Leita í fréttum mbl.is

Fyrir tveimur árum...

Fyrir tveimur árum síðan tók Þuríður Arna mín fjórar tegundir af flogalyfjum, krabbameinslyf, lyf vegna skjaldkirtils (sem hún tekur ennþá í dag) og svo lengi mætti telja.  En Í DAG tekur hún einungis eina tegund af floglyfjunum sínum (reyndar byrjar það í kvöld), er hætt á krabbameinslyfjunum og öllum öðrum lyfjum.  Þvílíkt og annað eins kraftaverk sem ég á og já ég get taulast á þessu orði KRAFTAVERKI endalaust því það er ekki svo oft sem við heyrum um þau eða eiginlega bara of sjaldan.  Við hefðum þurft að heyra eitthvað um þau þegar Þuríður mín var sem veikust neinei það eina sem við heyrðum það var um fólkið sem tapaði baráttunni sinni, veit eiginlega ekki hvað fólk fékk út úr því að segja okkur frá þeim hefði betur mátt sleppa því.  Þegar fólk er í þessari baráttu vill það bara heyra eitthvað GOTT, takk fyrir!!

Ég einmitt hitt mann um daginn sem ég var ekki búinn að hitta mjög mjög lengi og það fyrsta sem hann spurði mig um "er dóttir þín ennþá á lífi?" döööööööö!!  Hvurslags spurning er þetta?  Ég fékk verki í hjartað og lamaðist öll þegar hann spurði mig að þessu og vissi eiginlega ekki hvernig ég átti að bregðast við þessari spurningu?  Æji stundum hugsar fólk ekki sem það mætti stundum gera.

Hversdagsleikinn er aftur að komast í gang á heimilinu, Þuríður Arna mætti hress og kát í skólann í gær og er bara hamingjusöm með lífið og þá er ég líka hamingjusöm.  Hún er að byrja í drauma sjúkraþjálfuninni sinni sem er á hestum eða um miðjan mánuði og svo fær hún annan draum sinn ræstan en það er að byrja æfa fimleika.  Hún horfir á systir sína sem er bara snillingur í fimleikum enda æfir einsog atvinnumaður og að sjálfsögðu langar henni að geta gert þessa hluti sem hún auðvidað erfitt með vegna allra lyfjana sem hún hefur verið að taka og sjálfra veikinda sinna einsog vegna lömunarinnar.  Hún var alveg eitt bros í framan þegar við tilkynntum henni að hún ætti að fara æfa fimleika en það er eitt fimleikafélag hérna sem er með æfingar fyrir börn með þroskahamlanir sem fleiri mættu taka til fyrirmyndar, ekki bara fimleikafélög heldur líka bara önnur íþróttafélög.  Mig langaði að senda Þuríði mína í sama félag og Oddný Erla og Theodór Ingi  (en hann er líka að byrja í fimleikum og er auðvidað í fótboltanum líka) en þeir bjóða ekki uppá æfingar fyrir hana sem mér fannst frekar leiðinlegt.  Hvers á hún að gjalda? 

Mín byrjar í skólanum 15.janúar og hlakka bara til þó svo ég hafi verið frekar löt að læra síðasta vetur en var samt með 8 í meðaleinkunn, er farin á fullt í sjúkraþjálfunina og held áfram að byggja upp kroppinn og mig sjálfa.  Stefni á vinnumarkaðinn næsta haust, einhver með vinnu handa mér? Wink  Reyndar á ég mér þann draum að gefa út bók, þá er eina sem mig vantar er bókaútgefandi og manneskja til að hjálpa mér að skrifa, er ekki alveg nógu góður penni í svoleiðis. Sá draumur verður einhverntíman að veruleika.InLove

Enda færsluna af einni af Þuríði minni þegar hún í fullri lyfjameðferð, endalaust falleg.
tur_3_veik


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ótrúlegt hvað þú kemst yfir að gera með stóra fallega hópinn þinn, ég sé þig fyrir mér líkt og strætó að skutla og manni finnst það að skutlast í Reykjavík sé nú meira en að SKREPPA.

En það er endalaust gaman að fylgjast með því sem er að gerast, því það er svo jákvætt.

Vona að hetjan hafi haft lyst á súkkulaði og sé þess vegna bara kámug um munninn, en sé ekki með útbrot af öllu þessu lyfjaeitri sem hún þurfti að taka, en þó þau væru vond voru þau góð því þau áttu örugglega stóran þátt í því að okkar stúlka er í góðum málum í dag.

Kær kveðja frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 6.1.2010 kl. 12:32

2 Smámynd: Áslaug Ósk Hinriksdóttir

Þetta er súkkulaði hjá henni

Áslaug Ósk Hinriksdóttir, 6.1.2010 kl. 16:18

3 identicon

Er viss um að 2010 verður gleði og friðarár hjá ykkur fallega fjölskylda. Mínar bænir verða fyrir ykkur, fyrir duglega kraftaverkið ykkar og alla hina.  Tendra ljós

Með kærleikskveðja 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 7.1.2010 kl. 09:52

4 identicon

Hef ekki kíkt á ykkur lengi en mér var allt í einu hugsað til ykkar mæðgna! Mundi ekki vefslóðina en sló inn á google Kraftaverkabarn - áslaug :)  Frábært að heyra að hvað allt er bjart hjá ykkur í dag!  Gleðilegt ár og ég vona og óska þess að það verði gott eins hið fyrra jafnvel betra :)

bestu kveðjur 

ingibjörg

ingibjörg g (IP-tala skráð) 7.1.2010 kl. 11:09

5 identicon

Frábært að fylgjast með ykkur og gaman að heyra hvað Þuríði líður vel.  Mér líst vel á þetta með bókina er viss um að hún myndi rokseljast.  Verður hún ekki í næsta jólabókaflóði? 

Gaman að fylgjast með ykkur á síðasta ári og ég samgleðst ykkur innilega 

Kveðja Benný

Benný (IP-tala skráð) 7.1.2010 kl. 11:50

6 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þú ert sjálf algjört KRAFTAVERK Áslaug Ósk. Frábært hvað þú ert duglega að skrifa um allar framfarirnar hjá Þuríði Örnu.

Til hamingju Þuríður Arna með hvað lyfin eru orðin lítil hjá þér og þú að byrja í fimleikum sem er frábært og hestaþjálfunin er líka stórkostleg.

Hraustar kveðjur að norðan

Hólmfríður Bjarnadóttir, 7.1.2010 kl. 17:53

7 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Að skrifa bók er stórkostleg hugmynd.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 7.1.2010 kl. 17:55

8 Smámynd: Ragnheiður

Yndisleg færsla, ég óska þér gleðilegs árs , friðar og hamingju á árinu 2010.

Hlakka til að fá að fylgjast með þetta árið líka, með öllum börnunum þínum og ykkur Óskari.

Ragnheiður , 7.1.2010 kl. 20:09

9 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Halldór Jóhannsson, 8.1.2010 kl. 22:27

10 identicon

Kærleiksknús

Dagrún (IP-tala skráð) 9.1.2010 kl. 00:52

11 identicon

Sendi ykkur öllum nýárskveðjur og vona að Guð gefi ykkur GÆFU- OG HEILLARÍKT ÁR. Kveðja að vestan.

Halla (IP-tala skráð) 9.1.2010 kl. 17:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband