29.7.2010 | 18:36
Svíþjóð - dagur 3 - seinni færsla dagsins
Dagurinn í dag er búinn að virkilega erfiður og svo líka góður. Þuríður mín er búin að standa sig einsog sönn hetja og ekki kvartað einu sinni, ekki það að hún sé eitthvað vön að kvarta en það er víst ekkert rosalega þægilegt að vera með þetta "trylli tæki" um höfuðið sem var sett á hana til að koma geislunum á eins nákvæman stað og læknarnir þurftu. Læknirinn sem sá um "aðgerðina" var ánægður með hvernig til tókst og sagði að þetta hefði farið nákvæmlega eftir plani sem er bara einsog við vildum að sjálfsögðu.
Hérna er Maístjarnan mín í undirbúningi fyrir "gammahnífinn" einsog alltaf fylgist hún grannt með.
Æxlið var víst búið að stækka um nokkra mm síðan í maí sem er að sjálfsögðu ekki gott en einsog læknirinn orðaði það þá var það ennþá viðráðanlegt fyrir "gammahnífinn". Þessi meðferð mun væntanlega ekki minnka æxlið en þetta er gert til að stoppa vöxt þess sem við trúum að það mun takast enda ekkert annað í boði. Það geta komið mjög svo leiðinlegar og erfiðar aukaverkanir sem við verðum að sjálfsögðu að takast á við ef/þegar þær koma en þær geta alveg komið ári eftir þessa meðferð. Ætla mér ekkert að fara útí þessar aukaverkanir nánar nema ef/þegar þær koma og á meðan fær fólkið mitt/okkar bara að heyra um þær.
Hérna eru þær systur rétt fyrir svæfingu.
Það tók Maístjörnuna mína ekkert svo langan tíma að vakna eftir "aðgerðina/gammahnífinn", hún var á miklum verkjalyfjum svo hún gat að sjálfsögðu ekki setið án hjálpar en var ekki lengi að jafna sig eftir það, reyndar er hún ennþá á verkjalyfjum en samt ekki eins sterkum.
Hérna er Maístjarnan mín uppi á "vöknun" stuttu eftir að við hittum hana, reyndar sofandi og mikið lyfjuð.
....og hérna er hún ca fjórum tímum síðar komin uppá herbergi í góðum fíling. Þvílíkur snillingur þessi stelpa og ekki að sjá á henni að hún er nýbúin að ljúka þessari meðferð. Nýbúin að láta taka umbúðirnar af sér og tala við fólkið okkar heima á skype. Snilld þessi skype, geta tjattað við strákana okkar og komið upplýsingum til fólksins okkar bara um leið og við fáum fréttir. Elska þessa tækni.
Þess má geta að hún fékk tæpa 200 geisla í höfðuðið sem eru frekar vægir en verða mjög sterkir þegar þeir mætast alllir. Það sem við höfum frá læknum okkar þá er hún fyrsta íslenska barnið (allavega sem býr á Íslandi) sem fer í þennan "gammahníf" en margir Íslendingar (fullorðnir) hafa farið í hann.
Ég las núna seinni partinn kveðjurnar frá ykkur fyrir Maístjörnuna mína og Blómarósina mína og þær voru eitt bros í framan allan tíman. Þar sem Maístjarnan mín er sú allra sterkasta sem ég hef kynnst og þekki þá höfum við ákveðið að kíkja í heimsókn til Línu Langsokk um helgina og kynna hana fyrir þeirri allra allra sterkustu, sú verður fúl þegar hún fær að hitta Þuríði mína. En sú sterkasta gistir á spítalanum í nótt ásamt pabba sínum og við mæðgurnar erum komnar uppá hótel og ætlum að kúra saman og hafa það notalegt saman en henni finnst það rosalega spennandi.
Biðjum að heilsa á klakan og sendum bestu kveðjur úr þrumunum í Svíaríki.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
253 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vá Vá Vá hvað þú ert óendanlega dugleg stelpa!! Hugsaði SVOOOO mikið til þín í dag og hvað þú væri dugleg. Oddný Erla er ekkert smá heppin að eiga svona hetju og þú rík að eiga Oddnýju að því hún er líka hetja. Þið eruð svo sætar systur og ekki skrítið að mamma og pabbi séu stolt af ykkur. Gangi ykkur æðislega og ég bið að heilsa Línu og Níelsi:)
Kristín á Austurlandi (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 18:46
Þessi stúlka sem þú átt er svo ótrúleg að manni vöknar um augu að lesa um hana og dugnaðinn í henni.
Gangi ykkur ofboðslega vel.
Mbk,
Margrét
Margrét (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 18:59
Þið eruð öll hetjur, mér vöknar um augun að lesa um ykkur. Hugsa hlýlega til ykkar öllum stundum og vona að allt fari á besta veg. Verð svo að segja að börnin þín eru afskaplega falleg :) Gangi ykkur öllum vel.
Signý (ókunnug) (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 19:08
Vá hvað þið eruð öll dugleg og sérstaklega Þuríður Arna ég fékk bara gæsahúð og tár í augun við að lesa þetta.Lína má sko sannarlega passa sig þegar hún hittir þig.Gangi ykkur vel
Steina ókunnug (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 19:12
Mikið er gaman að sjá þessar myndir. Maður sér svo vel hversu dugleg Þuríður Arna er og hversu hjálpsöm hún Oddný Erla er. Þegar farið er í gegnum svona hluti með þessu hugarfari þá getur ekki annað en farið vel. Eruð þið að fara í Astrid Lindgren safnið ? Stráknum mínum þótti svo gaman að fara þangað þegar við vorum í meðferðum í Svíþjóð. Hann gat leikið sér endalaust í safninu en þar má leika sér með alla hluti og í húsinu hennar Línu. Góða skemmtun.
Kveðja - Helga
Helga (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 19:38
Mikið er ég glöð að heyra að allt gekk vel í dag. Þuríður Arna og Oddný Erla eru sannkallaðar hetjur, svo hugrakkar báðar tvær og standa sig svo vel. Hugsaði til ykkar í dag og sendi ljós og hlýjar hugsanir. Heppnar eruð þið að fá að hitta Línu Langsokk, hún er æði! Kærleikskveðja c",)
Edda Hlíf (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 19:45
Oh var svo glöð að sjá að það var komin inn seinni færslan þú ert svo mikil hetja elsku Þuríður okkar bara er svo stolt að þekkja þig og alla í kringum þig elsku sterkasta!! Ég er viss um að Lína langsokk verður glöð að hitta þig og sjá að það eru til sterkari stelpur en hún. Oddný Erla er náttúrulega bara perla og ótrúlega mikil stoð hjá ykkur. Áslaug og Óskar þið eruð bara flottust og hugsa svo mikið til ykkar. Tæknin er bara best og gott hvað henni fleytir fram.
Hugsum svo mikið til ykkar og fylgjumst vel með.
Kær kveðja af Skaganum, Brynja og co.
Brynja (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 19:47
Gott að heyra hvað það hefur gengið vel:) Stelpunar ykkar er algjörar hetjur, og þið sterk að ganga gegnum þetta,takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með:) Bið að heilsa Línu og herra Níelsi, RISA KNÚS til ykkar allra.
kv Frá strandgötunni
Aðalheiður D Einarsdótir (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 19:56
Alveg er þetta ótrúlegt.Læknarnir og tæknin eru undur.
Ég tala ekki um ykkur fjölskylduna,algjörar hetjur.
Yndislegt að geta síðan fylgst með ykkur og hvað þið eruð dugleg.Litlu prinsessurnar eru svo faallegar og yndislegar.Knús á línuna og hjartans kveðja.
Halla frænka.
Halla Magnusdottir (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 20:15
ég sit með augun full af tárum, svo hreykin af telpum sem ég á ekkert í en finnst mér koma við.
Hjartansknús ..
Ragnheiður , 29.7.2010 kl. 20:16
Frábært að heyra hvað allt gekk vel. Þið eruð nú bara snillingar. Frábært að heyra hvað Oddný Erla hugsar vel um stóru systur sína hún er algjör gullmoli.
Þið foreldrarnir eruð algjörar hetjur.
kv Díana
Díana Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 20:37
Mæ ó mæ - þvílík hetja sem þú ert Þuríður Arna! Þú tekur þetta með trukki og dýfu :) haltu áfram að vera svona dugleg :)
Tinna (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 20:59
Vá þvílík hetja þessi stelpa, sit með tárin í augunum að lesa þessa færslu, hún á eftir að fá nóbelsverðlaunin þessi stelpa þegar hún verður stór og miðlar allri sinni reynslu til annarra!!! Hún á líka alveg ótrúlega fjölskyldu!
Kveðja Eyja og fjölskylda
Eyja (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 21:02
Á ekki orð hvað Þuríður Arna er mikil manneskja....
Svo sterk og dugleg...og svo vaknar hún bara brosandi úr svæfingu og því öllu....Það hjálpar Mömmu og Pabba svo mikið líka...:)
Oddný PERLAN MIKLA er algjör draumur:)
Lína,þú skalt passa þig,nú koma ofurstúlkur til þín:)
Elsku Áslaug og Óskar þið eruð ómetanleg:)
Gangi ykkur súpervel:)
Kemst svo ekki til að fylgjast með hetjunum fyrr en annað kvöld aftur væntanlega...
Það verður erfitt...
Knús og kærleikur sendist..
Halldór..
Halldór Jóhannsson, 29.7.2010 kl. 21:11
Ég þekki ykkur ekki persónulega en hef fylgst með ykkur í nokkurn
tíma. Ég hugsa oft til ykkar og dáist að því hvað þið eruð jákvæð og samhent fjölskylda.
Bið góðan guð að fylgja ykkur í baráttunni og gangi ykkur vel.
Áslaug
Áslaug Einars (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 22:03
Kæru vinkonur Þuríður Arna og Oddný Erla
Gangi ykkur ROSALEGA vel hjá læknunum í Svíþjóð og ég hlakka til að fá ykkur heim aftur og leika saman. Þið eruð ótrúlega duglegar stelpur og mamma og pabbi ykkar heppin að eiga svona flottar dætur.
Knús,
Elma Hlín og co
Þórey Arna (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 22:47
Þú ert engum lík Þuríður Arna þú ert svo rosalega dugleg. Og systir þín rosalega dugleg að vera hjá þér. Þið eruð alveg frábærar systur. Bestu kveðjur til fjölskyldunnar og guð veri með ykkur
Sæunn ókunn (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 22:58
Elsku fallega Maístjarnan og fallega blómarós.
Þið eruð algjörir snillingar báðar tvær. Dásamlegt að lesa um hversu duglegar þið eruð. Þið eruð svo duglegar og klárar að þið getið orðið það sem ykkur langar til þegar þið verðið stórar. Þið getið t.d. orðið læknar, flugstjórar, búðakonur, flugfreyjur eða fimleikastjörnur.
Svo virðist ykkur hafa verið sendir líka flottustu foreldrarnir til að hugsa um ykkur þangað til þið verðið stórar þá getið þið hugsað svona vel um þau.
Arína Bára dóttir mín vonar að þú Þuríður Arna hafir fengið myndina sem hún setti á rúmið þitt á Borgarspítalanum síðast. Hún teiknaði í dag fallega stjörnu og blóm fyrir ykkur systur.
Góða skemmtun um helgina
Þórunn (ókunnug)
Þórunn Ragnarsdóttir (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 23:24
Þvílík hetja !! :) dáist að ykkur öllum og finnst æðislegt að þið hafið tekið Oddnýju Erlu með ykkur út - hún er pottþétt mikill styrkur og félagsskapur fyrir Þuríði og ykkur foreldrana :) frábært að allt gekk svona vel í dag - hugsa til ykkar og kíki reglulega hérna inn til að fá fréttir :) hafið það gott og gangi ykkur ofsalega vel með allt :)
kveðja frá einni sem vann á Hofi fyrir nokkrum árum:)
Sigrún Helgadóttir (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 00:40
Mikið er ég glöð að heyra hvað aðgerðin gekk vel og alveg eftir bókinni. Það er mikil heilun í því fólgin fyrir Þuríði Örnu að hafa ykkur foreldrana bæða með sér, svo ekki sé talað um Oddnýju Erlu.
Mér segir svo hugur um að Oddný Erla sé aðalheilari og styrkur Þuríðar Örnu.
Þetta kom svo sterk í huga minn að mér fannst ég verða að setja það inn. Bið Guð um allt gangi vel.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 30.7.2010 kl. 00:55
Þið eruð alveg ótrúlega dugleg öll, Þuríður Arna bara heta
Sendi ykkur batakveðjur og alla verndarenglanna mína.
Jóhanna (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 16:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.