Leita í fréttum mbl.is

Nokkrar myndir

100_3161
Hetjan mín að blása 6 ára kertið sitt, ótrúlega stollt að vera næstum því orðin 6 ára.

P5010510
Perlan mín að blása á Hello kitty kökuna sína

P5030559
Síðasti dagur sundnámskeiðisins var í morgun þannig það var sýning fyrir ömmur og afa,  þarna er Oddný Erla mín aðeins að hvíla sig eftir nokkur sundtök.  Hún sýndi nú ekki sínar bestu hliðar í morgun, frekar feimin en næsta námskeið byrjar í næstu viku og þá verður sko tekið enn meira á því.  Bara gaman!!

P5030564
Þuríður Arna var mjög dugleg að synda og gerði næstum því allt sem sundkennarinn sagði henni að gera, bara gaman!!  Hrikalega gaman að fylgjast með þeim.  Maður sér samt alveg að hún á erfitt með að gera margar hreyfingar með hægri hluta líkamans vegna lömuninnar en þetta kemur allt með æfingum enda ætlar Þuríðar sér allt saman.

Einsog oft áður ætlaði ég að setja inn fleiri myndir en það er komin stíflun í þetta myndakerfi einsog það gerist ansi oft, grrrrrr!!  Þannig þá verð ég bara að láta þetta duga í bili, annars voru stelpurnar mínar að fara uppá Skaga en litli Teddilíus heima að sjálfsögðu og við Skari vitum ekkert hvað við eigum að gera af okkur ehehe.  Reyndar ætlum við að kíkja í bíó í kvöld en þá mætir mútta á svæðið og hugsar um drenginn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Þær eru yndislegar báðar tvær. Vonandi heilsast Teddilíusi betur, njótið helgarinnar

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 3.5.2008 kl. 11:26

2 identicon

Til hamingju með afmælisbörnin þín.  Mikið er gott að sjá hve vel gengur með skvísuna ykkar þessar vikurnar.  Maður sér mikinn mun á líðan hennar bara á myndunum sem þú setur á síðuna.  Það er kominn glampi í augun á henni.

Takk fyrir hlý orð á síðuna okkar.  Öfundsýki fólks í garð foreldra langveikra barna.  Þetta hljómar ekki beint spennandi á blaði en er greinilega ótrúlega algengt að fólk lendi í.

Við látum svona ekki á okkur fá en manni þykir þetta samt sárt og leiðinlegt að heyra frá svona fólki.  Í þetta skiptið voru það vinnufélagar mínir sem létu svona og siðan er sama fólkið að spyrja hvernig gangi?  Ullum á þetta lið og höldum okkar striki.  Þið standið ykkur ótrúlega vel í ykkar baráttu og gerið greinilega það sem ykkur langar eins og hægt er.   Það er eina leiðin.   Knús og kveðjur

Þóra 

Þóra Pálsdóttir (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 17:34

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 3.5.2008 kl. 19:03

4 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Innilega til hamingju með stelpurnar! Fallegar myndir! Sex ára! Ja, hugsa sér. Þetta líður hratt.

Ylfa Mist Helgadóttir, 3.5.2008 kl. 22:38

5 Smámynd: Þórunn Eva

lang fallegustu hetjurnar....

Þórunn Eva , 3.5.2008 kl. 22:53

6 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið eru

Hólmfríður Bjarnadóttir, 4.5.2008 kl. 00:50

7 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið eru þetta fallegar prinsessur. Það eru fleiri að klaufast en þú. Guð veri með ykkur Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 4.5.2008 kl. 00:51

8 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Flottar prinsessur.  Ekkert smá einbeittar að blása. 

Bergdís Rósantsdóttir, 4.5.2008 kl. 13:45

9 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Voða fallegar ömmustelpur sem þú átt þarna, ekki hissa þó þú sért stolt.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 4.5.2008 kl. 15:57

10 identicon

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 19:58

11 identicon

Æ hvað það er yndislegt af öllu að lesa bloggið núna, mikið stendur þú þig vel litla hetja.  Myndin af þér er fallegust ever sem er í færslunni hér fyrir neðan, þú ljómar af hamingju og augun þín og hárið svo fallegt.  Ég brosi bara hringinn og til hamingju með prinsessurnar þínar Áslaug og mundu að hvíla þig og safna þér upp orkunni þinni. Ég tendra ljós og fer með bæn og bið allar góðar vættir að passa ykkur fallega fjölskylda

með kærleik 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 15:49

12 identicon

Yndislega falleg börnin þín

 Er búin að fylgjast með ykkur í 1 ár .... og hugsa til ykkar á hverjum degi gangi ykkur vel

Lilja (ókunnug) (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 19:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband