Leita í fréttum mbl.is

Flottasta Maístjarnan er 8 ára í dag :)

Þuríður Arna mín er búin að bíða ansi lengi eftir þessum degi og var að sjálfsögðu vakin með söng og pökkum.  Ótrúlega hamingjusöm með gjafirnar frá okkur fjölskyldunni. 

Þuríður mín Arna sú allra flottasta á svæðinu, búin að upplifa alltof margt á sinni stuttri ævi en kvartar nánast ALDREI, uppgjöf er eitthvað sem hún þekkir ekki, hún er sterk bæði andlega og líkamlega.  Þuríður Arna mín er sú eina sem ég lít upp til, hún er yndislega fyndin, mikill húmoristi, stríðin, elskar föt þá sérstaklega "gelluföt", henni þykir rosalega vænt um systkin sín og er ekkert feimin að segja við þau hvað hún elskar þau mikið.  Hún er ófeimin og á auðvelt að bræða fólkið í kringum sig.

Þuríður Arna mín hefur alltaf átt sér einn draum sem hefur alltaf verið dáltið fjarlægur (að okkar mati) en hún óskaði þess að láta þennan draum sinn rætast þegar hún yrði 8 ára gömul.  Ég hef líka ákveðið að láta hann rætast og það vonandi sem fyrst eða þegar það er búið að ákveða framhaldið með hetjuna mína hvort það verði stærri aðgerð og reynt að fjarlægja æxlið eða lyfjameðferð sem mun taka marga mánuði en síðast þegar hún byrjaði í lyfjameðferð þá voru það ca 80 vikur.  Já ég ÆTLA láta draum Stjörnu minnar rætast og get ekki beðið þegar af því verður.  En það verður allt saman leindarmál eða þanga til ég mun framkvæma.

Hún er ennþá lasin, var mjög slöpp í gær svo það er ágætt að við erum að fara á fund uppá spítala með liðinu okkar og skurðlækninum og látum þá kíkja á Maístjörnuna í leiðinni.

ka_tur
Hérna er KR-Stjarnan mín nýorðin tveggja ára gömul.

Við ætlum allavega að reyna njóta dagsins þrátt fyrir að það verður kanski einhver slappleiki til staðar, kíkja í Laugardalshöllina þar sem blómarósin mín verður með sýningu og enda á Fabrikkunni.

Hérna er ein sem var tekin af henni nývaknaðri og nýbúin að opna nokkrar gjafir:
P5207943 [1280x768]

Pss.ssss Ef þið kíkið hérna til vinstri þá er ég búin að setja inn eitt myndband af blómarósinni minni sem er að syngja einn fallegasta texta sem til er, endilega kíkið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Til hamingju með afmælið þitt elsku fallega Þuríður Arna.

Ragnheiður , 20.5.2010 kl. 08:09

2 identicon

Hún er falleg að utan sem innan eins og þú lýsir henni, enda hefur hún gengið í gegnum meira en margur gerir á heilli ævi og það þroskar hana. Hún býr við gott atlæti, treystir fullkomlega á stuðning ykkur og því hafa erfiðleikar síðustu ára styrkt hana í stað þess að brjóta hana niður.

Ég vona að þið eigið ánægjulegan afmælisdag og að vikan færi ykkur fréttir sem létta eitthvað af áhyggjum ykkar.

fjögurra_dætra_móðir (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 08:19

3 identicon

Elsku Þuríður Arna !

innilega til hamingju með 8 ára afmælið þitt - ég vona að dagurinn þinn verði þér jafn yndislegur og þú ert sjálf

Knússsss

Sigrún og co (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 08:27

4 identicon

Elsku Þuríður Arna,

Innilega til hamingju með 8 ára afmælið þitt. Eigðu yndislegan dag í faðmi fjölskydunar

Agnes Linda (ókunn) (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 09:18

5 Smámynd: Signý og Svenni

Innilega til hamingju með fallegu afmælisprinsessuna. Við hugsum mikið til ykkar.

Signý, Gunnar Hrafn og fylgifiskar

Signý og Svenni, 20.5.2010 kl. 09:36

6 identicon

Hjartans hamingju óskir með 8 ára afmælið elsku BROSdúlla,eigðu góðan dag, duglega fallega Þuríður,með allri fjölskyldunni.

Hrönn (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 10:01

7 identicon

Innilegar hamingju óskir með fallega átta ára stelpuna þína. Hún er yndisleg og þú algjör hetja!

Kristín Björg (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 10:43

8 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Hamingjuóskir með afmælið Þuríður Arna. Eigðu skemmtilegan dag og yndislega helgi. Gangi þér svo mikið vel í aðgerðinni og ætíð síðan í lífinu þínu. Guðsblessun í bæinn

Hólmfríður Bjarnadóttir, 20.5.2010 kl. 10:54

9 identicon

Elsku Þuríður Arna mín.  Til hamingju með afmælið og njóttu dagsins í faðmi fölskyldunnar.  Fallegur söngurinn þinn, þú ert hetjan okkar allra.Guð veri með þér og fjölskyldu þinni

Kristín (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 11:06

10 identicon

Til hamingju með daginn og gangi þér vel

Guð veri með ykkur fjöldskyldunni

Birna (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 11:54

11 identicon

Innilegar hamingjuóskir til fallegu maistjörnurnnar. Njótið dagsins.

Gangi ykkur vel í baráttunni.

Kveðja,

Ragga (Birnusystir)

Ragga (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 13:19

12 identicon

Til hamingju með 8 ára blómarósina, njóttið dagisns.

Vonandi hressist litla rófan fljótlega

Lilja ( ókunug ) (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 14:11

13 identicon

Til hamingju með daginn Maístjarna !

Hver er svo draumurinn dularfulli ? Spennó

Vona að dagurinn hafi og sé eins góður og hugsast getur hjá ykkur.

Afmæli eru heilög eða eiga að vera það

Rakel Sara Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 16:19

14 identicon

Innilega til hamingju, elsku Þuríður með daginn þinn! Sjáumst kannski í Höllinni á eftir á sýningunni :)

Sirrý (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 16:48

15 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Innilegustu hamingjuóskir til Þuríðar litlu/stóru, og eins til ykka, kæru foreldrar!

Ylfa Mist Helgadóttir, 20.5.2010 kl. 17:14

16 identicon

innilegar hamingjuóskir með afmælisdúlluna, eigið góðan dag, allar góðar vættir veri með ykkur öllum, knúsknús og stór faðmur.

Didda ókunnug (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 18:07

17 identicon

Innilega til hamingju með fallegu maístjörnuna ykkar sem söng svo fallega þennan flotta texta, vona innilega að allt gangi ykkur í haginn.

emma (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 20:05

18 identicon

til hamingju með elsku fallegu snúlluna þína gangi ykkur allt í haginn,fallegur söngurinn hennar

bestu baráttukveðjur ein 4 barnamamman

ingileif Finnbogadóttir (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 20:50

19 identicon

Innilega til hamingju með afmælið Þuríður.  Vonandi hafið þið fjölskyldan haft það gott í dag og fengið að njóta dagsins til fulls.

Sigrún (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 20:53

20 identicon

Innilegar hamingjuóskir með 8 ára afmælið Þuríður Arna

Við vonum að þið hafið átt skemmtilegan  dag  

Risaknús og orkustrauma sendum við ykkur

kveðja að austan

Dagrún (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband