Leita í fréttum mbl.is

Stærsta og besta fyrirfram jólagjöfin kemur í næstu viku.....

Tíminn er rosalega fljótur að líða aðeins 52 dagar til jóla og við fjölskyldan erum hrikalega spennt enda ætlum við að fá BESTU fyrirfram jólagjöfina í næstu viku (rannsóknir Maístjörnu minnar).  Það er margt framundan hjá okkur, mikið að hlakka til sem ég reyni alltaf að hafa.  Hinrik minn Örn litli mömmupungurinn verður tveggja ára í þessum mánuði eða 25.nóv og að sjálfsögðu er búið að panta sveinka til að mæta í afmælið.  Þegar haldið er uppá afmælið hans er bara byrjunin á skemmtilegu tímabili eða eiginlega jólunum og þess vegna verður sveinki ALLTAF að mæta og skemmta krökkunum.  Í fyrra mætti sá allra hressasti sveinki sem ég hef nokkurn tíman hitt og hann ætlar að mæta aftur en ekki hvað? InLove ....þökk sé bróður mínum.

Á morgun eða réttara sagt í fyrramálið þegar Maístjarnan mín hún Þuríður Arna vaknar verður henni tilkynnt að um helgina fær hún að upplifa sinn ALLRA ALLRA stærsta draum og ég get ekki beðið eftir að sjá svipinn hjá henni.  Blómarósina mín hún Oddný Erla er búin að vita þetta allan þann tíma eða síðan þetta var ákveðið og staðfest og fólki finnst alveg ótrúlegt að sex ára gamalt barn geti þagað yfir svona leindarmáli, jú mikið rétt hún hefur ekki sagt orð við systir sína eða aðra.  Einsog ég hef oft sagt áður þá er hún ekki einsog sex ára, þvílíkur snillingur hér á ferð en líka ofur viðkvæmt blóm sem þarf að passa vel uppá.  Hún er að deyja úr spenning yfir þessu öllu saman og er jafn spennt og við að tilkynna þeirri eldri þetta í fyrramálið.  Við hefðum aldrei geta látið þennan draum hennar rætast nema vegna góðs fólks sem hjálpaði okkur að gera hann að veruleika sem við verðum endalaust þakklát fyrir.  Blush  Vávh það eru ekki til orð yfir þakklætinu mínu.

Sem sagt mjög skemmtilegir mánuðir framundan og góðir þar sem það koma BARA GÓÐAR fréttir í næstu viku enda ekkert annað í boði.   En þið verðið samt að bíða aðeins eftir að fá að vita drauminn hennar sem rætist um helgina þar sem þið fáið ekki að vera á undan henni að vita hann.Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er að kafna úr forvitni híhí  er spennt fyrir ykkar hönd og hlakka til að fá blogg með frábærum fréttum að rannsóknum loknum!

Gangi ykkur vel

Helga, ókunnug

Helga (IP-tala skráð) 2.11.2010 kl. 13:31

2 identicon

Megi stærsta og besta jólagjöfin vera handan við hornið<3..

Já hún Oddný Erla er snillingur...á ekki orð yfir hvað stúlkan er mikil manneskja:)

Sveinki kallinn klikkar ekki ef þú kannast við kauða:)

Megi komandi stundir vera ykkur góðar og skemmtilegar<3..

Kærleikskveðja..

Halldór.

Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 2.11.2010 kl. 13:32

3 identicon

Gaman að heyra að draumurinn er að rætast , þetta verður spennandi :) gaman að fá hann jóla í heimsókn aðeins fyrir , allir hér eru orðnir spenntir , og bíða og bíða eftir að jólasveinninn fari að koma :) 

megi komandi stundir verða ykkur ánægðulegar

kærleiksknúskveðjur að austan :)

Dagrún (IP-tala skráð) 2.11.2010 kl. 18:46

4 identicon

Ég bíð spennt að vita leyndarmálið um STÓRA DRAUMINN.

Frábær tími framundan hjá ykkur, ekkert annað í boði!!!! 

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 2.11.2010 kl. 21:18

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ég hlakka virkilega til að frétta hvað er á döfinnu og ekki síður um gleðina hennar Þuríðar Örnu.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 2.11.2010 kl. 21:44

6 identicon

 Gaman, góðar stundir við að upplifa drauminn!

Dagný Gísladóttir (ókunnug) (IP-tala skráð) 2.11.2010 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband