7.12.2009 | 11:25
Er komin í fríííííí ......þar að segja skólafrí
Mikið er æðislegt að þurfa ekki að vera með lærdóm hangandi yfir sér næsa mánuðinn í staðin er ég núna að hjúkra Theodóri mínum sem var í hálskirtlatöku á föstudaginn og Oddnýju Erlu minni sem vakti mig svo skemmtilega í nótt með upp og niður. En mikið er nú samt gott að vera með svona "venjuleg" veikindi á bænum.
Þuríður Arna mín var reyndar í heilariti í morgun og fær væntanlega úr því í lok vikunnar en það kemur að sjálfsögðu bara flott úr því og við munum geta haldið áfram að minnka flogalyfin hennar um áramótin en ekki hvað? Jú einsog þið vitið fékk hetjan mín gleraugu fyrir ekki svo mörgum dögum en hún var sú allra óhamingjusamasta fyrir þann tíma en þvílík og önnur eins breyting á einu barni eftir að hún fékk gleraugun. Þetta er allt annað líf fyrir hana, loksins farin að sjá eitthvað, fyrir þann tíma þegar hún var að skrifa, skrifaði hún MJÖÖÖÖÖG stóra stafi og frekar bjagaða og maður hélt að sjálfsögðu að það væri vegna þess að hún ætti svo erfitt með fínhreyfingarnar en nei nei hún bara sá ekki neitt sem hún var að skrifa. Hún var nefnilega að skrifa nafnið sitt fyrir mig og það var bara einsog ég hafi skrifað það (já eða svona næstum því), ohh mæ god hvað það var fallega skrifað. Hún er líka farin að sjá það sem hún les, LOKSINS!! ...og að við skulum ekki hafa fattað að hún hafi ekki séð neitt, hún hefur líka bara haldið að þetta ætti að vera svona. Greyjið!! Hún tekur heldur ekki af sér gleraugun því henni finnst þetta svo miklu betra, um leið og hún vaknar á morgnanna þá setur hún þau upp, óumbeðin. Bara flottust og duglegust!!
Ég held að það stefni í bestu jól Þuríðar minnar og að sjálfsögðu okkar þá líka, jú jólin í fyrra voru þau bestu en þau verða bara betri og betri. Fáum tvö jól í röð sem verða "án veikinda", best í heimi!!
Í þessum töluðum orðum er ég að hjúkra sjúklingunum mínum tveimur og þess á milli skelli í ofninn tveimur sortum af smákökum og stefni í að hnoða í lagtertu. Mmmmmm, gæti ekki verið betra. Jú mín var að fá sína fyrstu einkunn í Stjórnun sem ég að sjálfsögðu brilleraði í en ég var að skrá mig á tvær brautir eftir áramót þannig eftir ár er stefnan sett á að útskrifast af tveimur brautum, ég veit ég er orðin kolrugluð.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Orðin kolrugluð segir þú, ha ha. En í alvöru þú ert svo dugleg og bjartsýn að það er beinlínis heilsusamlegt að lesa færslurnar þínar. Theodór orðinn kirtalaus og Oddný fór í smá dítox heima hjá sér. Það albesta eru gleraugun hennar Þuríðar og hvað hún er í mikilli framför.
Og þú að læra stjórnum sem er frábært, en hvenær sefur þú mín kæra bloggvinkona. Gangi ykkur allt í haginn.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 7.12.2009 kl. 19:08
Mér finnst alltaf jafn æðislegt að koma hingað og lesa bloggið þitt, sérstaklega ef maður er búinn að vera að lesa einhverjar leiðinlegar fréttir, þá lyftist maður alveg upp. Þú ert alveg fáránlega dugleg og að þú skulir standa þig svona vel í skólanum er líka alveg með ólíkindum! Hlakka til að lesa meira skemmtilegt, og skilaðu batakveðju til krakkanna. Hlakka líka til að heyra hvað kemur út úr ritinu!
Kveðja, Ásdís.
Ásdís (IP-tala skráð) 7.12.2009 kl. 21:17
Halldór Jóhannsson, 7.12.2009 kl. 22:28
Frábær lesning. Kveðja frá Þorgerði.
Þorgerður (IP-tala skráð) 8.12.2009 kl. 08:53
Frábært! Já það er merkilegt hvað gleraugu geta gert ;) Vonandi verða jólin ljúf og góð við ykkur og að allir verði hressir og hraustir
Kveðja,
Helga skagaskjáta
Helga Arnar (IP-tala skráð) 8.12.2009 kl. 11:19
Ég er svo meir að ég fæ stundum tár í augun við lesninguna hérna. Ég finn alveg stoltið sem hríslast um kroppinn þegar þú lýsir því hvað hún skrifaði nafnið sitt fallega.
Yndislegt að hún skuli finna það hvað gleraugun gera henni gott.
Jólaknús frá bláókunnugri í DK ;o)
Begga Kn. DK (IP-tala skráð) 8.12.2009 kl. 11:32
þú er frábær og dugleg , gaman að fá að fylgjast með ykkur , bláókunnuð , maður hættir að kvarta yfir minstu smámálum þegar maður les þínar færslur , vildi að ég hefði þessi ofurkrafta stundum , hehe er nú oftast með þá .
jólaofurknús
Dagrún (IP-tala skráð) 8.12.2009 kl. 19:59
Bara flottust vínkona og líst vel á þessar tvær brautir þú verður orðin flott þegar útskriftin verður.... svo er það bara háskólinn og ekkert annað!!!!!
Yndislegt að heyra með hana Þuríði flottustu;) Ótrúlegt hvað sjónin er mikilvæg og megum þakka fyrir hana.
Lúv.
Brynja (IP-tala skráð) 9.12.2009 kl. 10:44
Kristín (IP-tala skráð) 9.12.2009 kl. 12:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.