Leita í fréttum mbl.is

Svoooo myndó!!

Ég er hrikalega myndó, er með köku í ofninum.  Slurp slurp!!  Er á fullu þess á milli að skúra skrúbba og bóna, ohh mæ gerist ekki oft eheh!!  Ætla nebbla að bjóða liðinu mínu í kaffi á morgun, er með smá tilraunir í gangi þannig þá er best að byrja á mínu liði thíhí!!  Vonandi ekki mikil eitrun!!Skömmustulegur 

Annars er önnur tönnin á leiðinni upp hjá mínum manni, mikill pirringur en það er samt ekki ástæðan fyrir því að hann hefur ekki sofið í sex mánuðiGráta.  Erum að fara hitta svefnráðgjafa á mánudaginn þannig vonandi mun það eitthvað lagast eftir það, mar hefur allavega heyrt kraftaverkinn eftir funda við þessar konur.  Plííísssss!!  Langar í svefn!!

Þuríður mín Arna er að sjálfsögðu búin að vera krampandi í dag einsog alla daga, leiðinlegast í heimi!!  Finnst bara vera erfiðara og erfiðara að horfa uppá hana krampa svona, mar venst því að sjálfsögðu ekki að sjá barnið sitt þjást á hverjum degi og taka inn þessar eiturtöflur sem hún þarf að taka inn daglega.  Við vorum einmitt að taka mynd af köldskammtinum hennar til að leyfa ykkur að sjá hvursu mikið magn hún þarf að taka inn 2x á dag.  ATH þetta er BARA kvöldskammturinn hennar.  Læt vita þegar myndirnar eru komnar inn.

Kakan alveg að fara brenna og ekki vill ég bjóða liðinu mínu uppá brennandi köku ehe. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og tólf?
Nota HTML-ham

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband