20.7.2010 | 09:49
Vika í brottför
Þá er vika í Svíþjóð og kvíðin er farin að hellast yfir mann.
Við erum reyndar búin að eiga stórkostlegt tveggja vikna frí saman fjölskyldan sem reyndar endaði illa en Þuríður Arna mín er búin að vera krampalaus í heila 40 mánuði þegar hún fékk krampa núna 16.júlí. Þær nokkru sekóndur sem krampinn stóð í var martröð, ég gjörsamlega trompaðist. Jú við gátum alveg búist við því að hún byrjaði að krampa aftur en að sjálfsögðu vonaðist ég eftir öðru og vona það svo innilega að þetta gerist ekki aftur. Mér fannst líka ennþá erfiðara að perlan mín hún Oddný Erla varð vitni af þessu, sjá móður sína garga á pabba sinn (láta vita af krampanum) og svo brotna niður. Hún hefur reyndar milljón sinnum séð systur sína í krampa en það eru rúm þrjú ár síðan og þá var hún aðeins þriggja og hálfs en núna hefur hún miklu meira vit enda fara veikindi Maístjörnu minnar mjög illa í hana, þau taka virkilega á hana. Hún fær mikið af martröðum, líður oft (alltof oft að mínu mati) illa vegna Þuríðar sinnar svo þetta var ekki alveg stund til að láta henni líða betur.
Við erum núna á leiðinni uppá spítala en hún er að fara í eitthvað "sýklatest" fyrir verðandi Svíþjóðarferð og svo seinna í vikunni hittum við taugalækninn hennar útaf krampanum.
Hérna er Þuríður mín Arna í stuði í fríinu okkar.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
32 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Leitt að heyra ,vonandi verða ekki fleirri krampar að angra hana fyrir aðgerð . Mínar heitustu óskir um velgengni , Erla
Erla (IP-tala skráð) 20.7.2010 kl. 10:13
Æi ekki gott að heyra að Þuríður Arna hafi fengið krampa, en gangi ykkur vel í baráttunni hugur minn er hjá ykkur, kveiki á kerti handa Þuríði minni.
Anna Pála (IP-tala skráð) 20.7.2010 kl. 11:29
Mikið er leiðinlegt að heyra þetta kæra fjölskylda. Vona heitt og innilega að aðgerðin í Svíþjóð gangi eins og best verður á kosið. Þið eruð öll algjörar hetjur. Eg mun hugsa vel til ykkar.
Dagbjört ókunnug (IP-tala skráð) 20.7.2010 kl. 12:16
Baráttukveðjur til Þuríðar Örnu, sendum góða strauma til ykkar til Svíþjóðar í næstu viku.
Kveðja Eyja
Eyja (IP-tala skráð) 20.7.2010 kl. 14:01
En leiðinlegt að heyra með krampann. Bið Guð að passa ykkur og óska Þuríði Örnu blessunar og góðs gengis í aðgerðinni
Kristín (IP-tala skráð) 20.7.2010 kl. 15:37
Leitt að heyra með krampann, vona að þetta komi ekki aftur fyrir litla greyjið...
Sendi baráttukveðjur og hlýjar hugsanir.
Knús!
ókunnug (IP-tala skráð) 20.7.2010 kl. 20:57
Knús og kveðjur til ykkar kæra fjölskylda....Sendi hlýjar hugsanir og góða strauma....Þið eruð ótrúlega dugleg....
Ragnheiður (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 16:45
Góða ferð og gangi ykkur rosa vel. Ég hugsa til ykkar.
Oddný (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 22:09
Sendi ykkur hlýjar kveðjur þó ég þekki ykkur ekki nema af þessu bloggi. Gangi ykkur vel úti
Soffía, 21.7.2010 kl. 22:46
Það hlýtur að hafa verið skelfilegt augnablik að upplifa krampa hjá Þuríði Örnu eftir þetta langa hlé. Gangi ykkur allt sem allra best. Bið Guð að vaka yfir ykkur og öllu því fólki sem kemur að þessu ferli öllu.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 21.7.2010 kl. 22:48
Sendi ykkur góðar kveðjur og bið þess að allt gangi sem best, þakka þér Áslaug fyrir að leyfa okkur að fylgjast með sögu ykkar. Baráttukveðjur til ykkar,þið eruð öðrum til fyrirmyndar.
Hjördís (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 23:59
Vona að elsku fallegu stúlkunni ykkar gangi vel í Svíþjóð. Baráttukveðjur.
Gyða Jónsdóttir (IP-tala skráð) 22.7.2010 kl. 00:21
æji en hræðilegt að heyra að Oddný hafi orðið vitni af krampanum, greyið litla.. Vona svo innilega að þetta hafi verið síðasti krampinn sem þið fáið að upplifa.. Gangi ykkur rosalega vel í Svíþjóð og ég hef ykkur í bænum mínum..
Emilía Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 22.7.2010 kl. 08:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.