Leita í fréttum mbl.is

Kvíðin

Orðin nett kvíðin fyrir þriðjudeginum, fyrir þá sem ekki vita en þá fer Þuríður mín í sínar rannsóknir.  Verður að sjálfsögðu svæfð sem er nú lítil kökusneið fyrir hana og hef ég ekki tölu á svæfingum hjá þessari dömu, hún á ekki að vera svona vön og það bara rúmlega sex ára gömul.  Við erum orðin vön að fá að vita niðurstöður úr þessum rannsóknum samdægurs og vonandi verður engin breyting á því, held líka að ég gæti ekki beðið í sólarhing.  Ég held líka að ég sé orðin kvíðnari fyrir þessum myndatökum því ég fann smá "hnút" eða hvað sem ég get kallað þetta á höfðinu á henni, ofsalega skrýtið eitthvað sem við vitum ekki hvað er og þegar maður finnur svona og ég veit ekkert er erfitt.  Auðvidað er þetta ö-a ekkert en samt stressandi og ERFIÐAST.

Útí annað en þá ákvað mín að kíkja á útsölur í dag þar sem öll fötin á börnin eru að verða of lítil eða sjúskuð, oh mæ god hvað ég varð fyrir miklum vonbrigðum.  Það var ALLT ógeðslega dýrt en samt 30-50%afsláttur og LJÓTT, vávh!!  Þannig það var ekki hægt að kaupa mikið á þessum blessuðum útsölum, ætla samt að gera einn séns enn og kíkja á útsöluna í uppáhalds búðinni minni þegar kemur að henni eða í Next.  Verð ö-a fyrir jafn miklum vonbrigðum, bwaaaahh!! 
PC316669
Theodór Ingi minn heldur stolltur á litla bró og litlu frænku sem fæddist 15.des.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið skil ég ykkur með kvíðahnútinn vegna þriðjudagsins, en vonandi fær daman góða skoðun. Að finna smá hnút á kollinum hennar, það er ekki uppörvandi. Ekki meiri svartsýni takk, ég sendi ykkur fullt af ljósi og kærleika.

Theodór Ingi er aldeilis duglegur "stóri" bróðir og frændi, enda hróðugur mjög á myndinni og má svo sannarlega vera það. Mikill töffari  

Hólmfríður Bjarnadóttir, 3.1.2009 kl. 22:00

2 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

Gangi ykkur vel á þriðjudaginn,vonandi verða niðustöður góðar..

Knús inní nýja árið

Guðrún Hauksdóttir, 3.1.2009 kl. 23:34

3 Smámynd: María Guðmundsdóttir

já gangi ykkur vel í myndatøkunu,megi gud gefa ad thær komi vel út. Já Theodór bara flottastur med litlu krúttin i fanginu

María Guðmundsdóttir, 4.1.2009 kl. 08:22

4 identicon

Bið góðan Guð um gott gengi á þriðjudaginn elsku fjölskylda. Ekkert smá sæt mynd af stórum manni með lítil krútt.

Kristín (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 16:05

5 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Vonandi gengur allt vel á þriðjudaginn og allar niðurstöður eins og best verður á kosið. Sæt börnin og litli bróðir aldeilis herralegur í vesti og alles.

Helga Magnúsdóttir, 4.1.2009 kl. 16:08

6 identicon

Megi góður guð gefa allt gott handa hetjunni....og ykkur.Kærleikskveðja

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 18:25

7 Smámynd: Aprílrós

Sendi ljós og kærleik til ykkar og vona svo sannarlega að það komi allt jákvætt úr myndatökunni á þriðjudaginn elskan mín.

Aprílrós, 4.1.2009 kl. 19:38

8 identicon

Elsku Áslaug og co...ég bið fyrir góðri útkomu úr myndum og mun hugsa til ykkar eins fallega og vel og mér er unnt þennan dag.Verð á sama stað og þið þennan dag og sendi ykkur strauma og kærleik..baráttuknús á Þuríði mína

Björk töffari (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 04:26

9 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Gangi ykkur vel , kæra fjölskylda.Verd med ykkur í huganum

Hjartanskvedja frá Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 5.1.2009 kl. 08:39

10 identicon

Gangi ykkur sem best ;)

Dagbjört (ókunnug) (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 11:44

11 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Gangi ykkur vel á morgun   

Hólmfríður Bjarnadóttir, 5.1.2009 kl. 17:22

12 identicon

Gangi ykkur vel á morgun!

Þórunn (ókunnug) (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 21:07

13 identicon

Elsku fjölskylda gangi ykkur vel á morgun og ég mun hugsa til ykkar

ein ókun (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 21:49

14 identicon

Elsku hetjan hún Þuríður og öll þið hennar yndislega og duglega fjölskylda fær bestu kveðjur með ósk um gleðilegt og farsælt ár og megi Guð og lukkan fylgja ykkur áfram um alla tíð.

Bestu kveðjur.

Ókunnug sem fylgist með. (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 22:53

15 identicon

Hæhæ elsku fjölskylda. Sendum ykkur baráttukveðjur við erum mjög jákvæð fyrir morgundeginum og sendum ykkur jákvæðnisstrauma

Unnur og Sigurður Garðar (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 00:17

16 identicon

Kæra fjölskylda gángi ykkur vel í dag sendum góða strauma til ykkar.

Svanhildur F Hjörvarsdóttir (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 08:33

17 identicon

Kæra fjölskylda gangi ykkur vel í dag. Hugsa sterkt til ykkar

GunnaG (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 08:54

18 identicon

Gangi ykkur sem allra best í dag. Hugsa mikið til Þuríðar hetju núna!

Gígja (ók) (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 11:21

19 identicon

Kæra fjölskylda

Hugsa til ykkar í dag og bið fyrir góðum fréttum, gangi ykkur vel

Iris (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 11:21

20 identicon

Ég óska ykkur öllum farsældar á nýja árinu og að árið 2009 og komandi ár eigi eftir að veita fjölskyldunni meiri gleði og heilbrigði en síðastliðin ár.   Guð veri með ykkur.  Kveðja að vestan.

Halla (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 15:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband