27.6.2010 | 19:27
Biðin endalausa
Hvernig í andskotanum getur verið svona erfitt að ná í EINN mann. Svíarnir eru nefnilega nánast búnir að samþykkja að fá Þuríði mína til sín NEMA það þarf EINN "reynslubolti" að samþykkja hana sem er svona líka erfitt að ná í. Arghh!! Því þeir eru ekki vissir hvort þeir eigi að geisla bæði æxlin eða bara það "gamla" og þá eigi að fjarlægja hitt með aðgerð en það þarf þessi "reynslubolti" að samþykkja eða ákveða. Svo er náttúrlega annað "vandamál" en skurðlæknirinn okkar fer í sumarfrí eftir næstu viku eða reyndar er hann kominn í sumarfrí en fer útá land eftir næstu viku og gerir þá engar aðgerðir og þá yrði hún aldrei skorin fyrr en í ágúst sem er náttúrlega HRIKALEGT!! Hún má ekki bíða svona lengi. Hva á bara að leyfa æxlinu að stækka? Já ég er nett pirruð eða reyndar mjög pirruð og er orðin andskotin leið á því hvað þeim er gefin langur tími, afhverju er svona hrikalega erfitt að ná í EINN mann?
Þuríði minni líður ótrúlega vel og læknirinn hennar er mjög hissa á því hvað hún lítur vel út svo æxlið er ekkert farið að bögga hana ENNÞÁ. Eru þeir að bíða eftir því að það fari að gera eitthvað illt fyrir hana? Nei ég bara spyr? Já þetta er ÓÞOLANDI!!
Restinni af fjölskyldunni líður ágætlega, Oddný Erla mín telur niður dagana þanga til hún hættir á leikskólanum og það eru sem sagt þrír leikskóladagar eftir og þá mun væntanlega hefjast talning í fyrsta skóladaginn. Ég og hún erum búnar að liggja í upp og niður pestinni, ógeðsleg pest!! Theodór fótboltatöffari fylgist með HM og var að eignast Brasilíubúning sem lítur á sem gullið sitt og fer ekki úr honum, endalaust flottur!! Hinrik litli mömmupungur er að fíla sig í leikskólanum en gargar samt alltaf af gleði þegar móðirin kemur að sækja hann.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Átti þetta ekki að ganga hratt fyrir sig. Skil vel að þú sér örg og pirruð. Það verður bara að ákveða þetta sem allra fyrst. Vona bara að næsta vika færi ykkur niðurstöðu í málið. Gott að þið hafið það gott að öðru leit fyrir utan magaskotið. Bíð frétta og er hneyksluð á biðinni
Hólmfríður Bjarnadóttir, 27.6.2010 kl. 19:43
Sæl,þú þekkir ekki mig,en nú skil ég ósköp vel þig.Láttu bara heyra í þér á öðrum vettfangi!Ja,t.d. í fjölmiðlum,biddu um meiru hjálp.Gangi ykkur sem allra best ,það gengur þannig.
erla (IP-tala skráð) 27.6.2010 kl. 21:59
Skil ykkur mjög vel ég er líka örg og pirruð fyrir ykkar hönd svona eiga þessir hlutir ekki að vera. Sendi ykkur fullt fang af góðum óskum um að allt gangi vel í framtíðinni.
Kristín ókunnuga (IP-tala skráð) 27.6.2010 kl. 22:14
Elsku þið öll
En hvað ég skil þennan pirring yfir biðinni, af því líka maður hefur ALLSEKKI biðlund í þessum aðstæðum. Mér finnst reyndar skrítið þegar sagt er að það náist ekki í einhvern í nútíma samfélagi svo dögum skiptir. Það er BOGIÐ. Þó er auðvitað til í dæminu að hann sé með lokaðan síma vegna anna eða fría. En allavega er biðin hrikalega erfið.
Frábært er þó að stjarnan sýnir engin ný merki veikinda. En hún bara verður að komast í meðferð.
Sendi kærleikskveðju í húsið
frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 28.6.2010 kl. 15:33
Æ, agalegt að bíða svona...á ekki aðleggja á neinn að vera í svoleiðis aðstöðu. Vonandi næst í þennan lækni sem allra fyrst svo Maistjarnan þín fái þá meðferð sem hún þarf til að ná bata. Vertu samt áfram bjatsýn...þetta hefst allt á endanum...<3
Bergljót Hreinsdóttir, 29.6.2010 kl. 15:05
Æ alveg er þetta eftir þeim að draga að svara , já það er hrikalegt þegar þarf að biða eftir svari , en vonandi fáið þið svar sem fyrst
hér var lika talið niður með leikskólan, alltaf gott að fá smá frí frá honum
kærleiksknús
kveðja að austan
Dagrún (IP-tala skráð) 30.6.2010 kl. 00:22
Svooo taugatrekkjandi hjá ykkur en vonandi fer þetta að skýrast. Bið fyrir ykkur og sendi góða strauma
Kristín (IP-tala skráð) 1.7.2010 kl. 16:27
Sæl baráttukona, miðað við að þetta er svona sjaldgæft heima og lítil reynsla þar þá myndi ég drífa mig eitthvað annað með Maístjörnuna þína, þessir aðilar sýna ótrúlegan kulda og tillitsleysi og ég er hjartanlega sammála Erlu hér að ofan um að það er ástæða að fá fjölmiðla í lið með sér núna. Gangi ykkur vel í baráttunni .
Inga Sæland Ástvaldsdóttir, 2.7.2010 kl. 12:34
Þetta er óþolandi! Ég var líka látin bíða eftir einum karli sem virðist enga virðingu bera fyrir tíma fólks. Ég skil vel að þú sért pirruð, hefur fulla ástæðu til !
Held áfram að hugsa til ykkar.
Rakel Sara Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 2.7.2010 kl. 14:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.