27.7.2008 | 19:39
Enn ein helgin að líða...
Höfum átt góða helgi. Eyddum föstudeginum og laugardeginum í Fljótshlíð (keyrðum á milli yfir nóttina þar sem ég verð að sofa í mínu rúmi vegna grindarinnar) en þar var fjölskylduhátíð hjá Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Það var svaka stuð, fullt af skemmtilegu fólki kom og skemmti okkur t.d. Gosi og Lóra (úr Gosa-leikritinu) og þá sátu börnin mín stjörf að horfa ehe, ætla einmitt að fara með þau aftur á það leikrit í haust og núna taka hann Theodór minn með. Harasystur komu líka og voru frábærar, Jón Sig "idol stjarna" var með kvöldvöku ásamt Sigríði Klingenberg og bæði voru þau frábær. Á laugardagskvöldinu var svo brenna, bara frábær skemmtun. Í dag ákváðum við að kíkja á Dragó, settum í "pottinn" og lékum okkur, sem sagt yndisleg helgi að ljúka og börnin gjörsamlega búin á því og svo bara einn vinnudagur eftir hjá Skara mínum og erum við öll komin saman í sumarfrí víííííí!! Hlakka mikið til þess sumarfrís, hvað þá börnin ....og ég lofa ykkur því að þá verð ég ekki dugleg að koma hingað inn því við verðum að gera svoooo skemmtilega hluti. Say no more!
Nokkrar góða frá helginni:
Búið að kveikja í brennunni og Þuríður Arna mín þvílíkt hamingjusöm með það. Það einmitt liggur ofsalega vel á henni þessa dagana, fólki eiginlega "bregður" þegar það sér hana þessa dagana en sá hana kanski síðast fyrir nokkrum vikum/mánuðum (þessir sem eru í félaginu okkar). Hún lítur svo vel út, það geislar eitthvað svo af henni en hún er samt fljót að þreytast þessa dagana sem er væntanlega af öllum þessum sýklalyfjum sem hún er búin að vera á síðasta rúmlega hálfa árið. Grrr!!
Gemmér knús mamma mín. Sá fallegasti á svæðinu í stuði á brennunni.
Á hvolfi, perlan mín var þarna að slást við pabba sinn og endaði einhvernveginn ehe. Hún skemmti sér líka ótrúlega vel, það er samt ofsalega skrýtið að fylgjast með henni í kringum aðra krakka eða fullorðna því hún opnar sig ekkert fyrir hverjum sem er. Hún er ótrúlega feimin og lokuð sem hún fær væntanlega frá móðir sinni en hin tvö eru enganveginn svona, það tekur sem sagt tíma að opna skelina hennar. (einsog mína)
Annars stækkar bumban mín of hratt ehe, það mætti halda að ég væri á lokasprettinum en samt bara komin 22 vikur. Úúúfffhh hvar endar þetta eiginlega. Fólk verður líka mjög hissa þegar ég segist ekki eiga fyrr en 3.des, ótrúlegt en satt. Ég finn líka hvað ég er smá þreytt í bumbunni, aðeins í þyngri kattinum og erfitt að standa lengi en finnst það reyndar líka mjög gaman að það sjáist svona vel á mér. Erum búin að kaupa nokkrar flíkur á ófædda barnið en það var eiginlega "bara" gert fyrir perluna mína sem bíður spennt eftir lillanum/unni (ok ég líka) og svo laumast hún stundum ofan í skúffu og fer að skoða fötin, finnst það svo gaman. Svo er hún alltaf að spurja mig hvenær við eigum að kaupa meira en ég er nú alltaf að reyna segja henni að við ætlum nú að reyna geyma það en það kemur eiginlega ekki til greina. Bara gaman að sjá hvað þau eru spennt fyrir litla bumbubúanum einsog við Skari, svei mér þá, þá held ég maður verði alltaf spenntari og spenntari eftir hvað börnin eru mörg kanski vegna þess að maður veit hvað þetta er gaman.
Skólaundirbúningurinn hennar Þuríðar minnar er í fullum gangi, Þuríður laumast oft inní skáp til að kíkja á skólatöskuna sína og reynir svo að príla upp hillurnar til að ná töskunni ehe. Hún getur sko allt sem hún ætlar sér. Erum farin að fá bréf frá Tryggingastofnun til að láta okkur vita að hitt og þetta sé tilbúið fyrir hana sem hún þarf á að halda fyrir hennar skólagöngu og það er sko ekkert grín að senda langveikt barn í skóla með sérþarfir. Jú skólinn borgar allt sem hún þarf á að halda í skólanum en hið sama þarf hún hérna heima og það þurfum við að borga, oftast ekki 100% en minnst 50% og þetta er ekkert grín skal ég segja ykkur en að sjálfsögðu fáum allt hingað heim sem hún þarf á að halda alveg sama hvursu mikill kostnaður er við það.
Enda svo á einni prinsessumynda af hetjunni minni sem elskar að vera svona klædd eða í Hello kitty kjólnum sínum:
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
336 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
yndislegar myndir af yndislegum børnum. Mikid lítur hún Thurídur vel út og já,spennan og tilhløkkunin er sannarlega alltaf jafnmikil i bumbubissness..er sjálf med fjøgur børn og upplifdi engu minni spenning med thad sidasta og thad fyrsta
Eigid góda viku kæra fjølskylda og hafid thad sem best.
María Guðmundsdóttir, 27.7.2008 kl. 20:31
Sammála Maju, nema ég er með 5
Hulla Dan, 27.7.2008 kl. 21:55
Er sammála Maju og Hullu fyrstu tveim setningunum bara.Annað þekki ég ekki...En góðar kveðjur sendi ég.
Halldór Jóhannsson, 27.7.2008 kl. 22:58
Heiða Þórðar, 28.7.2008 kl. 00:28
Mikið er frábært að lesa frá þér núna. Myndin af Þuríði við brennuna er ekki að sýna nein einkenni um veikindin sem eru að baki. Kroppur í vexti er svo fljótur að aðlagast því að vera heilbrigður. Svo eru hin nátt´rlega frábær. Njótið ykkar vel í fríinu og passaðu vel uppá grindina þína svo hún verði ekki að stríða þér eftir fæðinguna. Guðsblessun til ykkar allra og svo hellingur af kærleika.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 28.7.2008 kl. 02:33
Yndislegt ad sjá Turídi svona hressa vid brennuna.Tad er alltaf svo skemmtilegt ad vera í útileigu med fjölskyldunni.fardu vel med tig Ásdís mín og njótid sumarfrísins vel.
Stórt knús á familíuna
Gudrún Hauksdótttir, 28.7.2008 kl. 04:48
Stella A. (IP-tala skráð) 28.7.2008 kl. 11:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.