Leita í fréttum mbl.is

Getur verið að samanlagðar sálir geti einhverju breytt?

Æjhi ég vildi óska þess að allar okkar bænir kæmu til skila til hans þarna uppi, ótrúlega finnst mér þetta allt saman ósanngjarnt einsog ég hef oft sagt áður.  Þetta er erfiðast í heimi sem ég er að upplifa með dóttir mína og mér finnst það svo sárt að ég get ekkert gert til að hjálpa henni úr veikindum sínum. 

Í morgun þegar við vorum staddar á "krabbameinslækningadeildinni", hún var sofnuð eftir svæfinguna og það var byrjað að geisla og ég sat frammi á meðan fékk ég alltíeinu þennan stóra hnút í magan.  Fullt af fólki var að koma inn til að komast í geislameðferð og það var komin smá biðröð, ég fann ótrúlega til með þessu fólki.  Ég veit náttúrlega ekkert hvursu veikt það sé, á það mikið eftir? fær það ekki að sjá börnin sín vaxa og dafna? dekra við barnabörnin sín?  Það flugu svona spurninga um kollinn minn og þá fór ég líka að hugsa um Þuríði mína. 

Það hefur verið sagt við okkur að hún eigi ekki mikið eftir sem er sárast í heimi og ég vill ekki trúa því, ég tala ekki mikið um dauðann því það er eitthvað umræðuefni sem ég vill forðast en ég hugsa rosalega mikið um hann.  Hvað ef/þegar það gerist?  Hvað á hún langt eftir? Geta þeir eitthvað hjálpað henni?  Verða þetta hennar síðustu jól? ég skelf alveg við að skrifa þetta og hnúturinn í maganum mínum stækkar endalaust mikið, þetta fór ég alltíeinu að hugsa þegar ég beið eftir henni í geislanum.  Fá systkin hennar ekki að kynnast henni?  Hún Þuríður mín nefnilega heillar alla hvert sem hún fer, hún er yndislegast barn í heimi.  Hún hefur gefið okkur svo mikið, við  höfum lært ótrúlega mikið í gegnum hana sem manni langar ekki læra allavega ekki í gegnum barnið sitt.  Við kunnum að meta allt ótrúlega mikið, við reynum að nýta allan þann tíma sem við höfum við vitum heldur aldrei hvenær okkar tími kemur?  Við þurfum að nýta okkar tíma ótrúlega vel, alltaf er ég að pæla hvað ég geti gert til að eignast sem skemtilegustu minningarnar með börnunum mínum og þau með okkur?

Við reynum að vera ótrúlega dugleg að taka myndir af börnum okkar sem eru dýrmætustu minningar sem maður eignast, "Þórdís farðu og keyptu þér nýja myndavél og taktu skemmtilegar myndir af börnum þínum um jólin"Kissing.   Þetta er allt svo dýrmætt!!

Æjhi þetta var sem flaug um kollinn minn í morgun, hvað tíminn er dýrmætur og hvað ég verð að nýta hann vel.  Erfitt að vita ekki neitt og erfitt að vita hvað þessi geislameðferð er að gera fyrir hana Þuríði mína ef hún er að gera eitthvað en eitt er víst ég verð að halda áfram að halda í vonina og biðja fyrir kraftaverki.

Takk fyrir mig í dag og endilega munið að horfa á Kastljós í kvöld og svo segi ég ykkur í kvöld/morgun hvaða blað þið eigið að kaupa næst.Whistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þórunn Eva

gangi ykkur allt í haginn og skemmtileustu minningarnar eru þær að brosa og hlæja og vera góð við hvort annað það er ekki alltaf hægt að finna upp á nýju og nýju.... hláturinn þeirra er það dýrmætasta og að þau knúsi mann svolítið reyndu bara gera sem mest af því...... ég þekki þig ekki Áslaug en hef séð þig svona annað slagið og þú virkar á mig sem mjög yndisleg kona Óskar hefði ekki getað náð sér í betri lýfsförunaut.... þó svo að ég þekki hann ekki mkið í dag þá þekkti ég hann hérna einu sinni og hef ég einhvrn veginn alltaf litið upp til hans veit ekki af hverju en ég fæ sömu tilfinningu þegar að ég er nálægt þér... þið eruð án efa yndislegasta fólk sem ég veit um... :)

p.s ættla að horfa á ykkur í kvöld.... :)

Þórunn Eva (IP-tala skráð) 14.12.2006 kl. 12:37

2 Smámynd: Elsa Nielsen

Elsku Áslaug - ég mun vera með kveikt á sjónvarpinu í afmælinu í kvöld og fylgist með ;)...svo verðið þið gærurnar að kíkja á Hemma Gunn...held að Anna Linda mín sé þar í viðtali - en hann kom á leikskólann um daginn og tók viðtal við nokkra krakka. Hún benti allavega um daginn á Hemma sem var þá í sjónvarpinu og sagði: "Hey mamma - þessi gamli maður var að tala við mig í leikskólanum" ;) Ég mæti svo í kvöld ef þið verðið ennþá í stuði þegar gestirnir mínir eru farnir!!..annars góða skemmtun og haltu áfram að safna yndislegum og góðum minningum með fallegu fjölskyldunni þinni!! KNÚS

Elsa Nielsen, 14.12.2006 kl. 12:53

3 identicon

Hlakka til að sjá ykkur í kvöld í TV

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 14.12.2006 kl. 14:01

4 identicon

Elsku Áslaug mín

Já það er það erfiðast í heimi að þurfa að horfa uppá barnið sitt veikt og líka að geta ekkert gert til að láta meinið fara í burtu en þið eruð að gera svo margt skemmtilegt með börnum ykkar haldið því áfram og munið það að við erum bara með börnin okkar að láni

kveðja Ása

p.s ég ætla að vona að kastljós verði endursýnt seint í kvöld

asa (IP-tala skráð) 14.12.2006 kl. 15:35

5 identicon

Kæra fjölskylda.

Með tárin í augunum vil ég segja að ég hugsa til ykkar daglega og bið fyrir ykkur á hverju kvöldi.

Þið eruð hetjur og haldið áfram að vera svona sterkir og duglegir einstaklingar.

kveðja Inga Birna

Inga Birna Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 14.12.2006 kl. 20:56

6 identicon

takk fyrir síðast! gaman að hitta ykkur gærur aftur og sjá krakkana...algjörar snúllur! ég horfði á kastljósið á netinu þegar ég kom heim....þið tókuð ykkur vel út! ;) kveðja Eva Pet

Eva Pet (IP-tala skráð) 14.12.2006 kl. 23:28

7 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég las það sem þú skrifaðir og fann að það klíjaði í auganu... það var tár. Knús frá Svíþjóð. 

Gunnar Helgi Eysteinsson, 15.12.2006 kl. 07:08

8 identicon

Þið voruð ótrúlega fín í Kastljósinu, það var alveg yndislegt að sjá hana Þuríði litlu loxins, eftir að hafa lesið bloggið hennar í marga mánuði :o)

Þið eruð yndislegt og fallegt fólk, að utan og innan...

Sara (IP-tala skráð) 15.12.2006 kl. 09:10

9 identicon

Hægt að horfa á Kastljósið hérna:
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4301675/2 

Sá ykkur í DV í dag. Bestu kveðjur, JBJ 

http://joi.betra.is (IP-tala skráð) 15.12.2006 kl. 13:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband