Leita í fréttum mbl.is

Sumarbústaður og Stokkseyri

Yndisleg helgi að ljúka sem við eyddum í sumarbústað og enduðum svo á Stokkseyri að taka upp nokkrar kartöflur en það var hið árlega "kartöflukeppni" okkar fjölskyldunnar (amma og afi, börn og barnabörn).  Að sjálfsögðu var kíkt niður í fjöru og týnt nokkra krabba, þetta finnst krökkunum ÆÐI.  Mér finnst ofsalega mikilvægt að eyða miklum tíma með börnunum mínum, gera eitthvað skemmtilegt saman sem við gerum mjög mikið af en þá er ég farin að sakna þess oggupínupons að vera ein með Skara mínum, væri alveg til í helgarferð í sumarbústað, grilla, sauma í, horfa á dvd og gera í náttgallanum allan tíma.  ....set þetta í planlistan fyrir jól, kanski eitt stk bíóferð og útað borða líka.

Maístjarnan mín er bara þokkalega hressSideways, kvartar ekkert og nýtur þess bara að vera til!!  Hún sýnir ágætis framfarir, það gengur allt mjög hægt og rólega.  Hún má taka ALLAN þann tíma sem hún þarf, hennar tími kemur í ÖLLU. GETA, ÆTLA, SKAL!!

Hérna koma nokkrar frá deginum í dag:
IMG_4168
Ofur-töffarinn hann Theodór fann eitt stk krabba niður í fjöru og var alveg ákveðinn að taka hann með sér heim og sýna krökkunum í leikskólanum en það var víst ekki í boði og herra krabbi varð eftir á Stokkseyri.
IMG_4129
Maístjarnan mín var mjög stollt af medalíunni sinni sem hún fékk í "kartöflukepnninni" enda ekki oft sem stúlkan fær medalíu.
IMG_4144
Blómarósin mín lét sér nægja að halda á "dverg" krabba en hún hefði geta eytt heilum degi í fjörunni bara að velja sér kuðunga og skoða "sjó"lífið enda sú allra fallegasta fjara sem ég veit um.
IMG_4159
Mömmupungsanum mínum fannst heldur ekki leiðinlegt að leika sér í fjörunni en þarna var honum orðið "kal" (kalt)einsog hann sagði sjálfur.

Sem sagt bara fullkomin helgi að ljúka og núna ætla ég að taka fram saumadótið mitt og halda áfram að sauma fyrir jólin enda BARA 89 dagar til jóla.  Víííí!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skemmtilegar myndir af gullmolunum ykkar.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 27.9.2010 kl. 16:41

2 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Gaman að lesa,skemmtilegar myndir,Jú ein í koti líka,Jólin koma-ótrúlega dugleg...

Kveðja...

Halldór Jóhannsson, 27.9.2010 kl. 22:47

3 identicon

Greinilega góð helgi að baki :)

Rakel Sara Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 30.9.2010 kl. 15:45

4 identicon

Flottar myndir af prinsum og prinsessun :)  og góð helgi hefur þetta verið :)

og jólin  verða komin áður en við er litið , ótrúla stutt í þau .

kærleikskveðjur að austan

Dagrún (IP-tala skráð) 3.10.2010 kl. 09:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband