Leita í fréttum mbl.is

Afsakið hlé....

Við erum komin heim og ég hef bara verið algjörlega tóm síðan við komum heim.  Mikill léttir að þessari meðferð er lokið og svo mikill kvíði fyrir því hvernig meðferðin tókst þar að segja tókst að drepa þetta æxlið, "poppa" upp önnur æxli í kjölfarið, hvernig koma aukaverkanirnar út og svo lengi mætti telja.  Núna tekur við bið, það getur tekið allt uppí ár til að sjá hvernig þetta tókst og það getur líka tekið allt uppí ár eftir að aukaverkanir láti sjá sig. 

Hrikalega erfiðir mánuðir framundan því við vitum EKKERT en læknarnir okkar úti voru mjög ánægðir hvernig meðferðin tókst þó svo æxlið var búið að stækka um nokkra mm síðan í maí en þá var það ekki óviðráðanlegt einsog þeir sögðu þar að segja fyrir "gammahnífinn" en þeir voru dáltið smeykir hérna heima ef við myndum þurfa bíða of lengi eftir að komast undir "hnífinn" þá þyrfti að hugsa uppá nýtt hvernig meðferð hún ætti að fara í.  Enn sem betur fer kom ekki af því.

Á þessum tíma vorum við búin að ákveða (ásamt hennar "team-i) að losa okkur við "brunninn" hennar en því miður breyttust aðstæður í maí og á "brunninum" þarf hún á að halda.  Það kom líka til greina að minnka enn meira flogalyfin hennar með haustinu en það breyttist að sjálfsögðu líka því miður.  Í staðin þyrfti frekar að stækka skammtinn hennar þar að segja ef hún fengi fleiri krampa en þennan um miðjan júlí. 

Já þetta er allt saman ósanngjarnt!! Maístjarnan mín er samt mjög hress en þreytt. 

Eigið góða helgi, væri til í að eyða þessari helgi í berjatýnslu með börnunum.  Veit einhver hvar/hvort ég get fengið vel þroskuð ber einhversstaðar, ekki mjög svo langt frá borginni?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Áslaug mín.  Sendi þér hlýjar hugsanir og vona að þið fjölskyldan fáið styrk hvert af öðru.  Það er mikið á ykkur lagt, enn einu sinni og ég veit að þið komist í gegnum þetta eins og annað.  Duglega fólk

Berjaspretta er víða komin vel á veg - held að það hljóti að vera hægt að fara hér upp í Mosfellsdal/heiði og í hlíðum Esju inni í Mosfellsdal - eins og þið væruð að fara á Móskarðshnúka.  Svo er í Brynjudal og víðar og víðar....   (ég fer vestur fljótlega - er búin að smakka ber þaðan og þau voru ótrúlega stór og ljúffeng... nammi namm).

Kveðjur á liðið þitt allt.

Stella

Stella A. (IP-tala skráð) 6.8.2010 kl. 15:02

2 Smámynd: Jóhannes Birgir Jensson

Nesjavallavegur er umkringdur þokkalegu berjalandi líka.

Jóhannes Birgir Jensson, 6.8.2010 kl. 15:51

3 identicon

Eitt Stórt knús á ykkur öll.  Það er örugglega gott að fara í berjamó til að dreifa huganum. Ég var eimitt að spá í að skella mér á sunnud. í berjamó. Miðað við það sem maður er að heyra þá er það ekkert of snemmt. Eigið góða helgi, kæra fjölskylda.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 6.8.2010 kl. 17:49

4 identicon

Vildi bara kvitta fyrir innlitið... Kíki á síðu ykkar reglulega til að sjá hvernig gangi.

Gangi ykkur rosalega vel á komandi mánuðum

Kv. Sandra

Sandra (IP-tala skráð) 6.8.2010 kl. 18:22

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Gott að þetta tókst allt vel og nú er bara að biðja Guð um góðan bata og þakka honum um leið fyrir Gammahnífinn, ég meina að hann skuli vera til og hægt skuli vera að nota hann á þennan hátt.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 6.8.2010 kl. 18:33

6 identicon

Fræabært að heyra að allt hafi gengið vel í Svíþjóð og vonandi hefur gammahnífurinn náð að drepa æxlið.

Það er allt morandi í berjum á Þingvöllum og vel þroskuð.

Kv.

Aníta Ósk

Aníta Ósk (IP-tala skráð) 6.8.2010 kl. 21:36

7 identicon

Það kemur að því að hún losnar við brunninn og lyfin.... eg er alveg viss um það.

Katrín Ösp (IP-tala skráð) 9.8.2010 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband