28.3.2011 | 10:23
:(
Ástandið á Maístjörnunni minni er ekkert svakalega gott en hún vaknaði í morgun með mikinn hita og liggur algjörlega fyrir. Hún krampar á hverjum degi og kramparnir eru oftast orðnir tveir á dag svo þeir eru að aukast hægt og rólega. ENN það var samt svo gaman að sjá hana í gær, undanfarnar vikur hefur hún verið að fara inní fataskápinn til þess að máta hinar og þessar flíkur því henni langar svo að klæðast í "venjuleg" föt. Fyrir ca þremur vikum kom hún ekki gallabuxunum sínum uppfyrir mjaðmir en svo ákvað mín að máta þær aftur í gær og viti menn hún komst í þær og við höfðum að hneppa og hún lét sig svo hafa það að vera í þeim yfir daginn þó svo þröngt hefði verið um magann. Það var alveg yndislega gaman að sjá hana í gallabuxum sem hún hefur ekki geta klæðst í síðan í desember þannig núna fer að líða að því að hún fari að geta klæðst jólagjöfunum sínum sem miðarnir hanga ennþá á. BARA GAMAN!! ...sterarnir þvílíkt að leka af henni. En ég er samt ofsalega hræddum ef stúlkan heldur áfram að vera með mikin hita og svona lasin þá þurfi að fara stækka steraskammtinn aftur en það eru bara fjórir dagar þanga til það á að taka þá alveg út. Ég er svo hrikalega stressuð bara fyrir hönd Maístjörnu minnar sem gæti ekki verið spenntari að fara klæðast jólagjöfunum sínum og fá svo eitthvað nýtt gellulegt fyrir sumarið.
Ég var annars fárveik um helgina ég sem verð ALDREI lasin og veit ekki hvað það er. Eiginmaðurinn að vinna um helgina og Blómarósin mín að keppa svo ég varð að bíta í það súra epli að missa af móti Blómarósar minnar sem mér fannst hrikalega erfitt og svo hringja í múttu og biðja hana að taka eitthvað af krökkunum þar sem ég gat enganveginn synt þeim. Þannig helgin var ekkert rosalega skemmtilegt hjá mér en ég er öll að koma til sem betur fer svo ég er 100% hæf að sinna Maístjörnunni minni.
Hérna er Blómarósin frá því í gær (sunnudag), hrikalega flott einsog alltaf. Hún var að sjálfsögðu tekin upp fyrir mig á video svo ég ætla að horfa á hana núna í tv-íinu.
Annars er hún að taka þátt í teiknimyndasamkeppni Stellu McCartney einsog ég sagði ykkur frá í færslunni hér á undan, þar er hún komin í þriðja sæti ef ykkur langar að gefa henni atkvæði klikkið þá hlekinn hérna og gerið "like" og svo klikki þið á "love it" sem er hægra megin við myndina hennar. Þúsund þakkir. http://contest.stellamccartneykids.com/littleproject/participation.php?id=418
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sendi ykkur orku og batabænir
Hólmfríður Bjarnadóttir, 28.3.2011 kl. 12:26
Úbbbs, ALLS EKKI gott að heyra, en gott að heyra að þú tókst þó bara helgina í að vera lasin. 4ra barna mömmur eiga nefnilega ansi erfitt með að vera lasnar jafnvel þó stóri hópurinn sé hress.
Þú ert eins og alltaf hetja hetjanna.
Risaknús í hús
frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 28.3.2011 kl. 14:33
þú ert snillingur að sjá það jákvæða í lífinu, innanum allt það erfiða, þar á ég við þegar þú segir ENN og einnig BARA GAMAN . Blómarósin gullfalleg, og Stjarnan lýsir upp skammdegið.
Kv gþ
gþ (IP-tala skráð) 28.3.2011 kl. 16:52
Blómarósin búin að fá mitt atkvæði, þó það nú væri.
Duglega fólk, risa knús á ykkur og batakveðjur.
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 09:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.