Leita í fréttum mbl.is

Nefkirtlataka

Teddilíus er á leiðinni í nefkirtlatöku og hann er orðinn alveg snar því hann má ekki borða neitt, hvernig í ósköpunum er hægt að leggja svona á 2ára barn, leyfa því ekkert að borða?  Auðvidað skilur hann ekkert afhverju mamma er svona "vond", alltaf að reyna laumast í kexskápinn.  Æjhi greyjið.

Þú sem kvittaðir með hestaþjálfunina takk fyrir það.  Er búin að ath þetta og það er ekkert boðið uppá svoleiðis þjálfun fyrir hana í sumarFrown.  Þannig ég verð víst að reyna finna uppá einhverju öðru en "bara" badmintonnámskeiði, kanski hefur hún heldur ekki orku í of mikið. Mér finnst hetjan mín eitthvað slappari þessa dagana en venjulega, veit ekki hvað það er?  Vonandi bara tilfallandi.  Aaaarghhh!!

Er núna bara að bíða spennt eftir einkunnunum mínum sem ég fæ í síðastalagi í næstu viku og farin að undirbúa okkur Teddalíus í kirtlatökuna.

theodor.florida
Flottasti strákurinn minn í janúar'07, er ekki alltaf svona gott veður í janúar? ehehe

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æi litla skinnið að þurfa að bíða svona lengi svangur en gangi ykkur vel í dag!  Bið fyrir Þuríði og góðum dögum og vonandi er þetta tilfallandi slappleiki. 

Ljós til ykkar 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 15:01

2 identicon

Ææææ vonandi gekk allt vel hjá ykkur í nefkirtlatökunni.Vona líka að Þuríður mín sé ekkert að slappast það er bara ekkert í boði.Bið guð að vera með ykkur og kveiki á kertum fyrir ykkur.Var að vonast til að sjá þig í gær Áslaug mín og frétti svo að þú ætlaðir að vera í pásu í maí,þannig að við sjáumst þá bara í júni....knús til ykkar

Björk töffari (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 16:13

3 identicon

Sæl Áslaug.

Ég fylgist alltaf vel með þínum skrifum og þar sem ég sá að þú ert búin að athuga með faxaból langar mig að benda þér á annað!  Kíktu að minnsta kosti á þessa síðu og hafðu samband: http://www.rifandigangur.net/

Kveðja, Ásdís

Ásdís Steingrímsdóttir (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 18:52

4 Smámynd: Þórunn Eva

hæhæ sætu.... knús og koss á ykkur og voanndi gekk allt vel í dag... LOVE

Þórunn Eva , 7.5.2008 kl. 19:10

5 identicon

Bestu kveðjur.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 20:04

6 Smámynd: Ragnheiður

Ótrúlegt þegar þessi litlu börn eru látin bíða langt fram eftir degi, fastandi. Ég sé að þú skrifar þessa færslu rétt fyrir klukkan 13.

Vonandi gekk allt vel hjá þeim stutta.

Ragnheiður , 7.5.2008 kl. 20:20

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 7.5.2008 kl. 20:23

8 Smámynd: Emma Vilhjálmsdóttir

Ji hvað er mikið á ykkur lagt.  Gangi ykkur vel og vonandi verður litli snáðinn fljótur að jafna sig eftir aðgerðina. 

Eldri stelpan mín er jafn gömul og hetjan þín.  Ég ætla að senda mína á sundnámskeið en láta hana svo taka því rólega í sumar og safna kröftum fyrir haustið, en þá verður líka meira en nóg að gera. 

Gangi ykkur vel!

Emma Vilhjálmsdóttir, 7.5.2008 kl. 21:15

9 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Það er erfitt fyrir lítil kríli að bíða fastandi, helst ætti að taka þau í aðgerð strax kl. 08 en ekki er pláss fyrir alla á þeim tíma, því miður.  Vona að allt hafi gengið vel, gott að hann skyldi komast að þó  þetta fljótt, stúfurinn.

Góðan bata

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 7.5.2008 kl. 22:08

10 identicon

Strákurinn minn fór í nefkirtlatöku þegar hann var tveggjaára og hann hefur ekki veikst síðan og núna í haust verður hann 18 ára, jeminn..   Auðvitað er þetta tilfallandi með Þuríði, bara vorslenið sem er svo algengt þegar sólin fer að glenna sig  

Alveg frábært hestanámskeið í mos ég skal finna allt um það og senda þér, hlakka til að heyra hvað þú ert með margar tíur

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 08:42

11 identicon

Ég man eftir reiðskóla þar sem m.a. fatlaðir voru mikið á námskeiðum. Var sjálf að vinna með fötluðum og fór oft þarna. Minnir að hann heiti Þyrill og er í Víðidal. Þar er ágæt aðstaða fyrir fólk með alla vegana þarfir og vant starfsfólk. Prófaðu að googla þetta. Svo fórum við líka oft með krakka á námskeið hjá Íshestum í Hafnarfirði og eins í Mosó, man ekki nafnið á fyrirtækinu en það er í hesthúsahverfinu þar. Allt ágætir staðir. Ég vona að þú skiljir að ég er alls ekki að meina á nokkurn hátt að Þuríður sé fötluð, langt því frá. Það vill bara þannig til að ég þekki þessa staði frá því ég vann með fötluðum. Gangi ykkur vel með þetta allt saman og njótið daganna. Bið fyrir ykkur.

Ingunn

Ingunn (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 09:18

12 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Vonandi gekk vel með kritlatökuna hjá litla pungsa. Otrúlegt hvað svona einföld aðgerð getur breytt miklu hjá kvefsæknum krílum. Hún Þuríður litla er auðvitað bara þreytt á góða veðrinu! Ekkert annað í boði :)

Ylfa Mist Helgadóttir, 8.5.2008 kl. 09:39

13 identicon

Bara að láta vita að mér verður hugsað til ykkar á hverjum degi stundum oft.

Kærleikskveðja til ykkar allra

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 09:39

14 Smámynd: Þórunn Eva

jú það er alltaf svona gott veður í jan á FLORIDA hehhe

Þórunn Eva , 8.5.2008 kl. 14:11

15 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

vona að kirtlatakan takist vel. Var tekið úr mínum þegar hann var 3 ára og lítið mál. Það er verra ef það eru hálskirtlarnir. Og hafið þið það öll svo gott og getið notið sumarsins.

Helga Magnúsdóttir, 8.5.2008 kl. 16:06

16 identicon

hæhæ , ég var að sjá kommentið þitt áðan og sko mamma og pabbi fara til Spánar í byrjun júní og ég ætlaði með en svo komst ég inná Reykjalund og fer þangað 26.Maí til 13 Júní og ég ætla svo að skella mér með ömmu þegar ég er búin þar;) en eruð þið eitthvað búin að plana að fara aftur út?

Tinna Rut (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 19:58

17 Smámynd: lady

óska ykkur að þið eigi gott frí megi sólin fylgja ykkur þar sem þið eru með bestu kv Ólöf

lady, 8.5.2008 kl. 22:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband