10.11.2008 | 13:00
"Hætt" að sofa
Úúúfffh hvað það getur verið erfitt að geta nánast ekkert sofið á nóttinni, grindarverkirnir eru orðnir óbærilegir, get kanski legið í 10mín á hvorri hlið í einu og hvað þá að þurfa fara yfir á hina hliðina er ennþá verra vegna lífbeinsins. Gaaaarggh!! Well þetta styttist óðum 1-5 vikur eftir sem væri kanski 5 vikum of mikið svo held ég líka að kvíðin og stressið spili líka inní vegna TR en ég held að það verði fundað um mig á morgun fyrst að læknisvottorðið er mætt á svæðið. Annars var pabbi "gamli" (well hann eldist um eitt ár á morgun hehe) að lána mér lazy boyinn sinn (jú mamma á hann líka haha) sem er alveg yndislegt að liggja eða sitja í, verst þegar Oddný Erla mín sá hann í morgun þegar hún vaknaði mátti engin annar sitja í honum nema hún, fannst hann svo mjúkur og góður.
Við Skari vorum barnlaus um helgina sem fór í nánast ekkert sem var bara best nema borða góðan mat(þökk sé einni/einum), læra pínu og horfa á imbann. Jú Skari setti jólaljósin á pallinn, nauðsynlegt að lýsa upp þessa dagana en við höfum aldrei sett þau svona snemma.
Sjálf er ég að rembast við að klára flest verkefnin mín í skólanum, próf seinni partinn sem gildir 30%(þannig ég ætti að vera læra), er að reyna klára lokaverkefnið mitt sem er rétt rúmlega hálfnað og svo gæti ég talið endalaust. Fékk einmitt mail fyrir helgi um útskriftina mína þar að segja ef ég næ þá verður hún 19.des, jíbbíjeij!! Veit svo ekki hvort ég fer í framhaldið eftir áramót þó svo mig langi mikið....
Hetjan mín er ágætlega hress, ætlar að fara eftir skóla og hitta eina skólasystir sína sem eru miklar framfarir að hún geti kanski farið eitthvað ein. Reyndar kemur mamman að ná í hana og það verður spennandi að sjá hvernig það fer og vonandi skemmtir hún sér vel. Ekkert sjálfgefið að foreldrar vilji fá langveik börn í heimsókn til sín sérstaklega þau sem eiga mikla hættu að fá krampa (veit að það er bara erfitt fyrir mig að sjá hana í krampa hvað þá einhverja sem hafa aldrei upplifað það) en ég hef reyndar bara kynnst góðum foreldrum í skólanum hennar Þuríðar minnar og vilja allt fyrir hana gera. Það safnast bara gott fólk í kringum okkur. Bara gott og gaman!!
Þuríður mín losnar við saumana sína í þessari viku, fáum niðurstöður úr ræktuninni og hin sárin gróa ótrúlega vel sem frábært þannig þetta er allt í áttina hjá henni, við bíðum líka eftir næstu dagssetningu á myndatökum sem ætti bráðlega að koma í ljós hvenær verður af því.
Ætli ég haldi ekki áfram að rembast við læra fyrir prófið mitt, þetta hefur nú gengið ágætlega hingað til en samt ekki neinar tíur þessa önnina. DAMN!! Meðal talið kringum 8.
Lögst í lazy boyinn....
Tvíeyki dagsins:
Ég varð bara að birta þessa mynd því það er dáltill svipur með þeim.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
30 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl vertu
Ég hef verið að fylgjast með blogginu þínu og er alveg óskaplega forvitin að vita hvað þú ert að læra, hef ekki séð það koma fram.
Bestu kveðjur og gangi þér vel, Magnea
Magnea Berglind Högnadóttir (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 15:43
Gott að vita að allt gangi vel hjá börnunum þínum. Hef trú á að þetta fari allt vel hjá TR og eins hjá þér í prófum og barneign.
Eigðu ljúft kvöld mín kæra ;)
Aprílrós, 10.11.2008 kl. 17:58
gangi thér vel med lærdóminn. Frábært ad Thurídur sé ad fara i heimsókn til skólasystra sinna, thad er bara flott throskamerki og spennandi fyrir hana
María Guðmundsdóttir, 10.11.2008 kl. 19:09
Frábært að heyra um þroskaframfarinar hjá hetjunni þinni. Ég ætla nú að vona þín vegna að þú gangir ekki fram yfir með ungan þinn, sérstaklega þar sem grindin er að hrekkja þig. Að hafa 8 í meðaleinkunn er nú alls ekki slæmt tala nú ekki um eins og í þinni stöðu. Þú ert sko ekkert minni hetja en Þuríður Arna. Sit sjálf á skólabekk og veit alveg hvað það er mikil vinna, hvað þá ef ég væri með brot af þvi sem þú hefur. Aðdáunarvert hjá þér. Þú hefur skólann af og útskrifast með þínum bekkjarfélögum þann 19. des. sem verður bara gaman og yndislegt. Skil líka vel að þig langi að halda áfram eftir áramótin, en litli unginn þinn stjórnar eflaust ákvörðun þinni. Gangi þér allt í haginn, veri Guð og góðar vættir með ykkur.
Kveðja Linda Birna (ókunnug).
Linda Birna (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 20:53
Þekki þig ekkert en vildi senda þér knús
Gangi þér voða vel, vonandi verða þeir hjá TR í góðu skapi.
Þið eruð alltaf í bænum mínum.
Knússs
Hildur ókunnug (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 22:29
Bergljót Hreinsdóttir, 11.11.2008 kl. 00:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.