...þið eigið það sko skilið að skjótast til London öll fjölskyldan eða í tívolí...við söfnum og þið skjótist.heheh
enn og aftur til hamingju...
kv.. Andrea
Andrea (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 21:55
Gleðitár laumuðust í augun mín fyrir ykkar hönd... til hamingju!!!! Ég er handviss að hún sigrar þennan krabba labba!!!
Gunnhildur (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 22:10
LOVE á ykkur öll frá okkur öllum í njarðvíkunum... js er farin að spyrja þegar að hann kemur í TBR hvar er Áslaug heheheheheh
vantar eitthvað í gogginn. heheheheh
vonandi sjáumst við sem fyrst sæta mín... endalaus hamaingja... maður bara tárast hérna megin...
LOVE
Þórunn Eva , 15.4.2008 kl. 22:12
Elsku Þuríður mín...ég er svo glöð að lesa þessa færslu hjá mömmslunni þinni og óska ykkur innilega til hamingju með þessar frábæru fréttir.Guð er góður og ég veit að þú hetjan mín vinnur þessa baráttu...knús til ykkar
Björk töffari (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 22:21
Vá hvað það var gaman að lesa þetta blogg hjá þér. Innilega til hamingju öll sömul, þetta er æðislegt. Kveiki á kerti til að viðhalda kraftaverkinu. Enn og aftur til lukku með bestu fréttirnar.
Luv Magga mús
Magga (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 22:25
Yndislegt, frábærar fréttir og mikið samgleðst ég ykkur Hlakka ofboðslega til að fylgjast með áfram og ekki síst þegar daman byrjar í skólanum í haust Njótið lífsins öll sömul
Jóhanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 22:35
Þetta voru æðislegar fréttir. Innilega til hamingju, kæra fjölskylda!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 15.4.2008 kl. 22:53
Innilega til hamingju með þetta, frábærar fréttir!...
Kveðja að austan
Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 15.4.2008 kl. 23:01
til hamingju með þessar fréttir, mikið er dásamlegt að vita að þið hafið fengið svona góðar fréttir í dag.
Katrín (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 23:05
Til hamingju!!! Sannar að kraftaverk gerast og litla dóttir ykkar er greinilega mikið kraftaverk! Til hamingju, elsku fjölskylda! Þið eruð hetjur!
Líðan hennar undanfarið, þ.e. bætt líðan, segir okkur líka að æxlið hlýtur að hafa minnkað og ég bið þess að litla dóttir ykkar losni við þennan meinvald, alveg.
Ég bið fyrir ykkur og vona að allt haldi áfram á þessari leið.
kv. Emma
Emma Vilhjálmsdóttir, 15.4.2008 kl. 23:52
Til hamingju með þessar yndislegur fréttir, og takk fyrir að deila þeim með okkur, lesendum þínum. ég fæ tár í augun yfir þessum góðu fréttum eins yfir því sem Þuríður sagði við Oddnýju á flugvellinum. Þær eru svo miklar dúllur þessar dætur þínar. Mikið eru þetta góðar fréttir, virkilega vermir mann að innan sem utan.
Áfram Þuríður
Lísumamma (ókunnug) (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 00:51
Til hamingju með þessar niðurstöður
Guðborg Eyjólfsdóttir, 16.4.2008 kl. 06:39
Má nú til með að kvitta hingað inn, les þessa síðu á hverjum einasta degi og finnst þið öll alveg yndisleg það er greinilegt að Guð og allar hans stjörnur eru í kring um ykkur þið eruð í bænum mínum . Ætla að láta fylgja hingað inn það sem kom upp á dagatalinu mínu í dag. Staldraðu við stutta stundog hallaðu þér aftur á bak ístólnum, lokaðu augunum oghugsaðu um einhvern sem þérþykir vænt um. Elskaðu hann íbæn þinni og biddu Guð um aðblessa hann og varðveita.
Jóhanna (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 06:48
Frábærar fréttir vááá fékk gæsahúð og tár í augun!!
Haldið áfram að vera svona ótrúlega dugleg og sterk!
KV. Sonja Sif
Sonja Sif (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 07:52
Innilega til hamingju og njótið hverrar einustu sekúndu. Þetta kallar á góða steik og djúsí eftirrétt í það minnsta.
Kveðja frá einni ókunnugri sem fylgist með og biður fyrir ykkur.
Ingunn (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 08:33
Frábært. Til hamingju með stórkostlegar fréttir. Þuríður er greinilega kraftaverkakona.
Álfheiður (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 08:43
Þetta eru bestu fréttir sem hægt er að hugsa sér. Ég samgleðst ykkur innilega.
Þórunn (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 09:11
Innilega til hamingju með þessar frábæru fréttir af Þuríði Örnu
Fylgist með baráttu ykkar daglega en hef aldrei kvittað áður,svolítið gaman af því að ég sá ykkur uppá Barnaspítala í gærmorgunn um níuleytið og ætlaði að fara að heilsa ykkur,manni finnst maður þekkja ykkur eftir að fylgjast daglega með blogginu..En frábærar fréttir,ylja manni vel um hjartarætur.....Njótið dagsins öll sömul
Guð geymi ykkur
Bjarghildur Káradóttir (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 10:08
Já nú runnu tárin en það er gott að gráta gleðitárum. Yndislegt og bara yndislegast! Ég veit líka í hjarta mínu að þú litla hetja átt eftir að verða stór, endalaus falleg með augun þín og fallega hárið þitt og þú munt kenna heiminum allt það góða í framtíðinni. Elsku fjölskylda haldið áfram að vera þið, þannig eruð þið langbest og mundið þið standið ykkur vel og takk fyrir að lofa okkur að fylgjast með
Bænir mínar verða bænir fyrir þig Þuríður, endalaust!
með kærleik og gleði í hjarta
4 barna mamman
4 barna mamman (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 10:18
Til lukku með þessar frábæru fréttir!
Gangi ykkur áfram vel, þið eruð ávallt í bænum okkar. Baráttukveðjur Guðrún,Jói og dætur
Guðrún Bergmann (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 10:54
Elskurnar mína
Já þetta eru æðislegar fréttir og sína að húN er allgjört kraftaverk
kveðja
ása (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 11:10
ÆÐI, ÆÐI, ÆÐI !!!!!
Þórhildur Daðadóttir, 16.4.2008 kl. 11:39
Elsku fjölskylda. Ég gleðst innilega með ykkur:) Les bloggið þitt mjög reglulega og þú/þið hafið kennt mér rosalega mikið um að meta lífið og ekki vera að væla yfir einhverju sem hægt er að leysa. Innilega til hamingju með þetta allt saman. Knús til ykkar. Kær kveðja Þórunn
Þórunn(ókunnug) (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 11:51
vá ég á ekki orð, bara tár og bros. Hjartanlega til hamingju með þessar frábæru fréttir til ykkar elskurnar
Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 11:54
Æðislegar fréttir :) Sjáumst vonandi sem fyrst. Kv. Oddný
Oddný (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 12:45
Kæra fjölskylda,
innilega til hamingju með þessar fréttir. Hún er kraftaverka-tjelling hún Þuríður Arna Orkukveðjur sendum við ykkur. Þið eruð áfram í bænum mínum.
Sigrún (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 13:03
Kæra fjölskylda.
Samgleðst ykkur innilega.
Kær kveðja Þorgerður.
Þorgerður H. Halldórsdórrir (þhh) (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 13:54
Yndislegt að lesa þessar fréttir hjá ykkur í dag Hún er eitt kraftarverk þessi stúlka, til lukku með daginn elskurnar og njótið lífsins
Guðrún Hafsteinsdóttir (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 14:18
Mikið samgleðst ég ykkur öllum ,en einkum litlu hetjunni, sem er búin að berjast mikið og á þetta svo skilið. Góðar fréttir og góður dagur. Kveðja, Helga (Ókunnug).
Helga Þorkelsdóttir (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 14:31
TIL HAMINGJU TIL HAMINGJU TIL HAMINGJU
María Guðmundsdóttir, 16.4.2008 kl. 15:11
Yndislegt!
Innilega til hamingju yndislega fjölskylda. Þetta eru frábærar fréttir! Guð veri með ykkur!
Valgerður
Valgerður (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 16:06
Yndislegt að heyra. TIL HAMINGJU - TIL HAMINGJU. Höldum áfram að biðja um hjálp fyrir hana Þuríði og þá tekst þetta. Kveðja að vestan.
Halla (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 16:07
Til hamingju med tessar frabaeru frettir
Eirika (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 16:28
Frábærar fréttir- ég samgleðst ykkur af öllu hjarta.
Dísaskvísa
Dísaskvísa (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 16:38
Vildi bara skrífa nokkur orð kíki oft inn á síðuna ykkar til að fylgjast með hetjunni en hef aldrei kvíttað fyrir mig ........ en mikið er ég glöð fyrir ykkar hönd, hún er algjört kraftaverkar barn, ég brosi út af eyrum þegar ég las bloggið þitt í dag..... haltu áfram að vera svona dugleg Þuríður sendi ykkur bestu kveðjur héðan frá Noregi Silja (ókunn)
silja sigurðardóttir (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 16:58
lega til hamingju öll sömul.
M, 16.4.2008 kl. 17:20
Gangi ykkur áfram vel!! Knúúús
Súsanna (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 18:07
Elsku besta fjölskylda innilega til hamingju með þessar niðurstöður sem eru BARA æðislegar. Ég hef sagt það áður og segi það aftur að ég held alltaf að hún Þuríður Arna muni sigra þennan sjúkdóm.
ókunnug frá Eyrarbakka (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 18:08
Húrra,húrra,húrra
Þetta er nátturlega algert kraftaverk og ég sendi ykkur mínar stærstu og bestu hamingjuóskir.
með kærri kveðju frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 18:20
Frábærar fréttir.
Gangi ykkur vel
KVeðja Benný
Benný (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 18:29
Innilega til hamingju með þessu góðu fréttir:) En ég er viss um að þetta er bara byrjunin á fullkomnum bata!!
Ásdís Ingimarsdóttir (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 19:42
Frábært
Svanhildur Karlsdóttir, 16.4.2008 kl. 20:04
Til hamingju með frábærar fréttir
°Hanna Fríða (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 20:12
Dásamlegt Til hamingju með fallega kraftaverkakrúttið
Knús Helga Björg Óskars mamma
Helga Björg Dagbjartsdóttir (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 20:54
Innilegustu hamingjuóskir með þessar dásamlegu fréttir!! Guð blessi ykkur og gefi henni Þuríði áframhaldandi bata!!
Ylfa Mist Helgadóttir, 16.4.2008 kl. 20:57
Frábærar fréttir :) áfram svona!
Marín, ókunnug (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 21:31
TIL HAMINGJU með þessar fréttir þetta er bara bara það sem koma skal við frænkurnar gefum okkur ekki og höldum okkar striki.
Kveðja Birgitta
Birgitta (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 21:33
Bara frááábææært. Þetta er allt að koma. Til hamingju Þuríður og fjölskylda.
Stokkseyringur (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 21:39
Yndislegt bara yndislegt. Til hamingju þið öllsömul. Gangið glöð út í vorið.
knús
Gunnag (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 22:31
YNDISLEGAST!!! Frábærar fréttir - er ekki frá því að það hafi bara runnið gleðitár Njótið!!! KNÚÚÚÚÚS
Elsa Nielsen, 16.4.2008 kl. 22:35
Æðislegar fréttir. Til hamingju öllsömul.
Kristín (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 22:36
Eftir þessum gleðitárum hef ég beðið lengi. Yndislegt, til hamingju, kæra fjölskylda. Kærleiks og áframhaldandi batakveðjur. Sólveig.
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 23:12
Já, þetta er gott og gaman, yndislegar fréttir elsku fjölskylda
KVeðja,
Hanna
Hanna G Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 23:13
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 16.4.2008 kl. 23:30
en dásamlegt að lesa svona frábærar fréttir rétt fyrir svefnin!
E.R Gunnlaugs, 17.4.2008 kl. 00:00
Váááá... ég er eins og margir aðrir, hef lesið þessa síðu í svolítinn tíma án þess að kvitta en nú er ekki annað hægt en að skilja eftir nokkur orð því að þetta eru bara yndislegar fréttir og vona ég og bið að krabbalyfin haldi áfram að virka svona vel (þegar hún fær að byrja á þeim aftur) á GULLMOLANN.
Kærar kveðjur úr vorrigningunni í DK, Begga
Begga Kn. (ókunnug í DK) (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 06:47
Vá innilega til hamingju með æðislegar niðurstöður! Þetta er það sem koma skal, endalausar góðar fréttir
Bestu kveðjur úr Hvalfjarðarsveit
Ingibjörg(Skarði)
Ingibjörg Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 07:30
Kjartan Pálmarsson, 17.4.2008 kl. 09:25
Frábært að heyra með þessar niðurstöður. Til hamingju. Dóttir ykkar er algjör hetja
kv. Bryndís (ókunn)
Bryndís Guðmundsdóttir, 17.4.2008 kl. 09:49
Kraftaverkið:) já hún sannar það sko fyrir okkur enn og aftur þessi elska að kraftaverkin gerast.. kossar og knús
Bergrún Ósk Ólafsdóttir, 17.4.2008 kl. 10:13
Elsku Áslaug og fjölskylda og að sjálfsögðu heltjan sjálf Þúríður Arna.
Innilega til hamingju, frábærar fréttir. Kærleikur, samheldni og bænir færa vissulega fjöll!
Stórt knus og kram frá mér og mínum til ykkar allra.
Anna Lind (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 11:45
Yndislegar fréttir af Kraftaverka stelpunni - Guð veri með ykkur
Kristbjörg ókunnug (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 11:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.