13.10.2009 | 13:28
Flensan mætt í sveitina
...og það var hann Theodór minn sem fékk hana fyrstur og er svakalega glaður með það hehe, finnst geðveikt kúl að vera lasinn heima. Reyndar finnst honum leiðinlegt að komast ekki á fótboltaæfingar og talar mikið um Arsenal, Liverpool og Manchester því hann ætlar að sjálfsögðu að spila með Arsenal í framtíðinni. En í staðin þá situr hann með skriffærin og skrifar niður nöfnin okkar og vill læra stafa ALLT. Snillingur!! Núna rétt í þessu var hann orðinn leiður að skrifa nöfnin þannig hann tók bara tússinn og tússaði bróðir sinn í framan og þá er ég sko ekki að meina eitt strik heldur allan í framan. Hahahaha!!
Þuríður mín er hressari þessa dagana, fékk langa helgi og það dugði fínt fyrir hana og svo verður ennþá betra fyrir hana að fá vetrarfríið sitt sem verður eftir eina og hálfa viku, fær að hvílast dáltið sem hún þarf mikið á að halda þessar vikurnar. Hún hefur sýnt miklar framfarir í sjúkraþjálfuninni og mun fara svo í sjúkraþjálfun á hestum eftir áramót sem hún getur ekki beðið eftir.
Hinrik minn er farinn að standa upp með öllu og labbar með en veit ekki hvað hann á að gera þegar hann er kominn útá enda á sófaborðinu heheh. Hans helsta áhugamál er að gramsa í skúffunum þá sérstaklega þar sem dvd diskarnir eru. Hann er búinn að vera með í eyrunum í marga mánuði, togar mikið í eyrun og sefur illa á nóttinni en aldrei hafa þessir blessuðu læknar viljað gera neitt því það er ekki nógu mikil sýking þannig ég ákvað að fara með hann til eyrnalæknis og viti menn drengurinn mjög kvalinn í eyrunum og vantar heilmikið uppá heyrnina hans vegna þess. Þannig í næstu viku fær drengurinn rör í eyrunum og þá förum við kanski að fara sofa á nóttinni og hann að heyra mig "skamma" sig.
Oddný mín er bara hress, elskar fimleikana og æfir sig hérna heima á hverjum degi enda er líka rosalega gaman að sjá framfarirnar hjá henni. Ég bíð eftir flikkflakkinu, hún gerir nefnilega þessar erfiðu æfingar einsog ekkert sé. Um leið og hún er búin á erfiðari þrekæfingu (er sko ekki að grínast með erfiðin) sem tekur einn og hálfan tíma þá spyr hún hvenær næsta æfing er hehe.
Sjálf er ég að drukkna í lærdómi, veit ekki alveg afhverju ég var e-ð að stressa mig á því að reyna útskrifast í vor frekar að taka aðeins minna núna og útskrifast af tveimur brautum um jólin eftir ár. Ætti t.d. að vera læra núna en nenni því enganveginn, aaaarghhh!
Ætla frekar núna að taka upp prjónana og klára pilsið á Þuríði mína, er búin með á Oddnýju mína.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
342 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það hefur verið sjón að sjá litla manninn eftir duglega skrifarann. Alltaf gaman að heyra fréttir af ykkur. Guðsblessun í bæinn .
Kristín (IP-tala skráð) 13.10.2009 kl. 17:25
Kær kveðja..mikið eru þau góð öll.
Ragnheiður , 13.10.2009 kl. 18:08
Áslaug mín...Ég segi bara slakaðu á með lærdóminn....bara fyrir ÞIG og þína yndislegu fjölsk... .
Verð nú ekki sáttur ef Theodór Fylkismaður og KR-ingur að sjálfsögðu... fer í smáliðið Man.utd...En held með honum samt...
Er hann að gera sig klárann( með þessum snemmbúna lærdómi) í samningaviðræðurnar seinna meir þegar tilboðin streyma inn..?
Þuríður blessunin trompar allt...og vinnur,enda langbest..
Vona að heyrnin lagist hjá Hinrik kallinum...þó ekkert sé gaman að heyra "skammir"
Það er spurning hvort þið verðið að flytja til Rússlands vegna hæfileika Oddnýar í fimleikum og olympíuleikarnir klárir....
Skari kallinn..þegar þú hendir honum útá pall....grillar hann BARA lamb,það er náttúrulegsa best...En það er spurning að gefa honum eitt staup með einum köldum og reyna á hann með pylsur á grillinu...
Kærleikskveðja.....
Halldór Jóhannsson, 13.10.2009 kl. 21:50
Gott að Þuríður er hressari og er í framför. Flensa í hraustum strák er ekki áhyggjuefni. Tókstu nokkuð mynd af listaverkinu á Hinrik. Gangi ykkur allt í haginn.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 14.10.2009 kl. 01:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.