13.12.2006 | 09:30
Ástæðan væntanlega komin?
Ástæðan fyrir því að Þuríður mín fær svona öskurköst og verður virkilega vond getur verið útaf geislunum, aukaverkanir væntanlega að koma í ljós. Einsog ég hef sagt þá tekur oftast allar aukaverkanir, einsog í gær var hún virkilega reið og lamdi systir sína og það hefur ALDREI gerst. Hún lætur alla vaða yfir sig og segir ekki orð ef einhver er að taka af henni eða lemja þannig hún getur verið með svona mikin hausverk eftir geislana og þá verður hún svona reið.
Við eigum að fylgjast vel með henni í dag og ath hvort hún fái svona köst aftur þá verður hún því verr og miður að fara á sterana, ohhh vildi óska þess að hún þyrfti þess ekki en þá mun henni vonandi líða betur. Bara krossa fingur!!
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Spurt er
Engin könnun í gangi einsog er.
Athugasemdir
Hæ! Ég er búinn að vera lesa hér í smá tíma og ætla að koma aftur og lesa meira... Það er ekki mikið sem ég get sagt, nema kannski það að ég lít upp til svona manneskjur sem þig.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 13.12.2006 kl. 09:48
Ég krossa fingur!! Vonandi heldur hún annars áfram að vera svona hress eins og þú lýstir í síðasta bloggi ;) Þú átt hrós skilið líka fyrir að vera svona hrikalega dugleg að blogga með öllu þessu sem þú þarft að ná að gera Áslaug mín ;) Gangi þér vel með litla kútinn - vonandi nær hann sér í eyrunum! KNÚS
Elsa Nielsen, 13.12.2006 kl. 10:00
Ég dáist alveg af ykkur þið eruð algjörar hetjur !!
Og við hjálpumst að að biðja þess að hún sleppi við þessa stera ooo þeir eru hræðilegir :-(
Baráttukveðjur Guðrún Bergmann og co.
Guðrún Bergmann Franzdóttir (IP-tala skráð) 13.12.2006 kl. 11:19
segji það sama og Gunnar. Þið eruð hetjur...
Ólafur fannberg, 13.12.2006 kl. 12:26
Sæl veriði,
Ég er kennari og vildi nú bara hrósa þér fyrir fína stafsetningu. Býst við að þú hafir meira en nóg annað að gera en að leiðrétta örfáar innsláttarvillur (að gefnu tilefni :) Best að brosa bara yfir því hvað fólk getur verið klikkað.
Ég á lítinn eyrnastrák sem var svona lasinn aftur og aftur sl. vetur og fór á síendurtekna penisillínskammta sem engu skiluðu með tilheyrandi kostnaði og óþægindum. Hann endaði með því að fá rör og er búinn að vera mjög góður í eyrunum síðan, þvílíkur munur.
Gott að heyra að litla snúllan er krampalaus og vonandi virkar þessi meðferð í átt til bata.
Bestu jólakveðjur,
Ein ókunnug sem skoðar reglulega en kvittar ekki fyrr en nú :)
Gyða (IP-tala skráð) 13.12.2006 kl. 12:53
Elsku Áslaug og fjölskylda
Höldum áfram að biðja og biðja fyrir henni Þuríði og svo að hann Theodór fari nú að svona meira á næturnar
Svo bíð ég eftir að fá að koma og skoða nýju íbúðina
kveðja Ása
asa (IP-tala skráð) 13.12.2006 kl. 13:19
Æjji en leiðinlegt að heyra af öskurköstunum.. en rosalega fannst mér gaman að lesa færsluna fyrir neðan um hvað hún er forvitin og vill læra!.. Það er ekki hægt að koma því í orð hvað þið eruð sterk!..
Greyið Theodór..! Vonandi fer hann að sofa betur á næturnar.. þið hafið líka alveg þörf fyrir hvíld þú og Óskar Örn!.. Guð blessi ykkur!
(og gefi þer fleiri tíma í sólahringinn)
Kær kveðja frá okkur pabba!
Bára frænka (IP-tala skráð) 13.12.2006 kl. 13:54
Hugsa til ykkar daglega og þið eruð hetjur. Vonandi gengur ásdandið á Theodóri fljótt yfir. Bið fyrir ykkur
kv. Inga Birna
Inga Birna Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 13.12.2006 kl. 19:39
Frábært að flogin hafa minnkað. Þetta kemur allt skref fyrir skref!.
Mér finnst frábært að lesa það sem þú ert að skrifa. Ég þekki heilakrabbamein af eigin reynslu, og upplifði mjög áhugavert sumar, nú á þessu ári. Ég veit að konan mín hafði mjög mikið á sinni könnu, því að við eigum þrjú born, eins og þið. Ég held nefnilega að fólk geri sér engan vegin grein fyrir að þetta snýst ekki bara um veikindi Þuríðar og það að þurfa að fara með hana upp á sjúkrahús á hverjum degi. Það þarf líka að sjá um alla fjölskylduna, s.s. kaupa í matinn, elda, þrífa, þvo þvott, kaupa jólagjafir, undirbúa jólin og vaka á nóttinni ef önnur börn eru brátandi. ÞETTA ER EKKERT SMÁRÆÐI!!! Núna í fyrsta sinn þegar ég les bloggið þitt, næ ég virkilega að meta það sem konan mín gerði fyrir mig, og mín fjölskyldu. Það má vera að við sem erum með krabbamein séum hetjur. Maður þarf hins vegar að vinna sér það inn að vera kallaður hetja. Þuríður er búin að berjast í 2 ár, og verðskuldar því svo sannarlega að vera kölluð hetja. En mestu hetjurnar, að mínu mati, eru þið sem standið nálægast okkur. Og því lýsi ég því yfir að ÞIÐ, Ásdís og Óskar, eru Hetjur! BaráttukveðjurÞórir Þórisson, MinneapolisÞórir Þórisson (IP-tala skráð) 13.12.2006 kl. 23:29
Ps. Úbbs..fyrri athugasemt mín kom hræðileg út (en lífið sjálft er nú líka fullt af spurningamerkjum)
Og...Já- ég veit að þú heitir "Áslaug". bara smá heilaæxlis klikk
Þórir Þórisson (IP-tala skráð) 13.12.2006 kl. 23:39
Ég krossa fingur og kveð bænir á hverju kvöldi!Og hugsa til þuríðar Örnu!
Megi guð vera hjá ykkur hetjurnar mínar!
Kveðja Kristín Hjörvarsdóttir
Kristín Hjörvarsdóttir (IP-tala skráð) 15.12.2006 kl. 19:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.