Leita í fréttum mbl.is

Lífið er ljúft

Ég sit máttlaus allan liðlangan daginn og horfi á fallegu kraftaverkin mín, þetta er alveg yndislegt líf.  Þó svo að allt sé að fara á "hausinn" og allt fer hækkandi líður mér svooooo vel, ég er svooooo hrikalega rík að hálfa væri miklu meir en nóg.  Börnunum mínum líður vel og þá líður mér ennþá betur, þau eru svakalega spennt fyrir jólunum enda nýttum við helgina að baka sem var ekki leiðinlegt.  

Hnoðrinn minn er ótrúlega vær og góður þó svo hann mætti sofa lengur en tvo tíma í einu en þá vill hann rjómann sinn en þá kvarta ég ekki.  Hann verður allavega kallaður hnoðri til 17.janúar (langamma mín hefði átt afmæli þá) en þá mun hann fá nafnið sitt, hvað sem það á að vera?

Ég er ótrúlega heppin kona, er hægt að vera heppnari?
PC075808
Hérna er Theodór krulluhaus, kanski tími á klippingu fyrir jólin?
PC065752
Áhyggjulaust líf hjá hnoðra mínum, svoooo gott að knúsa hann svona.
PC075805
Flottustur stelpurnar mínar, vitiði hvor er hvað? hehe!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elsa Nielsen

RÍKA KONA!!!... vá hvað Theodór er sætur með svona krullur og stelpurnar orðnar líkar ;) Yndislegar! Hlakka til að knúsa hnoðrann þinn á morgun...

Elsa Nielsen, 8.12.2008 kl. 14:15

2 identicon

Segi það sama og Elsa RÍKA KONA!! Þetta er náttúrulega bara BEST í heimi að eiga svona yndislega falleg börn. Njóttu bara í botn og jólin verða sko alveg frábær ekki spurning.

Knús til þín og allra.

Brynja (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 14:18

3 identicon

Já lífið er svo sannarlega yndislegt..Kveðja Þorgerður

Þorgerður (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 14:44

4 identicon

Já tek undir hér þú ert sko rík kæra Áslaug og þau eru svo yndislega falleg og glöð börnin þín. Stelpurnar bara alveg eins.   Bænir mínar til ykkar og haldið áfram að njóta aðventunnar, við vitum hvað er mikilvægast í þessu lífi, fjölskyldan og kærleikurinn manna á milli.

kveðja 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 15:50

5 identicon

Já RÍKA KONA . Þú mátt svo sannarlega vera stolt af ungunum þínum eins falleg og þau eru.  Bið Guð að blessa ykkur öll og njótið aðventunnar.

Kristín (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 16:19

6 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Yndisleg børn  haltu áfram ad njóta thess ad vera til.

María Guðmundsdóttir, 8.12.2008 kl. 17:33

7 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Það er svo ljúft að lesa hjá sér. Einhver myndi nú liggja í sjálfsvorkunn eftir það sem gengið hefur á hjá henni Þuríði þinni. En ekki þú. Þú sérð alltaf björtustu hliðarnar. Þú ert einstök manneskja.

Helga Magnúsdóttir, 8.12.2008 kl. 19:04

8 identicon

:) Mikið óskaplega áttu (réttara þið Óskar  ;) falleg börn!! og litli hnoðrinn er eiginlega bara frekar stór! Óska ykkur dásamlegrar hátíðar!

hm (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 19:14

9 identicon

Eins og ég hef áður sagt, yndislegt að þið skuluð geta notið aðventunnar. Hafið það sem allra best, ALLTAF.

Sólveig (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 19:33

10 identicon

Fallegu börn!! Og vá hvað mér finnst þær systur líkar!! Væri gaman að sjá ykkur fyrir jól!

Oddný (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 20:01

11 identicon

Falleg börnin ykkar Óskars.... þið eruð rík

Njótið ykkar í desember..... yndislegt líf hjá ykkkur.  Kær kveðja,  Stella A.

Stella A. (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 20:47

12 identicon

Ein rík kona til annarrar, ríkidæmi þitt er mikið og mun bara aukast með árunum þegar hnoðrarnir stækka og dafna. Svona í trúnaði er sko allur aldur skemmtilegur en mín elsta er orðin tvítug og enn þá gaman hjá mér.   Og svo annað takk kærlega fyrir að ætla að skíra drenginn á afmælisdaginn minn   Langamma hvað ég veit þetta er bara mér til heiðurs allavegana tek ég því þannig   Ég veit þið eigið ánægjulega hátlið í vændum, umvafin unga fólkinu ykkar, lov Sigga 

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 21:55

13 identicon

Já Áslaug þið Óskar eruð sannarlega rík -  það er því miður ekki öllum gefið að eignast börn - hvað þá 4 -  njótið þess að vera saman þrátt fyrir allt krepputal !!!

Ása (ókunnug (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 22:45

14 identicon

Sæl Áslaug og Óskar.

Hef ekki skrifað athugasemd áður en les oft, dáist að ykkur öllum saman. Og til hamingju með að vera búin að ná prófunum! :) Enginn smá dugnaður hér á ferðinni!

Innilega til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn, hann er gullfallegur eins og systkini sín og ekki skemmir fyrir að hann er fæddur sama dag og ég :) Þið eruð svo sannarlega rík, með allan þennan barnafjölda!

Risastórt knús til ykkar allra...

Kv. Margrét

Margrét (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 23:06

15 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og ljúfar yndislegar kveðjur á fallegum ljúfum vetrakvöldi

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 8.12.2008 kl. 23:58

16 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið er Hnoðrinn flottur og afslappaður.   Það er greinilegt að rjóminn frá mömmu gerir honum gott. Svo eru "stóru" börnin líka alveg dásamleg eins og alltaf. Já fjársjóðurinn er stór og dýrmætur. Guðs blessun í bæinn  

Hólmfríður Bjarnadóttir, 9.12.2008 kl. 00:34

17 Smámynd: Bertha Sigmundsdóttir

Fallegar myndir af fallegu bornunum thinum, mikid ertu nu rik.  Eg er ther sammala, bornin eru thad rikasta sem madur a, eg a sjalf fjogur, tvo sem eg faeddi og tvaer stjupdaetur, og svo er eg komin thrja manudi a leid med litla barnid mitt, thannig ad tho svo ad kreppan er mikil, erfidleikarnir miklir, og enginn peningur, tha er eg 100% med ther, vid erum badar mjog rikar... Hafid thad gott yfir hatidarnar, og gaman ad sja ad Thuridi lidi betur. Kvedjur yfir hafid, Bertha i Kaliforniu

Bertha Sigmundsdóttir, 9.12.2008 kl. 01:22

18 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Þið eruð bara svo rík, gangi ykkur sem allra best. Þið eruð yndisleg. Kærleikur til ykkar

Kristín Gunnarsdóttir, 9.12.2008 kl. 09:02

19 identicon

Alltaf er jafn gaman að líta við hjá ykkur nú orðið.

Enda ekki skrítið þessi flotti hópur, jú kannski smá að stytta krullurnar en ekki meira því þetta er svo ótrúlega sætt ég á tvo svona krulluhausa.

Jú ég þekki þær sundur en það er ekki alltaf.

Sendi kærleikskveðju í húsið.

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 10:27

20 identicon

Gaman að heyra hvað öllum líður vel! Til hamingju með nýja prinsinn. Óska ykkur gleðilegra jóla! Kveðja, Ásdís.

Ásdís Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 10:35

21 identicon

Ríkari er varla hægt að vera!

Yndislegar myndir og krulluhausinn er æðislegur!!  

Súsanna (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 11:58

22 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég sé hvor er hvor... þú ert rík kona

Gunnar Helgi Eysteinsson, 9.12.2008 kl. 12:14

23 identicon

Til hamingju með börnin blýð mikið eru þau falleg.Þau hafa ekki lánt að sækja það. Við þekkjumst ekkert bara datt inn af forvitni.Guð gefi ykkur gleðileg jól.

Bögga (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 17:47

24 identicon

Vá ég myndi ekki klippa hann fyrir jólin - Hann er svo sætur svona =o)

Þórdís Kolbrún (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 16:53

25 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Þvílíku bjútíin!!!...til hamingju með þau öll elskuleg!!!!

Bergljót Hreinsdóttir, 10.12.2008 kl. 17:35

26 identicon

Þú þekkir mig ekki en ég skoða stundum bloggið þitt og ég verð bara að segja að þú átt ein fallegustu börn sem ég hef nokkurntíman séð

Sylvía (IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband