Leita í fréttum mbl.is

Nokkrar línur

Jólin hafa verið yndisleg hjá okkur fjölskyldunni, þá meina ég öllum.  Þuríður Arna mín er búin að vera súperhress, naut sín í botn að opna alla pakkana sína sem voru rosalega margir.  Systurnar voru ótrúlega góðar á aðfangadag, hjálpuðust að að raða pökkunum undir tréið og létu þá alveg í friði þanga til þeim var rétt til að opna og litli skriðdrekinn minn hann Theodór hefur meir að segja látið þetta allt saman vera.  Hefði nú reyndar ekki trúað því á drenginn þar sem hann er algjör gaur en þau koma manni alltaf meira og meira á óvart þessi snillingar.  Stelpurnar sátu bara einsog einhverjar prinsessur sem þær eru nú ehe og biðu eftir að þeim var rétt pakkarnir, ótrúlega góðar og yndislegar.

Þessi jól voru sem sagt æðisleg, gott að fá að njóta svona góðra jóla með Þuríði minni og hinum einsog ég hef oft sagt áður þá voru tvö síðustu ár hjá henni Þuríði minni um jólin mjög slæm.  Uppdópuð og gat ekki notið neins þannig þetta hefur verið alveg yndislegt.

Pælið í því að í dag eru 12dagar síðan Þuríður mín krampaði síðast og engin skilur neitt þá síst læknarnir einsog oft áður, þetta er alveg æðislegt!!  Þótt henni líði svona vel þá er einhver hnútur í maganum mínum, æjhi mér kvíður samt fyrir næstu dögum/vikum því ég er svo hrædd um að þetta sé lognuð á undan storminum.  Æxlið getur nefnilega núna farið að bólgna eftir geislana og þá versna kramparnir "tífalt" og þá verður hún líka slæm en ég ætla samt að halda áfram að njóta þessa góðu daga sem eru æðislegir.

Það er svo margt að hlakka til þannig ég ætla að reyna halda áfram að hlakka til skemmtilegu hlutana sem koma á næstu dögum og ég segi ykkur kanski frá þeim á næstu dögum.  Góðar jólagjafir sem við höfum fengið frá nokkrum "jólasveinum", vííííí!!!

...farin að sinna börnunum, ég lét nefnilega stelpurnar vera í fríi milli jóla og nýárs í leikskólanum.  Ætlum bara að njóta þess að vera saman án þess að þurfa fara uppá spítala á hverjum degi, þannig næsti leikskóladagur verður ekki fyrr en 3.janúar.

"Kristín Amelía, hún Oddný Erla mín fékk baby born dúkku í jólagjöf og veistu hvað hún skírði hana, jú Krístínu Amelíu eheh".  "Það er greinilega orðin söknuður á þessi heimili".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

HÆ HÆ ÁSLAUG OG CO... :)

gaman að lesa hvað þið höfðuð það gott og hafið það gott og að þið hafið verið ánægð með gjafirnar... :)

koss og knús Þórunn og Jón Sverrir

GLEÐILEGA HÁTÍÐ

þórunn Eva (IP-tala skráð) 27.12.2006 kl. 14:04

2 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Ágæta fjölskylda.  Umfjöllunin í DV vakti athygli mína.  Ég veit að það reynir mikið á við svona aðstæður.  Ég veit að það skiptir kannski ekki öllu máli að einhver úti í bæ sendi ykkur hlýjar hugsandir en ég geri það samt. 

Gangi ykkur vel og megi guð vera með ykkur

Sveinn Ingi Lýðsson, 27.12.2006 kl. 14:22

3 identicon

Váá frábærar fréttir :-)

Eigið svo sannarlega skilið að njóta hátiðanna sendum ykkur okkar bestu óskir um gleðilega jól guð veri með ykkur kærar kveðjur Guðrun,Jói og dætur

Guðrún Bergmann Franzdóttir (IP-tala skráð) 27.12.2006 kl. 19:21

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég trúi því að það skipti stóru máli að ókunnugt fólk sendi hlýjar kveðjur... Stundum nægir að vita það að fólk hlusti... bara hlusti.

Ég "hlusta" á hverja færslu

Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.12.2006 kl. 22:45

5 identicon

Engin flog!!!!..... það er nú aldeilis frábært. Það þýðir greinilega að geislameðferðin hefur haft jákvæð áhrif. Það er alveg rétt hjá þér að það gætu farið að koma fram bólgur við svæðið þar sem æxlið er staðsett,en..................... það getur líka vel verið að það komi ekki fram neinar bólgur!!!!!

Njótið Lífsins!

Þórir

Þórir Þórisson (IP-tala skráð) 27.12.2006 kl. 23:21

6 identicon

Hún Stella sem vinnur á Hofi hringdi í mig og sagði mér frá skrifunum þínum um Baby Born dúkkuna og ég fékk bara tár í augun. Hún Oddný Erla mín er nú engri lík. Hún er yndisleg lítil vinkona sem ég sakna mikið. Ég er búin að fylla fallega vagnin minn af konfekti yfir jólin og horfi á hann með hugsun til ykkar allra. Frábært að heyra með eldri vinkonu mína. Það var svo sannarlega komin tími á að hún fengi yndisleg góð jól með ykkur. Njótið ykkar vel í fríinu. Stefni á að kíkja á ykkur fljótlega á nýju ári ef það er í lagi;) Knúsaðu Oddnýju Erlu fyrir nafnið og hin fallegu börnin þín líka. Kær kveðja Kristín Amelía.

Kristín Amelía (IP-tala skráð) 28.12.2006 kl. 01:04

7 identicon

Alltaf velkomin Kristín mín Amelía, gvvvuðð mér finnst ég vera tala við dúkkuna eheh!!

Áslaug Ósk Hinriksdóttir (IP-tala skráð) 28.12.2006 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband