22.7.2008 | 15:54
Bráðamóttakan í morgun.....
Vorum send á bráðamóttökuna í morgun, bwaaaahh!! Held að ég sé komin með ofnæmi fyrir spítalanum, jú við erum komin með enn eitt gemmsa númerið hjá einum doktornum. En doktorarnir uppá spítala allavega þeir sem við höfum kynnst eru farnir að gefa okkur beint númer til sín svo það sé auðveldara fyrir okkur að ná í þá einsog það sé ekkert sjálfsagðara. Frábær þjónusta, erum samt ekkert vön að nota þá þjónustu eða kanski bara í "neyð". Þurftum að nota hana í morgun hjá lungasérfræðingnum því hetjunni fer versnandi í lungunum og mettun, um leið og hún er hætt á sterunum þá fer henni strax að versna en ekki hvað. Hann sendi okkur á bráðamóttökuna í morgun þar var hún mettuð, hlustuð, potuð, ennþá meira potuð og pínd sem hún var ekki sátt við en það eru mjög fá skipti sem Þuríður "æsir" sig yfir hlutunum. Ég hefði líka verið ósátt við það ef einhver doktor hefði potað einhverju mjógu priki uppí nösina mína til að taka sýni, ekki það þægilegasta.
Auðvidað er einhver skítur í lungunum hennar (sem þeir skilja ekki ennþá í), mettar frekar illa og var gefin smá "súrefnisgríma" (man ekki hvað það heitir) allavega til að auðveldlega henni andardráttinn, ath hvort mettuninn hennar myndi ekki lagast og hvort það myndi ekki aðeins losna um skítinn í lungunum en ekkert dugði. Jú það var tekið sýni og ef það sýnir einhverja sýkingu þarf að leggja hana inn og þarf að fá sýklalyf í æð en við vitum það ekkert fyrr en á fimmtudaginn. Við þurfum þá líka að hitta tauga- og krabbameinsgengið okkar, fá að vita hvað þeir vilja gera fyrir hetjuna mína í framhaldinu og hitt og þetta.
...hún er allavega komin á fimmtugustu sýklalyfin sín þetta árið, grrrrr!!
Annars bara sæmilegt að frétta, flestir spriklandi glaðir, stelpurnar búnar með reiðnámskeiðið sem þær voru að fíla í botn. Þegar ég kom einmitt að ná í þær á námskeiðið á föstudag komu þær ríðandi á móti mér með engan til að teyma hestana sína og þvílíkt stolltar. Ef Berglind (sem sá um námskeiðið) ætlaði eitthvað að taka í taumana æstu þær sig bara eheh. Þær voru orðnar svo klárar að þær þurfa enga aðstoð, snillingar!! Allir krakkarnir komnir í frí frá leikskólanum þannig við erum bara að dóla okkur yfir daginn við málun, leirun, æfingaleiki í tölvunni og svo vorum við einmitt að koma frá Stokkseyri(ég er sko þaðan). Kíktum í heimsókn á nokkra staði verst að það var ekki nógu gott veður til að kíkja í fjöruna og veiða nokkur síli og krabba, kanski næst bara. Bíðum eftir því að Skari fari í frí sem verður ekki fyrr en eftir mánudaginn í næstu viku og þá verður sko gert maaaaaaaaaaargt skemmtilegt, bara gaman! Þau geta ekki beðið og ekki ég heldur.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vonandi fer þetta allt að lagat. Njótið frísins kæra fjölskylda.
Ylfa Mist Helgadóttir, 22.7.2008 kl. 16:15
Bið svolítið fyrir henni líka.
Sigurður Þorsteinsson, 22.7.2008 kl. 17:27
Segi bara áfram kæra fjölskylda.Til hamingju með frábærar hestakonur.Bestu kveðjur
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 20:03
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 22.7.2008 kl. 20:23
Ég vona svo sannarlega að´Þuríður fari að lagast svo hún þurfi ekki að fara á enn einn lyfjakúrinn.
Helga Magnúsdóttir, 22.7.2008 kl. 20:28
Það verður að ná þessum "skít" úr lungunum hennar Þuríðar svo hún geti haldið áfram að æfa sig í öllu mögulegu. Hver hefði ekki orðið pirraður yfir því að fá prik uppí nefið. Hún stendur á sínu þessi elska. Frábært að heyra af hestakonunum og þeirra afrekum. Njótið lífsins og eigið góðar samverustundir með Skaranum í fríinu.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 22.7.2008 kl. 22:26
vonandi fer henni að batna þuríði okkar sendi ykkur hlýja strauma
lady, 22.7.2008 kl. 22:31
Hlýjar kveðjur og vonandi batnar henni Þuríði sem fyrst svo þið getið notið frísins með Skara, öll fjölskyldan.
Stella A. (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 22:56
hlýjar kveðjur og hugsanir
Stórt knús
Kveðja úr sveitinnii
Dagrún (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 09:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.