31.7.2010 | 19:16
Svíþjóð - dagur fimm
Dagurinn er búinn að vera frekar rólegur en samt dáltið þreyttur hjá flottustu hetjunni minni sem tók sér smá lúr í göngutúrnum okkar í dag. Við urðum að sjálfsögðu að nýta tækifærið og kíkja í eina, tvær h&m búðir og versla smá skólaföt á þær skvísur enda sú yngri að hefja sína fyrstu skólagöngu í haust. Nota bene er hún búin að reikna eina reiknisbók og nennti nú ekki að vera staldra lengi við plús og mínusinn svo hún er farin að læra margföldun og komin langleiðina með hana. Bara snillingur!!
Þar sem þetta gekk svona líka vel með Þuríði mína þá er búið að breyta heimför og við getum ekki beðið með að knúsa strákana okkar.
En morgundaginn ætla þær systur að skreppa í tívolíið hérna í Stokkhólmi og ég veit að það mun EKKERT stoppa Þuríði mína að fara í öll þau stærstu tæki sem hún hefur stærðina í, verst að hún er frekar stutt í annan endan einsog mamma sín svo hún fær ekki að fara í þau öll einsog "aldur" segir til. Við foreldrarnir erum kanski fegnir þar sem við erum ekki alveg jafn rússíbanaóð og hún. Mikið hlakka ég samt til að sjá hana skellihlæja allan daginn á morgun.
Núna tekur róleg kvöldstund við. Enn og aftur takk fyrir allar kveðjurnar sem þið hafið sent okkur og ég verð að afsaka en ég get því miður ekki svarað mailunum sem ég fæ hérna í gegnum outlookið mitt þar sem hótel-netið leyfir það ekki.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Oddný stærðfræðingur getur þá kanski farið að aðstoða þig í þinni stærðfræði,hehe:)
Orðlaus gagnvart ofurhetjunni....til í allt stórt sem smátt,lætur ekkert stoppa sig,einu né neinu:)
Já njótið þess að sjá þessa gullmola ykkar hlæja og gleðjast út í eitt:)
Elsku Áslaug,ekki afsaka þig neitt....Það erum við/ég sem eigum að ÞAKKA þér/ykkur fyrir að gefa af þér/ykkar þennann mikla tíma í skrif til að gefa okkur fréttir af ykkur..
Takk INNILEGA fyrir mig:)
<3
Halldór.
Halldór Jóhannsson, 31.7.2010 kl. 20:30
Þið eruð bara hetjur og Maistjarnan ykkar er bara flottust og litla blómarósin ykkar er svo flott og dugleg að hjálpa ykkur með stóru syss. Gangi ykkur allt í haginn í Svíaríki og vona svo sannalega að allt muni ganga vel framvegis.
Kv
Sigrún Ólafsdóttir
Sigrún Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 31.7.2010 kl. 20:48
Gaman ad heyra hvad allt gengur vel og takk fyrir ad leyfa okkur ad fylgjast med!Kv.Oddny
Oddny (IP-tala skráð) 31.7.2010 kl. 20:59
Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með. Hlakka til að sjá myndir af Maístjörnunni og Blómarósinni skellihlæjandi í tívolíinu.
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 31.7.2010 kl. 22:30
Alltaf gott að fá góðar fréttir
Hólmfríður Bjarnadóttir, 31.7.2010 kl. 23:41
Mikið er gaman að fylgjast með því hvað allt gengur vel! Ég hlakka til að sjá myndir úr tívolí-ferðinni þegar þar að kemur og finnst frábært hvað Þuríður er eiturhress alltaf! Gangi ykkur áfram svona vel og skemmtið ykkur eins og vitleysingar í tívolíinu, það er eitt af því besta þegar maður fer út fyrir landsteinana. Sendi systrunum sérstakt SYSTRAKNÚS þar sem þær eru svona yndislegar saman.
Ásdís (IP-tala skráð) 1.8.2010 kl. 00:39
Frábært að heyra að allt gangi svona vel hjá Maístjörnunni þinni og rosalega er hún Oddný Erla Blómarós klár í stærðfræði. Hún verður ekki lengi að rúlla þessu upp þegar hún byrjar í skólanum í haust.
Aníta Ósk (IP-tala skráð) 1.8.2010 kl. 00:42
mikið er nú gott hvað ferðin hefur gengið vel og að stelpurnar hafa getað skemmt sér þó tilgangur ferðarinnar sé nú ekki mikið skemmtiefni en ég er svo glöð að heyra að allt hefur gwngið vel og að allir sæeu hressir og svo óska ég ykkur bara góðrar ferðr heim aftur ;* STÓRT knús til ykkar allra :)
Kv. Tinna :)
Tinna Rut (IP-tala skráð) 1.8.2010 kl. 08:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.