Leita í fréttum mbl.is

Ég bara varð.... (ekki langt stop)

Að segja ykkur frá því en þegar ég sótti hetjuna mína í leikskólann í gær þá var þessi fallegi glampi kominn í augun hennar AFTUR, mikið yndislega var gaman að sjá hann.Grin  Hún var svo yndislega kát og glöð, það lá svo vel á henni að hálfa væri miklu meir en nóg og svo þegar ég tilkynnti henni að við ætluðum í sund þar sem nokkrar rennibrautir væru þá trylltist hún af kæti.  Oh boy þið misstuð af miklu að sjá hana í þessu stuði.  Við sem sagt skelltum okkur í Mosó laugina sem er ótrúlega skemmtileg fyrir adrenufíkla einsog Þuríði mína, frekar erfitt að fá hana heim eheh.  En þarna hljóp hún EIN upp stigann og renndi sér sjálf niður alveg none stop veit ekki hvað lengi?  Þvílíka eins hamingju hef ég ekki verið vitni af lengi lengi.  Endalaust gaman!!

Mikið elska ég að vera ólétt, ef grindin væri í betra ásikomulagi þá væri ég ö-a ólétt allt árið um kring eheh og ef þjóðfélagið gerði fólki kleift að kaupa sér stærri íbúðir, en við getum ekki fyllt meira í hana ehe.  Þannig ef ég flyt í einbýli/par/raðhús á næstunni vitiði hverju þið eigið von á. Mhúhaha!!  Farin að finna fullt af hreyfingum eða kanski meira svona loftbólum og fyrsta sinn í morgun fann ég að barnið var komið alveg með rassinn (eða eitthvað annað) uppað maganum þannig hann var smá harður.  Oh boy, best í heimi.  Perlan mín pælir mikið í því hvernig barnið komi út og afhverju ætti ég að ljúga að barninu og búa til einhverjar sögur um hvernig það komi, að sjálfsögðu segi ég henni sannleikan en hún trúir mér engan veginn ehe.  Henni langar í litla systir en hetjunni minni og litla Teddalíus langar í strák, miklar pælingar í gangi en við ætlum ekkert að vita fyrr en það kemur í heiminn.Halo

Langaði nú líka að nefna það en umtalaðist dómari landsins Garðar Örn Hinriksson er BRÓÐIR minn og ég er ótrúlega stollt af honum að geta dæmt svona leiki einsog KR-ÍA, ég veit að ég sjálf myndi bara fara grenja ef fólk myndi haga sér svona við mig.  Ég fæ eiginlega bara kjánahroll að horfa uppá suma menn haga sér svona einsog þeir hafa hagað sér.  Ætlaði að skrifa langa færslu um þetta en hef ákveðið að hætta við hana.

Góð fíling samt að blogga í dag bara því mig langaði að blogga og þannig verður það framvegis.  Víííí!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært að heyra um hetjuna þína.

Auðvitað bloggar þú þegar þú ert í stuði og þegar þú hefur löngun til.

Guð veri með ykkur.

Linda Birna (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 10:32

2 identicon

Yndislegt að lesa færsluna þína í dag Áslaug, vonandi að hetjan verði áfram svona brött. Baráttukveðja á ykkur öll

Kv. Ellen

Ellen Óskarsdóttir (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 10:33

3 identicon

Frábærar fréttir af litlu hetjunni :)  Þú mátt vera stolt af bróður þínum, erfitt að þurfa að lenda í geðsjúklingum eins og sumum þjálfurum og halda samt áfram að gera vinnuna sína.  Gangi þér sem best með bumbubúann

Sara (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 10:34

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Rosalega er gott að fá svona jákvætt blogg frá þér og að Þuríði líði betur. Það verður bara að kaupa handa henni sundlaug og rennibraut til að hafa í garðinum. Líka gaman að fá fréttir af óléttunni, sjálf elskaði ég að vera ófrísk á sínum tíma.

Helga Magnúsdóttir, 2.7.2008 kl. 10:40

5 identicon

Flott hjá þér Áslaug, bara blogga þegar maður er í stuði, þannig á að gera þetta    Foreldrar þínir geta verið stoltir af sínum börnum, tala ekki um ef þið eruð öll svona sterkar manneskjur  Já ég hefði sko verið til í að vera samtímis ykkur í sundlauginni í Mosó, frábært   Hvað hetjan ykkar er lífsglöð, yndislegast. Njótið lífsins öll sömul  

Jóhanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 10:41

6 Smámynd: Bjarni Kjartansson

 sinnum helling.

Til hetjunnar þinnar (okkar) með þökk til Hans.

Bjarni Kjartansson, 2.7.2008 kl. 10:52

7 Smámynd: katrín atladóttir

hann guðjón er meira fórnarlambið

hvernig væri hann færi að hætta að tuða yfir dómurunum og reyna að vinna leiki í staðinn, ég held með garðari!

katrín atladóttir, 2.7.2008 kl. 11:22

8 identicon

Víiii gaman að lesa og guð gefi hetjunni þinni sól í heiði og glampandi bros áfram.  Og litla krílið á fullu til að minna á sig..viss um að þetta sé stelpa.....Púff talandi um dómara erfið staða hjá bróður þínum og hann ekki öfundisverður....en hann stóð sig vel í sjónvarpinu í gær og var heiðarlegur og með allt á hreinu...flottur!!

 Tendra ljós og fer með bænir til hans sem hlustar

með kærleiksknúsi 4 barna mamma

4 barna mamman (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 11:34

9 identicon

Bjargar degiunum alveg að lesa þetta ,alveg yndislegt hvað BROSdúllan er dugleg og að allt gangi vel (bara uppleið) sæti bróðir þinn er sko til fyrirmyndar að standa sig í sinni vinnu,en þið ÖLL fjölskyldan eruð soddan fyrirmyndir á öllum sviðum, bara áfram góðir dagar.Kv.Hrönn.

Hrönn (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 12:21

10 identicon

Langaði að benda þér á þessa síðu ef þú hefur ekki séð hana. Dóttir mín var líka að spá í þvi hvernig barnið kæmist eiginlega út og þessi síða er mjög flott og einföld í fyrir þau yngstu :)

http://www.umm.edu/pregnancy/000005.htm

Sigrún Haf (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 13:30

11 identicon

Gaman að heyra að hetjunni líður vel :)

Þórunn (ókunnug) (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 14:01

12 identicon

Elsku Áslaug og co..gott að lesa að flottustu hetjunni líður betur,það er alltaf ánægjulegt þegar svo er.Bið að heilsa sætu stelpunni og vona að það gangi áfram svona glimrandi vel...see you

Björk töffari (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 14:43

13 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Æ en gaman ad heyra ad hún er øll ad koma til  hafid thad rosalega gott og njótid sumars

María Guðmundsdóttir, 2.7.2008 kl. 16:16

14 identicon

Takk fyrir góðar fréttir.  Guð gefi að hún fái áram góða daga.

Kristín (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 17:10

15 identicon

Hæ elsku Áslaug.  Góðar fréttir Bara yndislegt að lesa, af hetjunni litlu og af óléttunni.  Mér leið æðislega vel á mínum 2 meðgöngum...

Gangi ykkur sem best og njótið sumarsins.   

Stella A. (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 17:37

16 Smámynd: Hulla Dan

Góðar fréttir.
Lýði þér sem allra best í óléttunni 

Hulla Dan, 2.7.2008 kl. 19:05

17 identicon

Yndislegt að lesa hvað færsluna hjá þér.  Auðvitað ertu stolt af bróðir þínum.

Kveðja Þorgerður.

Þorgerður H. Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 20:18

18 identicon

Kæra fjölskylda gaman að heyra hvað hetjan ykkar er hress.Vonandi gengur ykkur allt í haginn.

ókunnug frá Eyrarbakka (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 20:24

19 Smámynd: Elsa Nielsen

VÍÍÍÍ :)... ég brosi bara hringinn !!

KNÚÚÚÚS

Elsa Nielsen, 2.7.2008 kl. 20:37

20 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Til hamingu með hann bróðir þinn. Hann er ekki að gefa eftir þó verið sé að formæla honum af málglaðasta þjálfara á Íslandi. Mér finnst ég finna mun meiri dónaskap og hörku í mannlegum samskiptum núna í ummælum manna tengdum íþróttum. Frábært að Þuríður er að hressast og það er auðvitað aðalatriðið. Hún er svo ótrúleg þessi stelpa. Já stundum er bloggnennan ekki heima og þá er það bara þannig. Ég er að fara á mikilvægann fund á morgun og get vonandi sagt frá því á annað kvöld hvað ég hef verið að skipuleggja. Ekki meira í bili, kveðja í bæinn og til spriklandi bumbubúans.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 2.7.2008 kl. 21:05

21 identicon

 á allt og alla.Ekki gleyma Garðari bró.....Dómarakveðja.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 22:43

22 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Dásamlegt ad heyra  ad allt ér svo gott í dag hjá¨dugnadar fjölskyldunni.gangi tér líka vel me bumbubúann.Nú fer dóttir mín ad verda léttari bara á næstu dögum.

Knús á ykkur öll

Gudrún Hauksdótttir, 3.7.2008 kl. 05:54

23 identicon

Sannarlega góðar fréttir af hetjunni. ;) Svo er þetta ósköp einfalt, það er bara dómarinn sem ræður, ekki flókið. Áfram Garðar!

Sólveig (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 08:32

24 identicon

 Hm.. held svei mér þá að þú sért með hamingjuklump í brjóstinu :) Það er best í heimi..
Garðar er sá allra svalasti..

kolla tjorva (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 09:59

25 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Flott að heyra af hetjunni.  Það er ein yndislegasta tilfinning í heimi að finna fyrir litla krílinu manns í mömmukviði.  Sakna þessa tíma, er að verða komin 4 ár síðan litli prins kom í heiminn. 

knús og kram til ykkar allra.

Bergdís Rósantsdóttir, 3.7.2008 kl. 18:27

26 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

En dásamlegt að heyra Áslaug! Svona á lífið að vera ALLTAF!!

Bið fyrir því :)

Ylfa Mist Helgadóttir, 3.7.2008 kl. 22:00

27 identicon

Fallegt veðrið í dag.Eigið þið frábærann dag líka.Sólarkveðja.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 06:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband