30.7.2010 | 19:02
Svíþjóð - dagur fjögur - seinna færsla dagsins
Stórkostlega, sterkasta, flottasta og óútreiknanlega Maístjarnan mín var útskrifuð af spítalanum í morgun og mætti svona líka hress uppá hótel til okkar mægðna. Þvílíkur kraftur í einni stúlku!! Hún er reyndar óútreiknanleg og kemur öllum alltaf sífellt á óvart svo það er næstum því hætt að koma okkur á óvart hvernig hún er J.
Eftir að hún kom uppá hótel sáum við að við þyrftum ekki að hanga þar í allan dag svo það var ákveðið að skella sér heim til Línu Langsokk og Kalla á þakinu. Reyndar fannst þeim systrum þetta frekar barnalegt allt saman fyrirutan þegar við fórum í lest í gegnum alla söguna eða þær sögur eftir Astrid sem var ótrúlega gaman. Það er líka allsstaðar svo troðið og við erum ekkert sérlega mikið að fíla það. Fyrir utan þetta safn voru mjög skemmtilegir upplásnir boltar sem þær skelltu sér í og skemmtu sér svona líka vel en hérna eru myndir af þeim.
Hérna eru þær báðar í sínum kúlum.
Oddný Erla í sinni en hún ætlaði fyrst ekki að þora en það var sko lítið mál fyrir Maístjörnuna mína þar sem hún elskar allt eitthvað svona og ef hún fengi að ráða færi hún öll stærstu tívolí tæki sem til væru en tívolí er það sem gleður hana mest.
Þar sem við vorum svo sniðug að taka kerruna að heima með í þetta ferðalag þá var tilvalið að skella sér á rölt í bæinn en þar gat Maístjarnan okkar hvílt lúin kropp enda hefði hún aldrei meikað meira rölt þó svo það hafi ekki verið langt eða mikið í kringum safnið.
Hérna í Stokkhólmi er Gay pride vika svo við ætlum að kíkja í bæinn á morgun (með Þuríði í kerru að sjálfsögðu) og fylgjast með mannfjöldanum.
Annars erum við komin uppá hótel sem við ætlum að slappa af eða halda smá partý með nammi og kóki og jú það má ekki gleyma Pet shopinu eða nýja uppáhalds dóti þeirra systra. Njótum þess líka að sofa út í fyrramálið þar sem við höfum þurft að fara á fætur fyrir allar aldir og allir orðnir vel þreyttir en fyrst við megum sofa út þá verðum við ö-a öll vöknuð kl sjö (vona samt ekki).
Hérna eru þær systur í góðum fíling niður í bæ í dag. Mér finnst endalaust gaman að sjá hvað þær eru miklar vinkonur í þessari ferð, mikill kærleikur á milli þeirra og ná endalaust vel saman.
Gangið hægt um gleðinnar dyr um helgina, það hefði ekki verið leiðinlegt að vera gera eitthvað allt annað þessa helgina en við erum að gera en OKKAR TÍMI MUN KOMA .....á næsta ári J þar að segja með strákunum okka rlíka. Svo við njótum þess bara að gera eitthvað fjögur saman og dekrum við flottustu stelpurnar okkar.
Knús í ykkar hús.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
FRÁBÆRT að lesa hvað það gengur vel hjá ykkur bara yndislegt. Líst vel á partýið í kvöld enda föstudagur og vonandi getið þið sofið út á morgun og tekið það rólega. Bara njótið þess að vera þarna og látið stjana við ykkur. Elsku systur þið eruð svo fallegar og góðar saman og auðvitað miklar hetjur. Auðvitað foreldrarnir líka þið eruð BEST!!!!
Kær kveðja af Skaganum úr sólinni, Brynja og co.
Brynja (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 19:14
Kæra fjölskylda þið eruð æðislega dugleg öllsömul....Þuríður er greinilega ofurhetja og systir hennar líka! Knús á ykkur og vonandi gengur allt vel...
Ragnheiður(ókunn) (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 19:45
yndislegar stelpurnar, flottar í kúlunni eða belgnum, njótið dagsins og áfram velgengi.
Didda ókunnug (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 20:18
Kæra fjölskylda, gangi ykkur sem allra best í Svíþjóð! Þetta eru nú bara sætustu systur í heimi! Gaman að heyra hvað gengur vel, Þuríður, þú ert svaka dugleg og Oddný líka að vera svona góð við systur sína! Hér á Íslandi er ljómandi fínt veður, alla vega hér í Grímsnesinu! kærar kveðjur frá Íslandi! Ásdís
Ásdís Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 20:38
Frábært að heyra af ykkur. Þær eru MJÖG nánar þessar systur og eru hvor annarri AFSKAPLEGA mikils virði. Eigið góða helgi
Hólmfríður Bjarnadóttir, 30.7.2010 kl. 21:05
Yndislegt að lesa þessa færslu og sjá myndirnar :) Netknús frá ókunnri konu sem hefur fylgst með til duglegustu stelpnanna á Íslandi (sem eru þó núna í Svíaríki!!)
Ragnhildur, ókunnug (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 21:48
Elsku sterkasta hetja Íslands:)
Til hamingju með útskriftina af spítalanum:)
Þið systur eruð mínar fyrirmyndir:)
Vil þakka ykkur fyrir skvísur,plús Áslaug&Óskar og guttormar:)ég er minnifýlupoki og er mikið duglegri en var,það eigið þið þátt í<3.
Hey KR VANN og er komið í Bikarúrslit:):):):)
Slökunarkveðjur....
Halldór Jóhannsson, 30.7.2010 kl. 22:25
yndislegar systurnar svo sætar og fínar, gaman að sjá hvað Þuríður Arna er hress þrátt fyrir allt sem hún er að ganga í gegn um greinilega mikil karakter hér á ferð. Gangi ykkur áfram svona vel :)
Guðrún ( boston ) (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 22:35
Yndislegt að vel gengur :-) Við höldum áfram að biðja að allt gangi vel. Kveðja til litlu hetjanna því þær eru jú örugglega tvær :):) Guð gefi ykkur öllum styrk.
Kveðja, Unnur Hreins
unnur Hreinsdóttir (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 23:37
Svo sætar og krúttlegar systurnar á myndinni. Ég ætla að halda upp á útskrift Maístjörnunnar á mínu heimili á morgun, þar sem klukkan er orðin svo margt. Góða nótt hetjur og eigið góða drauma.
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 31.7.2010 kl. 00:20
Alveg yndislegt að sjá Þuríður Arna hvað þú ert mikil kjarnakona, þú ert engum lík
Og þú Oddný Erla ert heldur engri lík að vera svona dugleg með systir þinni.
Gott að heyra kæra fjölskylda hvað allt hefur farið vel. Guð geymi ykkur.
Sæunn ókunn (IP-tala skráð) 31.7.2010 kl. 01:45
Frábært að heyra hvað þetta gengur vel :) ég er búin að lesa í nokkuð langan tíma en aldrei commentað áður, fannst vera kominn tími til. Þið öll eruð ofarlega í huga mér oft samt sem áður. Gangi ykkur vel!
Og ekki lítið sætar myndir af sætu stelpunum!
Kolbrún Helga (IP-tala skráð) 31.7.2010 kl. 13:10
Dásamlegt að lesa hvað allt gengur vel. Þær eru flottar systurnar duglegu. Og ekki eruð þið síður flott - hetjurnar foreldrarnir.
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 31.7.2010 kl. 15:07
frábært að sjá hversu vel gengur..duglegu stelpurnar.
Þær eru þvílíkt flottar saman :)
Ragnheiður , 31.7.2010 kl. 15:40
En hvað það er yndislegt að lesa um ykkur Svíþjóðarfarana, tala nú ekki um þegar allt gengur svona svakalega vel.
Þið eruð nú meiru orkuboltarnir stelpur og svo flottar líka.
Haldið áfram að hafa það gott og ég sendi ykkur áfram orkustrauma og hlýjar hugsanir.
Kv. frá ókunnugri Beggu í DK
Begga Kn. (IP-tala skráð) 31.7.2010 kl. 17:09
Einstaklega fallegar systur og ég trúi því vel að þessar blöðrur hafi slegið í gegn. Hugsa alltaf sterkt til ykkar og bið fyrir ykkur. Þið eruð einstaklega sterk og dugleg fjölskylda.
Emma Vilhjálmsdóttir (IP-tala skráð) 31.7.2010 kl. 17:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.