Leita í fréttum mbl.is

Sá tími sem við ætluðum..........

Maístjarnan mín er þreytt. 

Þetta er sá tími sem við ætluðum að vera laus við öll veikindi, tíminn sem Maístjarnan mín ætlaði að fara njóta lífsins einsog heilbrigt barn, tíminn sem ég ætlaði að sjá hana blómstra, tíminn sem við ætluðum að minnka enn meira flogalyfin hennar, tíminn sem við ætluðum að losa okkur við "brunninn" hennar, tíminn sem ég ætlaði að fara pirra mig á einhverju sem skiptir engu máli, tíminn sem við ætluðum að hætta hafa áhyggjur, tíminn sem Blómarósin mín ætlaði líka að blómstra sem hún og hætta að hafa áhyggjur af stóru systir ENN nei þetta er greinilega ekki sá tími.

Bráðum eru komin heil sex ár síðan Maístjarnan mín veiktist og það er löööööngu komið gott af þessari veikinda"súpu".  Afhverju er verið að pína hana svona mikið, þetta er óendanlega sárt.  Nei hún kvartar nánast aldrei en stundum langar mig að heyra hana kvarta bara svo ég fái að vita hvernig henni líður.  Ekki misskilja mig, mig langar ekki að henni líði illa mig langar bara heyra hvernig henni líður.  Hún á bara erfitt með að tjá sig, finna réttu orðin svo fara þau öll í "flækju" en henni langar svo mikið.

Það var samt svo gaman hjá okkur áðan, við mæðgur kíktum í sund  og Maístjarnan mín skríkti/öskraði af kæti allan tíman sem hún var í rennibrautinni held að allir í sundinu hafi heyrt í henni og ö-a inní klefana.  Eftir fimmtán (blómarósin mín taldi) ferðir í rennibrautinni vildi Maístjarnan mín fara heim því þá var hún búin á því og að sjálfsögðu fórum við uppúr.

Já mér finnst þetta allt saman SKÍTT og skil ekki þennan tilgang og mun aldrei skilja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

æi ... ég vildi ég hefði einhver svör...

Katrín Ösp og Ólöf Alda (IP-tala skráð) 12.8.2010 kl. 15:57

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Auðvitað er þetta skítt og gott að skulir skrifa það hér að þér finnist þetta SKÍTT.

En svona er ekki hægt að svara - það vantar orð.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 12.8.2010 kl. 16:16

3 Smámynd: Halldór Jóhannsson

__________________Á enginn orð.....

Sendi KÆRLEIK-HLÝJA STRAUMA-BARÁTTUKVEÐJUR-GOTT KNÚS SEM OG ENDALAUST AF <3<3<3<3<3<3..

Þið eruð EINSTÖK...og svo MIKLAR HETJUR...

Vildi svo getað tekið þetta af hetjunni stóru...

Halldór Jóhannsson, 12.8.2010 kl. 16:19

4 identicon

Já, þetta er skítt.  Enginn getur sett sig í spor ykkar.  Með kærri kveðju frá Þorgerði.

Þorgerður (IP-tala skráð) 12.8.2010 kl. 16:22

5 identicon

Æ, elskan litla.Ég segi eins og fl.&#39;&#39;ég finn ekki orðin.&#39;&#39;

Sendi ykkur bata og baráttukveðjur.

Halla frænka.

Halla (IP-tala skráð) 12.8.2010 kl. 21:07

6 identicon

Já þetta er vægast sagt mjög skítt, og sjaldan sem maður óskar þess jafn heitt að geta gert eitthvað.

Þið eruð óendanlega miklar hetjur og standið ykkur vel í þessari erfiðu baráttu.

Risa knús til ykkar!

ps. Gaman að heyra af skemmtilegri sundferð, trúi því að þetta hefur verið mikið stuð ;)

Katrín (IP-tala skráð) 12.8.2010 kl. 23:29

7 identicon

Já þetta er helvíti skítt og gott hjá þér að segja það upphátt. Og já þetta átti að vera tíminn sem að þú væri að velta og pirrast yfir einhverju sem skiptir engu máli.

Mér finnst þetta komið gott og að þið séuð búin með ykkar pakka og ég segi eins og fleiri finn ekki orðin til að reyna að hughreysta ykkur. Þið eruð svo endalaust dugleg og sterk kæra fjölskylda.

Það kemur dagur eftir þennan dag og ég vona að guð gefi ykkur betri dag á morgun og það sem eftir er.  

Berglind Hafþórsdóttir (IP-tala skráð) 12.8.2010 kl. 23:36

8 identicon

Það er oft mjög erfitt að skilja hve mikið er lagt á sumt fólk og hvað þá sum börn, en það er víst bara eitt hægt að gera og það er að halda áfram að vona og vona að nú fari þetta að vera komið gott. Guð leggur ekki meira á mann en maður getur höndlað, eða svo verðum við að trúa! Þið eruð ótrúlega duglegar mæðgur!

Guðrún (IP-tala skráð) 13.8.2010 kl. 07:41

9 identicon

Það er einfaldlega ekki hægt að skilja þetta. Vona bara að þessu sé að ljúka hjá ykkur. Löngu kominn tími til!!!

Ég fór í Ljósið á miðvikudaginn og ég skil bara ekkert í sjálfri mér að hafa ekki farið þangað fyrr, mikið rosalega er gott að koma þangað. Vel tekið á móti manni. 

Hafið það sem allra best kæra fjölskylda, njótið helgarinnar.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 13.8.2010 kl. 15:06

10 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Sendi ykkur baráttukveðjur.

Benedikt Halldórsson, 13.8.2010 kl. 19:29

11 Smámynd: Ragnheiður

Þetta er ömurlega skítt

Ragnheiður , 13.8.2010 kl. 23:13

12 identicon

Sendi ykkur risa knús og alla englanna mína

Jóhanna (IP-tala skráð) 14.8.2010 kl. 05:19

13 identicon

Ágæta Áslaug mín,lífið er oft erfitt,og ég skil reiði þína að dóttir þín skuli þurfa að ganga þennan erfiða veg.En reyndu að láta reiðina ekki yfirtaka allt,njóttu hvers dags og vertu til staðar eins og þú svosem  ert fyrir öll börnin þín.Þú ert heppin að geta gert allt það sem maður les um hjá þér,það eru ekki allir sem hafa td fjárráð til að fara í utanlandsferðir og þessháttar.Gleymdu ekki heilbrigðu börnunum þínum.Þau þurfa svo mikið á þér að halda.Ég óska ykkur öllum góðrar heilsu og hamingju á komandi árum.Að lifa og deyja er það eina sem við vitum þegar við fæðumst,og við fáum mislangan tíma hér á jörðinni.Blessi þig Áslaug

Margret (IP-tala skráð) 14.8.2010 kl. 18:14

14 Smámynd: Signý og Svenni

Hef nú ekki staðið í þessari baráttu nálægt því eins lengi og þið en úff hvað ég skil þig vel. Að hafa áhyggjur af algjörlega tilgangslausum hlutum er eitthvað sem væri svo kærkomið. Og stundum þarf maður bara aðeins að fá að öskra yfir óréttlætinu í þessu lífi. Gangi ykkur endalaust vel. Við hugsum til ykkar.

Signý og fylgifiskar

Signý og Svenni, 15.8.2010 kl. 12:49

15 identicon

Já, segi eins og fleiri á engin orð, en sendi eina stóra kærleikskveðju

Kristín (IP-tala skráð) 15.8.2010 kl. 22:32

16 identicon

 Lifið er skrýtið  , sendi þér og ykkur Risastóra kærleiksnúskveðju

kveðja að austan

Dagrún (IP-tala skráð) 16.8.2010 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband