26.11.2010 | 10:38
1.feb'11
Maístjarnan mín fallega fór í tjékk uppá spítala og læknirinn okkar var alveg sammála okkur að hann er farinn að sjá lömun hægra megin á líkama hennar og í munninum sem við vorum ekki farin að taka eftir. Hún er orkuminni og farin að borða minna en venjulega, hún er nú mikið matargat fyrir en það hefur minnkað og á hverjum morgni "berst" ég við hana að láta hana borða eina brauðsneið mínus skorpa en ég geri ALLT til að láta hana borða eitthvað og þá dekra ég sko við hana og sker skorpuna í burtu. Hún var einmitt vigtuð hjá doktornum og hún er búin að léttast um kg á tveim vikum sem er nú bara heilmikið fyrir litla kroppinn hennar en sem betur fer er hún með smá forða. Þó svo hún sé "bara" búin að léttast um kg sér maður strax mun á fötunum hennar.
Læknarnir eru reyndar mjög hissa á því að hún er ekki farin að sýna meiri aukaverkanir en þetta þar sem æxlið er HUGE (af bólgum) en Maístjarnan mín er nú ekki vön að fylgja einhverjum "reglum" og vonandi verða þær ekkert mikið meiri en fyrir er.
Næstu rannsóknir hjá henni verða þriðjudaginn 1.febrúar (ef allt gengur að óskum sem það muna gera) en við ætlum ekkert að hugsa um þær strax, það er svo margt skemmtilegt framundan og margt til að gleyma sér í. Jólin okkar uppáhalds tími sem við ætlum að njóta í botns en ekki hvað? Helgin er að sjálfsögðu "pökkuð" hjá okkur og við ætlum t.d. að mála á piparkökur í kvöld og þau eru hrikalega spennt fyrir því. En við ætlum bara að pakka inn áhyggjunum sem fylgja 1.feb nk ofan í pappakassa, festa slaufuna fast á hann og ekki opna hann fyrr en þá þar að segja 1.feb 2011.
Eigið yndislega helgi.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
253 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Tendra ljósin fyrir ykkur duglega fjölskylda og bið guð að gæta ykkar. Njótið helgarinnar og þessa fallega tíma sem nú er fram undan Aðventan...uppáhaldstíminn á mínu heimili líka
Kærleiksknús frá 4 barna mömmunni
4 barna mamman (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 11:27
frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 14:36
Góða helgi frábæra fjölskylda og það er snilld að ætla bara að pakka áhyggjunum niður í kassa og setja fallega slaufu á hann, fleiri ættu að taka sér það til fyrirmyndar!
Kveðja af hinum stillta og kyrrláta Skaga..... Helga
Helga Arnar (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 15:10
ég fer með bænir fyrir hana, gangi ykkur æðislega vel.
silla (einammaafnorðan) (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 15:33
Já og fela hann niðri geymslu..... Hafið það gott á aðventunni kæra fjölskylda.
Berglind (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 17:19
Góða helgi.
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 21:05
Setjum kvíðann á hold og njótið árstíðarinna elskurnar mínar. Þið erum svo dugleg og frábærar manneskjur.
Bið fyrir henni og ykkur öllum þar með
Ragnheiður , 27.11.2010 kl. 00:42
Geta aukaverkanirnar gengið tilbaka? Eða hvernig virka þær? Ég þekkji svo lítið til svona.
En annars knús til ykkar og góða skemmtun í kvöld :)
Guðrún ókunnug (IP-tala skráð) 27.11.2010 kl. 19:17
Góða helgi fallega fjölskylda. Ánægð með planið að pakka áhyggjunum inn og einbeita ykkur að jólunum og öllu því fallega sem fylgir þeim.
Rakel Sara Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 01:38
Njótið aðventunnar og helgarinnar.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 28.11.2010 kl. 03:03
Sendi ljós og bænir á ykkur..kannski ekki auðvelt..en reynið að ýta þessum erfiðu hugsunum frá í bili og einblía á jólin og alla þá gleði sem þau færa okkur<3
Njótið aðventu og jóla sem allra allra best<3
Bergljót Hreinsdóttir, 2.12.2010 kl. 00:29
Elsku yndislega fjölskylda.
Ég átti mjög erfitt með að lesa bloggið þitt núna Áslaug, þið eruð svo ótrúleg fjölskylda, allt sem þið gangið í gegnum og þú deilir hér á blogginu þínu mín kæra. Ég dáist að ykkur öllum, þið eruð svo miklar hetjur og það eru mikil forréttindi að fá að kynnast ykkur
.
Sendi ykkur styrk, ljós og gleði og óska þess alla daga og nætur að Þuríður Arna sigri og þið fáið að lifa lífinu áhyggjulaus saman
Mikið knús til ykkar allra
Stína (Garðars) (IP-tala skráð) 4.12.2010 kl. 22:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.