21.12.2010 | 10:45
Mikil vanlíða
Maístjörnunni minni líður ekkert svakalega vel á þessum sterum, maginn orðinn svo útþaninn, mikil bjúg í kinnunum, andadrátturinn mjög þungur, henni er svo illt, svöng, þyrst og þreytt. Er hægt að líða eitthvað verr? Fengum smá fyrir svefninum hennar í gær en það dugði til hálf fjögur í nótt en þá vorum við mæðgur mættar frammí stofu að borða morgunmat (þar að segja Þuríður) og horfa á teiknimyndir og ég sat rangeygð í lazy boynum á meðan. Hún er ótrúlega óhamingjusöm þessa dagana einu skiptn sem ég sé hana brosa eða hlæja er þegar við mætum á leikstofuna uppá spítala enda höfum líka gert það á hverjum degi, bara til að sjá smá bros á minni. Logi Geirs handbolta-stjarna mætti einmitt þangað í gær ásamt gluggagægir vini okkar (sá allra skemmtilegasti jólasveinn sem ég hef hitt), Friðrik Dór söng nokkur lög og svo Birgitta Haukdal en hún tók smá viðtal við stelpurnar mínar sem mun koma í "fyrstu skrefin" á mbl.is. Ísland í dag var líka á svæðinu og tók viðtal við okkur mæðgur og ég veit ekki hvort það komi í kvöld?
Já það er mikil vanlíða hjá Maístjörnunni minni, engin tilhlökkun í gangi gagnkvart jólunum eða hún sýnir það allavega ekki. Mig langar bara að fá Þuríði mína tilbaka, mig langar svo að henni fari að líða vel, mig langar að sjá hana glaða, leika sér í nitendo sem hún elskaði en hefur ekki snert síðan hún lamaðist eða byrjaði á sterunum. Við munum minnka sterana á miðvikudag svo vonandi mun henni þá allavega líða betur á gamlárs sem er hennar uppáhalds kvöld, sjá öll ljósin og lætin en í dag þolir hún ekki mikin hávaða eða áreiti.
Blómarósin mín dettur líka aðeins niður við að sjá systir sína einsog hún er í dag en hún gerir líka allt til að láta henni líða vel eða reyna fá hana til að brosa. Þuríður mín neitar t.d. að taka sterana sína og magatöflurnar en systir hennar hvetur hana endalaust mikið til að reyna taka þau inn og hrósar henni fyrir að vera dugleg en það virkar nánast EKKERT (og þá er nú mikið sagt). Þuríður mín gæti ekki verið heppnari með systir sem er alveg yndislega góð við hana. Mig langar líka að sjá hana aðeins glaðari.
Þetta er allt saman SKÍTT og erfitt, maður er gjörsamlega búin á því en það er ekkert í boði að leggjast eitthvað niður bara standa upp og hvetja Maístjörnuna mína áfram.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
30 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið er sárt að lesa hvernig hetjunni okkar líður núna, sendi massa knús og von um bata sem fyrst....jólagjöfin í ár er klárlega að hún hristir þetta af sér :)
Knús og kremjur á ykkur öll!
Lilja (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 10:58
Sárt að lesa hvað litlu hetjunni líður illa þessa dagana, sendi henni stórt knús með von um betri tíma. Yndisleg systir sem hún á, hún á einnig skilið stórt knús. megi allir góðir vættir gefa ykkur gleði og frið á jólum. Knús og kram á ykkur öll ég mun senda henni batastrauma..
Guðrún ( boston ) (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 11:05
Vona svo innilega að Þuríði fari að líða betur og þá ykkur í framhaldinu af því. Ef ég ætti eina ósk þá veit ég amk hvert sú ósk færi :)
Fæ tár í augun að lesa hvað Oddný er yndisleg systir og góð við Þuríði...greinilegt að hún er vel upp alin...enda topp foreldrar.
Ég held áfram að fylgjast með og kveikja á Þuríðarkertinu okkar..og vona það allra besta!
Knús
Sirrý (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 11:08
Úbs ekki gott frá ykkur nú, bið og bið um að henni fari að líða betur.
Finnst að það séu nýjar fréttir og ekki góðar að hún vilji ekki taka lyfin sín.
Ég geri eins og örugglega allir sem af ykkur vita að biðja Guð um betri líðan fyrir hana og ykkur öll, þetta er tæplega mennskt álag.
frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 11:31
Úff þetta er ekki gott að lesa, vona að ástandið fari nú skánandi þegar nær dregur aðal kvöldinu.
Knús til þín Áslaug mín
Guðný (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 11:54
Ég finn sárt til með ykkur, sendi ykkur faðmlag og góðar óskir.
gþ
gþ (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 12:04
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 13:23
Yndisleg systir sem gerir allt sem hún getur fyrir sína bestu,einu systur og bestu vinkonu. Það sem þetta hefur þroskað systur hennar þuríðar litlu við að annast hana svona mikið með ykkur. Hún hefur mikla og þroskaða samkennd svona ung.
Með von um betri tíma (sem vonandi hefst á Aðfangadegi,uppáhaldsdegi flestra) knús,Auður
Auður (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 13:23
Það er erfitt að lesa færsluna þína kæra Álaug, en hvað er það miðað við að vera þú og vera Þuríður Arna. Sendi mínar heitustu bata og hvíldaróskir til ykkar allra. Kærleikskveðjur
Hólmfríður Bjarnadóttir, 21.12.2010 kl. 13:53
Knús á ykkur duglega fjölskylda þið eruð hetjur!
Kristín Erla (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 14:38
Kæra fjölskylda , sendi ykkur innilegar kveðjur og vona af heilum hug að hetjunni duglegu , fari að líða betur.Sendi ykkur hlýjar kveðjur og bið góðan guð að gefa ykkur góð og friðsæl jól .
hjördís (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 15:03
æj ..þetta voru jólin sem áttu að vera veikindalaus Áslaug mín ..
Oddný litla er ótrúlega góð stúlka og ég veit að Þuríður væri eins góð við hana snerust hlutverkin við.
Bænir mínar fylgja ykkur öllum, elskurnar.
Ragnheiður , 21.12.2010 kl. 15:06
Finn sárt til með ykkur, kæra Áslaug og fjölskylda.
Vona innilega að líðan hennar Þuríðar Örnu batni á næstunni og að þið getið átt þokkalega eðlileg jól og áramót. Sendi ykkur góða strauma og óska ykkur friðar og gleði á hátíðunum framundan.
Jólaknús, Stella A.
Stella A. (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 15:27
Vonandi eigið þið gleðileg jól.
Hrönn (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 15:46
Systur eru ómetanlegar, vona að ykkur farið að líða betur og þið njótið jólann elskurnar.
lov Sigga
sigga gulludóttir (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 16:28
Hvað getur maður sagt annað en.... Ég óska þess að þetta fari allt að lagast hjá ykkur. Þetta er ekki gott ástand hjá ykkur. Kær kveðja til ykkar, Edda
Arnheidur Edda (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 17:00
Sendi ykkur góðar hugsanir kæra fjölskylda.
Linda (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 18:16
Æ hvað þetta hlýtur að vera sárt og erfitt - blessað barnið og þið öll þetta er bara risaverkefni. Bið alltaf fyrir Maistrjörnunni á kvöldin vonandi fer þessu að linna ef hægt er að minnka sterana. Guð veri með ykkur öllum og vonum það BESTA .
kv Sigga D ókunnug
Sigríður K Dagbjartsdóttir (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 19:42
Sendi batastrauma, vona að Þuríði fari að líða betur.
Kristín (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 19:49
Æi mikið fannst mér erfitt að lesa þennan pistil. Vona svo sannarlega að henni fari að líða betur. Guð veri með ykkur.
Elín Helga ókunnug (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 21:02
Baráttukveðjur og stórt knús á ykkur öll kæru vinir, ég hugsa til ykkar og bið fyrir ykkur. Það sem þið hafið kennt mér er að vera ekki að kvarta eða stressa mig á einhverju sem skiptir ekki neinu máli í þessu lífi.
Unnur Ylfa (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 21:07
Vonandi fer henni að líða betur sendi knús á ykkur, það var erfitt að lesa þessa færslu
Álfhildur (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 21:11
Mikið er sárt að lesa fréttirnar af Maístjörnunni, þvílík vanlíðan hjá henni. En elsku Áslaug mín þú ert algjör hetja sjálf, og fyrir alla muni gleymdu ekki sjálfri þér því þú þarft að hvílast líka, ég veit að það er lítill tími . Bið fyrir ykkur.
Bestu kveðjur og knús á línuna. Birgitta
Bigritta (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 21:29
Bið þess innilega að ykkur öllum fari að líða betur.
Hulda Magg Elínardóttir (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 22:45
Vonandi fer litlu dúllunni að líða betur, sendi ykkur stórt knús og bið þess að þið eigið gleðileg jól. Kveðja Hjördís
Hjördís Eleonora Þorkelsdóttir (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 23:23
þið eruð í bænum mínum og kerti er kveikt hjá mér fyrir ykkur
lilja (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 23:40
Gangi ykkur vel í þessari hörðu baráttu sem þið eruð að ganga í gegnum. Ég bið ykkur Guðs blessunar og vona að hann styðji extra vel við bakið á ykkur þessa dagana.
Kveðja Lilja
Lilja Hannesdóttir (IP-tala skráð) 22.12.2010 kl. 00:47
ER með hugan hjá ykkur bataknús til ykkar
Erla Selfossi (IP-tala skráð) 22.12.2010 kl. 00:53
Ég fæ sting í hjartað að lesa færsluna þína og sendi ykkur mínar bestu óskir um góðan bata og vona að Þuríður verði betri um hátíðirnar.
Jólakveðja til ykkar allra.
Hrafnhildur Ýr (IP-tala skráð) 22.12.2010 kl. 08:57
Þið eruð í bænum mínum og ég sendi ykkur styrk. Þið eruð ótrúlega dugleg og sterk fjölskylda
Baráttu og kærleikskveðja,
Agnes Linda
Agnes (IP-tala skráð) 22.12.2010 kl. 09:24
Kæra fjölskylda ég sendi ykkur hlýjar hugsanir. Vonandi fer maístjörnunni ykkar að líða betur.
Linda (IP-tala skráð) 22.12.2010 kl. 10:14
Sá ykkur í fyrstu skrefin,flottar mæðgur og fallegar dætur
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.12.2010 kl. 12:10
Ekki góðar fréttir, en megi algóður guð gefa ykkur styrk í að takast á við ykkar mikla verkefni. Sendi ykkur allar mínar góðu hugsanir , oóska ykkur gleðilegra jóla, knús á Þuríði baráttukonu
Margrér, (ókunn )
Margrét (IP-tala skráð) 22.12.2010 kl. 16:11
Mikið er sárt að lesa fréttirnar af Þuríði og óska ég þess af öllu hjarta að henni fari að líða betur og að þið öll munið eiga gleðilega jólahátíð
Sigga (IP-tala skráð) 22.12.2010 kl. 22:10
Þær voru flottar stelpurnar þínar í sjónvarinu..Vonandi fer Maisjtörnunni þinni að líða betur og þá um leið ykkur öllum. Með ósk um gleðileg jól gott nýtt bata ár ............
Hrafnhildur Jóhannsd (IP-tala skráð) 23.12.2010 kl. 00:36
Elsku Áslaug og fjölskylda. Mikið er sárt að lesa hvað Maístjörnunni líður illa þessa dagana. Ömurlegt bara. En sem fyrr er jákvæðni ykkar, bjartsýni og þrautsegja ótrúleg. Þú ert mögnuð kona Áslaug. En ég sendi bæn um að Þuríði fari að líða betur og að þið eigið yndisleg og gleðileg jól og getið notið þeirra. Takk fyrir að gefa mér hlutdeild í lífi ykkar. En að lokum langar mig að setja inn litla vísu til Þuríðar Örnu sem datt inn í hausinn á mér áðan. Er ekki klár í að yrkja svona en stundum dettur eitthvað svona inn hjá mér.
Jólaljósin ljóma skært
lýsir af fegurstu stjörnu
blessa þú nú barnið kært
bestu Þuríði Örnu.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Jólakveðja og hjartaknús til ykkar :)
Þóra Björg (IP-tala skráð) 23.12.2010 kl. 00:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.