6.1.2009 | 16:05
Staðfestar fréttir...
...að æxlið hefur minnkað en meira. Sjúbbsjúbbsjarei, trallalala, nananana. Allir kátir í sveitinni með það!! Heyrum betur í læknunum á morgun með áframhaldið hjá hetjunni minni sem kemur endalaust á óvart, verður væntanlega áframhaldandi minnkun á flogalyfjunum á næstu dögum. Það er alltaf svo gaman að fara með Þuríði mína uppá spítala því það eru allir svo hissa á því hvað hún lítur vel út einsog hún var orðin veik fyrir tveimur árum. Einsog einn krabbameinslæknirinn sagði við okkur í morgun þá voru þeir mjög svartsýnir á þeim tíma og útlitið mjög slæmt en hér er brandarakerlingin mín enn og er endalaust kát. Mikið er þetta yndislegt!!
Reyndar fékk fjölskyldan slæmar fréttir í gær og mig langar að senda elsku bestu frænku minni henni Þórdísi og hennar fjölskyldu góðar kveðjur frá okkur hérna í sveitinni. Hugsum mikið til ykkar!!
Þetta líf er oft óréttlát, skil oft ekki tilganginn!! Verum bara þakklát fyrir góða heilsu og ennþá þakklátari að hafa alla okkar ástvini í kringum okkur það er ekkert sjálfgefið í þessu lífi. Njótum dagsins í dag því við vitum ekkert hvar við verðum á morgun. Verum dugleg að gefa knús, segja hvað okkur þykjum vænt um hvort annað og hættum að svekkja okkur á því að geta ekki keypt hitt og þetta, þetta eru dauðir hlutir sem eru einskis virði.
Stórt knús til ykkar allra.
Tilefni dagsins ætla ég að kveikja á nokkrum stjörnuljósum með krökkunum mínum í kvöld og leyfa þeim að njóta þess.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
32 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 4870799
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið er ég innilega glöð að lesa þessa færslu frá þér. En jafnframt samhryggist ykkur með frænku þína.
Og mikið er ég já sammála þér að vera ánægð og sátt við það sem við eigum og spila úr því sem við höfum milli handanna. Við lifum ekki á dauðu hlutunum.
Kærleiksnús ;)
Aprílrós, 6.1.2009 kl. 16:18
Gleðilegt ár fallega duglega fjölskylda, mikið er yndislegt að lesa þessar fréttir af hetjunni ykkar..átti nú reyndar von á þessu því ég trúi á mátt bænarinnar og kraftaverkin og hún Þuríður er svo sannarlega kraftaverk. Ofsalega er myndin af krökkunum 4 falleg hér í færslu neðar þar sem þau liggja á gólfinu og vissulega eruð þið rík elsku hjón. Tek undir orð þín, njótum dagsins í dag og þökkum fyrir hverja stund og notum orðin 3 "Ég elska þig" eins oft og við getum. Sýnum þeim sem bágt eiga skilning og samhug, biðjum bænir, gefum kærleik og knúsum og já ekki má gleyma ljósunum, tendrum þau.
Mínar bænir ávalt til handa ykkur og guð gefi ykkur góða daga, ljós í hjarta og endalausan styrk.
með kærleikskveðju 4 barna mamman
4 barna mamman (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 16:19
Frábærar fréttir!
Þórunn (ókunnug) (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 16:31
Æðislegar fréttir. Megi Guð vera ykkar leiðarljós og gefi ykkur góða daga . Verum dugleg að biðja fyrir þeim sem eiga í erfiðleikum því dagurinn á morgun er ekkert sjálfgefinn.
Kristín (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 16:46
Mikið eru þetta frábærar fréttir af henni Þuríði "okkar". Mér finnst bara að ég eigi smá smá í henni og það er líka svo yndislegt. Hún er eitt allsherjar kraftaverk þessi stelpa. Stórt knús á alla í sveitinni.
Sendi kveðjur til frænku þinnar þó ég viti ekki um hvað málið snýst, en það er ekki aðalmálið heldur hitt að senda henni ljós og kærleika.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 6.1.2009 kl. 16:49
Sendi Þórdísi frænku þinni og hennar fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur
Hólmfríður Bjarnadóttir, 6.1.2009 kl. 16:55
Ynnilegar hamíngju óskir með þessar gleðifrettir elskurnar mínar, bara dásamlegt. Guð veri með ykkur
Kristín Gunnarsdóttir, 6.1.2009 kl. 16:59
en frábærar fréttir ég man bara hvað hún var veik þegar ég kynntist ykkur fyrst á barnaspítalanum og hún er sko sannkölluð kraftaverkakerling munurinn á henni á þessum rúmu 2 árum er ekkert nema frábær vona bara að henni haldi áfram að líða svona vel og þið að hafa það gott KNÚÚS til ykkar allra;*
Tinna Rut (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 17:20
Vá en frábært að heyra þessar góðu fréttir, það yljar manni bara um hjartaræturnar. Hafið það gott kæra fjölskylda og njótið góðu fréttanna!
Gunnur og co (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 17:32
Þetta eru stórkostlegar fréttir, ég lyftist í sætinu af ánægju svo ég get rétt ímyndað mér hvernig ykkur líður.
Helga Magnúsdóttir, 6.1.2009 kl. 17:49
Sæl kæra fjölskylda og innilega til hamingju með þessar frábæru fréttir. Er ekki bara besta blogg ársins búið að líta dagsins ljós og það strax 6. janúar ??? Held að það hljóti að vera :)
Njótið hvers annars, þið eigið það svo sannarlega skilið.
kveðja Kristín
Kristín (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 19:30
Hæ hæ fallegust og til hammó með geggjaðar fréttir ;)
knús í klessu og takk æðislega fyrir litla manninn minn hann er ekkert smá ánægður með bókina sem þið gáfuð honum í jólagjöf ;)
LOVE í kotið ykkar ;)
Þórunn Eva , 6.1.2009 kl. 19:33
Vá...! Frábært .... TIL HAMINGJU!:D
Dagbjört (ókunnug) (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 20:00
Hamingjuóskir með hetjuna ykkar.... bara best....Með leyfi þínu... langar mér að senda stórvinkonu þinni í Grindavík kveðju og hetjunni hennar..takk.............Samúðarkveðjur til Þórdísar og fjölskyldu.Guð veri með öllum.
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 20:02
Vá vá vá enn frábærar fréttir!!! Ég er sjálf í læknisfræði og finnst ekkert smá gaman að lesa svona fréttir, kraftaverkin geta gerst greinilega!!! Engin takmörk og ekkert öruggt.
Njótið dagsins... Ætla líka að kveikja á stjörnuljósi með prinsinum mínum í kvöld, klára jólin með stæl ;)
Gígja (ók) (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 20:18
Vá!! Frábært - bara frábært! :)
Súsanna (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 21:15
Ég mátti til með að senda ykkur hamingjuóskir með niðurstöðurnar. Hún Þuríður ER og VERÐUR kraftaverk. Kveðjur frá okkur að vestan.
Halla (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 22:02
Bara yndislegast :-) Njótið lífsins með hetjunni og hinum gullmolunum ykkar.
Jóhanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 22:13
Innilega til hamingju með frábærar fréttir...... þetta er æðislegt að heyra Þuríður er algjör HETJA
Knús til þeirra systra frá mér
Berglind
Berglind hestakennari :) (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 22:13
Til hamingju med frabaerar frettir
Eirika (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 22:15
Kæra fjölskylda,
gleðilegt ár og innilega til hamingju með þessar frábæru fréttir. Alveg er hún stórkostleg þessi stúlka
knús á ykkur frá okkur
Sigrún og co (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 22:16
Sæl kæra fjölskylda og innilega til hamingju með þessar frábæru fréttir.
Hulda Klara (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 22:45
Ohh, ég er búin að vera að vonast eftir svona fréttum :) Til hamingju með þetta, vonandi heldur kraftaverkið hennar Þuríðar áfram.
kv. ein ókunnug
Ragnhildur (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 23:11
Ég má til að senda ykkur kveðju og óska ykkur til hamingju með þessar frábæru fréttir!
Haldið áfram að vera öll svona dugleg og jákvæð!
Laufey (ókunnug) (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 23:15
Frábærar fréttir, lífið er á réttri leið hjá ykkur
Þórunn (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 23:21
Í dag hef ég verið sorgmædd yfir sársauka mæðra og feðra sem missa börn sín í geðbiluðu stríði.
En Áslaug mín, þessi færsla gladdi mig hjartanlega inn að beini....
Innilega til hamingju með frábærar niðurstöður
Ragnheiður , 7.1.2009 kl. 00:20
Þú færð mitt bros, já, það er fyrirséð og faðmlag fylgir með. Frábærar fréttir! Óska ykkur gleðilegs árs, kæra fjölskylda.
Sólveig (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 01:13
YNDISLEGAST!!! Innilega til hamingju með þessar frábæru niðurstöður öll sömul.
Kv. frá DK
Begga (ókunnug í DK) (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 07:17
Frábærar fréttir, hún er algjört kraftaverk hún Þuríður Arna.
Harpa(Ókunnug) (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 08:18
frábærar fréttir til hamingju med thetta.
María Guðmundsdóttir, 7.1.2009 kl. 08:50
Húrra, húrra, húrra, Það er greinilegt að Guð nær stundum að gera kraftaverk, sem betur fer. Þess vegna er alltaf von.
með kærleikskveðju í húsið frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 09:14
Yndislegt að lesa þessar fréttir. Innilegar hamingjuóskir með niðurstöðuna, kraftaverkin gerast.
Þórdís Kolbrún, Akranesi
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 10:12
Dásamlegar féttir, elsku litla Þuríður Arna er sannkallað kraftaverk!
Sigga (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 10:49
Vávává..mikið eru þetta miklar gleðifréttir! Stórkostlegar alveg hreint..og hún mikil mikil kraftaverkakona.
Gleðilegt ár til ykkar.
...og já orð að sönnu, maður á að njóta þess að vera til og vera dugleg að knúsa sina nánustu.
kveðja,
Ragga Birnusystir
Ragga (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 11:00
Þetta eru fyrstu góðu fréttirnar sem ég les í langan tíma, innilega til hamingju og vonandi verður árið allt í þessum dúr hjá ykkur.
Halla (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 11:43
Elsku stóra yndislega fjölskylda,ég fer aldrey af því að sæta BROSdúllan hefur og verður ALLTAF ætíð kraftaverkabarnið sem valdi réttu fjölskylduna til að alast upp með, þvílík ÁST sem vakir yfir ykkur öllum,gefur svo mörgum aukin þroska og meðvitund um hvernig foreldrar eiga að vera.Yndislegar óskir um gott nýjár.Kv.Hrönn.
Hrönn (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 16:03
Yndislegar fréttir af hetjunni, til hamingju með það
Bergdís Rósantsdóttir, 7.1.2009 kl. 16:47
Til hamingju með þessar frábæru fréttir
Bestu kveðjur
Silla Karen
Silla Karen (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 09:57
Innilega til hamingju með þessar yndislegu fréttir! Gátu ekki verið betri
Guð hefur greinilega bænheyrt okkur. Ég samgleðst ykkur innilega og hef hugsað stöðugt til ykkar.
Þið eruð ótrúlega sterk og gefið öðrum svo mikið með ykkar fréttum.
Emma Vilhjálmsdóttir, 8.1.2009 kl. 16:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.