Leita í fréttum mbl.is

I feel good dudududu

Þetta er fyrsta skipti í eitt og hálft ár rúmlega að við munum ekki alveg síðan Þuríður mín Arna fékk krampa síðast, við munum ekki hvort það var á fimtudag eða föstudag.  Oh boy!  Yndislegast!!  Henni hefur heldur ekki liðið svona vel í rúmt eitt og hálft ár þegar hún var krampalaus í þrjá mánuði en svo kom bomban eftir það.  Mér finnst þetta svo æðislegt, yndislegt og frábærast að sjá hana svona hressa og káta.  Við reynum bara að nýta hvern dag fyrir sig maður veit aldrei hvenær/hvort kemur aftur, hún ætlar greinilega að njóta jólana og líka farin að tala dálítið um þau sem mér finnst skemtilegast.

Einsog ég hef oft sagt áður þá hafa tvö síðustu jól verið mjög slæm hjá henni, uppdópuð og veit ekkert í sinn haus en núna ætar hún sko að njóta þess að rífast um pakka við systur sína og mig við að fá að opna gjafirnar hans Theodórs eheh!!  Okkur mæðgunum finnst nefnilega skemtilegast að opna gjafir og ég hef verið svo heppin að fá að hjálpa þeim.  Einsog núna hefur Theodór minn Ingi ekkert vit að opna sína, hendi bara smá pappír í hann þá verður hann kátur eheh þannig við mæðgur verðum heppnar þetta árið að fá að hjálpa honum.  Jíbbíjeij!!

Mér líður eitthvað svo vel í hjartanum og svei mér þá, þá er smá tilhlökkun komin til jóla.  Jiiiih dúddamía held að mér sé farin að líða einsog litlu barni með jólin að gera, hlakka svo til að sjá hana Þuríði mína spenntasta og að sjálfsögðu hin tvö líka en hef litlar áhyggjur af þeim.

Einsog konurnar uppá geislun sögðu þá hafa þær ekki séð hana svona hressa og glaða síðan hún byrjaði í geisluninni og það er nú bara rúm vika síðan.  Það er eitthvað að gerast hjá henni Þuríði minni þótt engin viti hvað og afhverju hún sé svona hress þá ætlum við allavega að njóta þess í botn og halda áfram að fara með bænirnar okkar.

Maður sé strax hvað þroskinn hennar fer fram við þessa góðu daga, þannig ef hún fær tækifæri til þess þá veit ég að hún mun ná þessu næstum því alveg upp á góðum tíma.  Ohh þetta er eitthvað svo æðislegt, þið getið ekki ímyndað ykkur hvað mér líður vel núna.

Fyrst að mér líður svona vel ætla ég að launa mér því að fara útí búð og kaupa mér einn bol fyrir jólin ehehe, það gerist alltof sjaldan en mig vantar víst einhverjar flíkur yfir hátíðirnar og ég hef ekki haft orku eða löngu til þess að velja mér eitthvað en ætla að reyna láta verða af því í dag eða á morgun.

Slauga sú hressasta á svæðinu en væri ennþá hressari ef ég fengi nokkra klukkutíma svefn á nóttinni.  Theeeeeeeeeeeeeeooooodóóóórrrrrr!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æðislega gaman að heyra :)  Hugsa alltaf til ykkar & kíki á hverjum degi.

Baráttukveðjur, Lilja S.

Lilja S. (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 10:34

2 identicon

Yndislegt!

ia (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 10:40

3 identicon

Frábært að Þuríði líði betur:) Hlakka til að hitta ykkur fljótlega og sjá skvísuna í góðum gír.

Vonum að þessi tími sem hún er krampalaus og í góðu skapi endist sem lengst.

Bestu kveðjur
Vigga

Vigdís Björk (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 10:42

4 identicon

Alveg frábært.  Vona bara að þetta góða ástand vari sem lengst.

Eigið gleðilegan dag og daga.    Kær kveðja, Stella A.

Stella A. (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 10:58

5 identicon

Gott að heyra elsku ásluga mín að það eru góðir dagar,bara það besta í heimi Sjáumst fljótlega í vikunni.Þangað til knús og kossar.

Elskum ykkur

Hanna systa (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 11:21

6 identicon

Ohh það er yndislegt að lesa svona góðar fréttir af ykkur!!  
Og líka rosalega falleg greinin sem var skrifuð í DV um síðustu helgi. Fallegar myndirnar af ykkur og svona
Við vinkonurnar vorum með smá svona "Englasöfnun" fyrir ykkur um helgina, söfnuðum allar saman englunum okkar og sendum ykkur ALLA þá engla sem við gátum fundið!! Þannig að fallega nýja íbúðin ykkar er FULL af englum núna!!

Knús til ykkar allra, og ég óska ykkur öllum innilegra gleðilegra og yndislegra jóla!!
Kv. Erna Kristín Ottósdóttir

Erna Kristín Ottósdóttir (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 11:25

7 identicon

Frábært að heyra... góða skemmtun í bolaleiðangrinum   Og Þuríður Arna takk ÆÐISLEGA fyrir knúsið og spjallið í morgun  ohhh þetta var æðislegt. 

Knús Lilja Kr.

Lilja Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 11:26

8 Smámynd: katrín atladóttir

æ þetta er frábært að lesa:) maður brosir alveg hringinn!

hafið það gott og góða skemmtun í að kaupa föt! það er skemmtilegt:) 

katrín atladóttir, 19.12.2006 kl. 11:35

9 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Frábært... Njótið vel

Gunnar Helgi Eysteinsson, 19.12.2006 kl. 11:36

10 identicon

Hæ, hæ!

Gaman að sjá hvað allt gengur vel. Hugsa til ykkar á hverjum degi. Gangi ykkur vel

Ólöf Inga (Hönnu Þóru vinkona)

Ólöf Inga (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 11:45

11 Smámynd: Elsa Nielsen

MEIRIHÁTTAR!!

KNÚS

Elsa Nielsen, 19.12.2006 kl. 11:48

12 identicon

Yndislegt  Ég samgleðst ykkur innilega. Við höldum áfram að biðja fyrir dúllunni. Guð veri með ykkur öllum.

Ólöf (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 13:34

13 identicon

Frábært og  yndislegt að heyra...maður fær bara tár í augun og fullt af gleði í hjartað. SKemmtu þér vel í fataleiðangri. Knús og kossar. Kristín Amelía

Kristín Amelía (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 15:40

14 identicon

Frábært að lesa þetta innlegg.  Það er eins og jólin séu að koma snemma í ár ;-)  Vonandi endast þessu góðu dagar sem lengst.   Hafið það sem allra best um hátíðirnar

Hrafnhildur Ýr (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 15:43

15 identicon

Halló frábæra fjölskylda. Ég er mamma Kristínar Amelíu sem vinnur á Hofi og amma Bergs og Arnars. Ég hef fylgst með ykkur í gegnum þau og þegar Bergur er hér hjá mér þá biðjum við saman fyrir Þuríði Örnu og ykkur öllum í bænunum. Ég óska ykkur gleðilegra jóla. Jólakveðja Þura Bergs.

Þura Bergs (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 15:51

16 identicon

Gott að heyra hvað þuríður er hress. Haifið það gott um hátíðarnar kær kveðja konan með pakkann í Boston fluginu ( Guðrún )

Guðrún (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 16:43

17 identicon

Frábært  Æjjj hlakka svo til að koma í heimsókn, þegar þessi þlessuðu próf eru búin.... Ef þú ert ekki búin að kaupa þá get ég komið með þér á föstudagsmorguninn (eða fyrir 2, er að fara í klippingu kl.2) eða á fimmtudaginn eftir próf  Mig vantar líka bol

Oddný (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 17:57

18 identicon

Þetta eru frábærar fréttir.  Gangi ykkur vel

 kv Díana Guðjóns og fjölskylda

Díana Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 21:50

19 identicon

Frábært að heyra og ég vona að guð gefi að þetta sé komið til að vera .

Knús á ykkur öll !!!

 Kv Ásta Lovísa

Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband