Leita í fréttum mbl.is

Ég þoli ekki október mánuð

Þá er komið að þeim mánuði sem ég HATA mest, afhverju?  Jú vegna þess þegar við höfum fengið slæmar fréttir þá koma þær oftast alltaf í október.  Fyrstu slæmu fréttirnar í október voru 25.okt'04 eða þegar Maístjarnan mín veiktist fyrst og þeim degi gleymi ég ALDREI og svo hafa þær komið alltof oft eftir það í október mánuði.

Maístjarnan mín ætti með réttu að fara í sýnar næstu rannsóknir síðasta þriðjudaginn í okt en við báðum læknanna okkar að breyta því sem ég er mjööööög fegin.  Vegna allra slæmu fréttana sem við höfum fengið (í okt) og vegna þess að hennar stærsti draumur á að rætast stuttu eftir það og EF það kæmi ekki gott útur rannsóknunum veit ég að við myndum ekki njóta þess jafn mikið, en í staðin fáum við að gera eitthvað brjálæðislega skemmtilegt og láta hennar STÆRSTA draum rætast.  Ég var reyndar alltaf búin að lofa henni að þessi draumur myndi rætast fyrsta lagi þegar hún myndi fermast en aðstæður breyttust í maí þegar hún greindist aftur og vildi helst gera þetta NÚNA.  Ég er sjálf að deyja því ég er svo spennt og langar endalaust mikið að segja henni frá þessu en ef ég myndi gera það, þá myndi Maístjarnan mín ekki sofa þanga til.Grin   Þannig í staðin fær flottasta stelpan að fara í sínar þriggja mánaða rannsóknir 9.nóv eða tveimur vikum seinna en hún hefði átt að gera.

Maístjörnunni minni líður ágætlega, ég fór einmitt á foreldrafund uppí skóla á föstudag og auðvidað stendur hún sig ágætlega miðavið allt saman.  Viljinn er mikill hjá henni og hún hefur sýnt ótrúlega miklar framfarir á bara ári, það verður einhverntíman alveg hrikalega mikið úr þessari stelpu.  Hún er líka rosalega ánægð í skólanum enda ekki annað hægt þegar hún er með þrjár stelpur í fjórða bekk sem sitja henni (3 og 4 bekkur saman) sem eru alveg yndislega góðar við hana og passa vel uppá hana, það er ekki hægt að biðja um meiri kærleika einsog hún fær frá þeim.  Greinilega vel uppaldar stelpurWink.

Það var líka foreldrafundur hjá Blómarósinni minni, þetta er allt að koma hjá henni þar að segja félagslega enda þrusu erfitt fyrir hana að þurfa kveðja bestu vinkonurnar úr leikskóla(leikskólinn hennar var ekki í hverfinu), fara í alveg nýtt umhverfi og hafa þurft að upplifa svona erfitt sumar með systur sinni.  Henni gengur endalaust vel í skólanum eða einsog kennarinn hennar orðaði það "spurning um að senda hana bara beint í Háskólann".Wink Hún er fluglæs og komin í annar bekkjar bók í stærðfræðinni sem hún flýgur reyndar í gegnum einsog ég hef oft sagt þá er Blómarósin mín ekki 6 ára, hefur þurft að þroskast alltof hratt síðustu ár.

Ég vona að þessi október mánuður verði sá besti síðan 2004, hvað þá nóvember þegar Maístjarnan mín fer í rannsóknir sínar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Þær eru snillingar snillinganna á heimilinu:)

Vona að Okt...Nov...Des....Jan..og....verði bara betri og betri.....

Aldeilis gaman að lesa um kærleik stelpnanna...

Halldór Jóhannsson, 3.10.2010 kl. 16:07

2 identicon

Vona að þið fáið góðar fréttir í nóvember og að október verði góður núna :) Er orðin mjög forvitin hver draumurinn er:) 

24.október 08 er dagurinn hjá mér sem við fengum mjög slæmar fréttir í sambandi við son minn, ég skil þess vegna hvernig þér líður í sambandi við 25.okt hjá þér, sniðugt hjá þér að fá að fresta skoðuninni fram í nóvember.

Guðrún ókunnug (IP-tala skráð) 3.10.2010 kl. 16:30

3 identicon

Eigið góðan október kæra fjölskylda, kominn tími til! Það eru fleiri forvitnir!

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 3.10.2010 kl. 17:33

4 identicon

Vonandi gengur allt sem best hjá ykkur. Yndislegar stelpur sem þú átt.

Sigrún Þórisdóttir (IP-tala skráð) 3.10.2010 kl. 17:56

5 identicon

Hugsa til ykkar, gangi ykkur vel frábæra fjölskylda

Krisín (IP-tala skráð) 3.10.2010 kl. 18:54

6 identicon

Kæra fjölskylda þið eruð svo dugleg vá vá það er svo gaman að geta fylgst með ykkur þið eruð svo jákvæð og dugleg, maður er bara líka bara orðin spenntur að fá að vita hvað þið eruð að fara að gera ;-) hugsa oft til ykkar þegar maður er eitthvað að vorkenna sjálfum sér ussss dáist að því hvað þið eruð dugleg með fallegu börnin ykkar að gera hluti

stelpumamma (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 16:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband