Leita í fréttum mbl.is

Mjög slöpp

Þuríður mín er mjög slöpp núna, hún er reyndar hitalaus sem er gott og hún er ekki með lungabólgu sem er ennþá betra.  Hún er ennþá mjög lág í öllum gildum en þau hafa hækkað smávegis eða réttara sagt annað þeirra en í hinu er hún ennþá núllinu. 

Hún borðar ekkert né drekkur eða sama sem ekkert sem er ekki gott, reyndi meira að segja troða í hana íspinna þegar ég mætti á svæðið í morgun en það var ekkert að virka.  Mar reynir allt sem manni dettur í hug en henni greinilega líður ekki vel og er eitthvað óglatt þar sem hún neitar öllu matarkyns og öllu líka sem hún elskar.  Ekki gott!!

Einsog ég hef sagt þá er hún farin að sýna alltaf meiri og meiri lömun sem er verst í heimi.  Andsk... djöh... helv...  Höfum líka verið að ræða það EF alltaf EF þetta og EF hitt við doktorana áðan,jú að sjálfsögðu legst mar oft í það versta en vonar það besta og þá vill mar líka vita hvað þá?  En við ætlum ekkert að hugsa meira um það fyrr en annað kemur í ljós, tökum einn dag í einu.

Skil ekki afhverju það þarf að leggja svona á nokkurn mann, afhverju er lífið svona ósanngjarnt.  Afhverju getur hún ekki átt eðlilegt líf, leikið sér við krakkana á leikskólanum(eðlilega meina ég, hún kann nebbla ekkert þannig að leika sér), ekki verið alltaf undir svona stanslausu eftirliti, getum aldrei leyft henni að vera einni fyrir framan blokkina því hún getur fengið krampa og þá má hún ekki vera ein við þurfum að vera hjá henni til að halda í hendina hennar, hún er líka svo hvatvís vegna lyfjanna sem hún er á þannig mar veit aldrei hvað henni dettur í hug.  Ohh ég er svo reið!!

Hvernig fyndist ykkur að vera í fangelsi á ykkar eigin heimili vegna nágranna ykkar?  Nei ég bara spyr!!  Ég er ennþá reiðari núna, grrrrrrrrrrrr!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og einum?
Nota HTML-ham

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband