Leita í fréttum mbl.is

Lítið að frétta....

Fengum hringingu frá okkar frábæra skurðlækni á föstudaginn að það verður fundað um Maístjörnuna okkar á þriðjudaginn útí Svíþjóð og þá verður allt væntanlega ákveðið.  Ég vona bara svo heitt og innilega að þetta mun ganga hratt fyrir sig einsog okkar frábæri læknir vill og ýtir mikið á eftir.  Hann fer reyndar í frí eftir viku en ef Þuríður okkar þarf aðgerð áður en hún fer út kemur hann úr fríinu sínu til að skera hana.  Þetta er sko alvöru læknir sem sinnir sko sjúklingum sínum.  Ég er hrikalega ánægð með hann einsog ALLA sem hafa sinnt henni, þau gera allt svo að Maístjörnu minni líði vel.

Maístjörnunni minni líður mjög vel þessa dagana, það er sko ekki að sjá á henni að hún er veikjast aftur. 
turidur_2
Hérna er Maístjarnan mín að módelast fyrir mig í Heiðmörkinni en við fjölskyldan hjóluðum þar um á 17.júní sem var æði.  Tókum með okkur nesti og höfðum það kósý.  Hún hjólaði reyndar ekkert enda hefði hún ekki ráðið við það því miður en naut sín í hjólavagninum.Grin
theodor_fylkir
Hérna er fótbolta-strákurinn minn hann Theodór Ingi sem labbaði inná völlinn með Fylkismönnunum í kvöld, ótrúlega stolltur og montinn.

Núna bíð ég bara eftir þriðjudeginum og vona það svo heitt og innilega að við verðum í Svíþjóð eftir ekki svo marga daga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kæra fjölskylda, sendi ykkur góðar óskir og hlýjar hugsanir og bið alla góða vætti að fylgja ykkur.

hjördís blöndal (IP-tala skráð) 20.6.2010 kl. 23:50

2 identicon

Krossa putta að þetta gangi allt hratt elsku fjölskylda. Þegar þið standið saman eins og þið gerið alltaf myndið þið traustasta varnarmúr í heimi fyrir Þuríði ykkar, og ásamt þessum frábæru læknum er hún í bestu höndum sem til eru. Fylgist með ykkur áfram og sendi baráttustrauma frá norð-austurhorni landsins!

Kristín (IP-tala skráð) 21.6.2010 kl. 10:41

3 identicon

En yndislegur læknir sem þið eruð með
Vona svo sannarlega að þetta gangi allt hratt og vel fyrir sig hjá ykkur.
Krossa líka fingur fyrir ykkur og sendi ykkur að sjálfsögðu fullt af baráttu- og orkustraumum.

Kv. frá DK

Berglind (IP-tala skráð) 21.6.2010 kl. 11:57

4 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Trúi  á  þessa fallegu stelpu, hún spjarar sig.

Aðalsteinn Agnarsson, 21.6.2010 kl. 21:54

5 identicon

Smá bakslag, en ekki spurning um að hetjan á eftir að spjara sig út úr þessu öllu. Hef fylgst með ykkur hér í gegnum bloggið, en lítið "commentað", bara dáðst að hvað þið eruð dugleg í gegnum þetta allt. Sem amma lítils hjartastráks, þykist ég geta sett mig svolítið í sporin ykkar hvað varðar vanmátt manns þegar maður vill gera allt, en getur einhvern veginn gert svo lítið og þarf að leggja allt sitt í hendurnar á einhverjum öðrum.   Sem betur fer eigum við frábært fólk í öllum stöðum :)

Vill samt segja þér, að frá því að ég fór að lesa bloggið þitt hef ég alltaf haft þá tilfinningunni að það eigi eftir að verða eitthvað mikið úr þessari stúlkuhnátu :D

Gangi ykkur sem best í því sem framundan er, og ég held áfram að fylgjast með ykkur, kveikja á hetjukerti og biðja með ykkur öllum :)

Berglind (IP-tala skráð) 21.6.2010 kl. 22:04

6 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Flottur strákur:)Því miður hafði ekki nærvera Theodórs sigur hjá Fylki,í þetta sinn..

Já vonandi verðið þið bráðum í Svíaríki....

Bið að heilsa Kalla kóngi:)

Góðar kveðjur,nú að austan:)

Halldór

Halldór Jóhannsson, 21.6.2010 kl. 22:16

7 identicon

Innilegar kveður til ykkar. Frábærar myndir af krökkunum.

Kveðja til stórfjölskyldunnar frá Þorgerði.

Þorgerður (IP-tala skráð) 22.6.2010 kl. 16:05

8 identicon

Vona að þið komist út sem fyrst og klárið þetta. Óþolandi að hafa svona hangandi yfir sér.

Ég beið í næstum 3 ár eftir beinmergsskiptunum. Alltaf verið að reyna eitthvað nýtt. 

 Hugsa til ykkar

Rakel Sara Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 22.6.2010 kl. 16:19

9 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Gott að verið er að drífa hlutina áfram. Guð veri með ykkur

Hólmfríður Bjarnadóttir, 22.6.2010 kl. 20:08

10 identicon

Eitt stórt knús á ykkur duglega fjölskylda! 

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 23.6.2010 kl. 11:56

11 identicon

Langaði bara að kasta kveðju á ykkur og vonandi fáið þið fréttir sem fyrst um að þetta fari allt að skella á.  Gangi ykkur ofboðslega vel!  Risaknús til ykkar allra, Ásdís

Ásdís (IP-tala skráð) 23.6.2010 kl. 20:57

12 identicon

Langaði bara að senda ykkur knús í morgunsárið, veit að það er erfitt að bíða, en þetta styttist.

Falleg myndin af hetjunni og bróðirinn að kafna úr monti á hinni myndinni :D

Orkukveðja úr morgunsólinni sem er að fara af Skaganum....

Helga

Helga Arnar (IP-tala skráð) 24.6.2010 kl. 07:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband