Leita í fréttum mbl.is

Ertu á facebook?

Þá langar mig að biðja þig að vera svo væn að hjálpa myndinni hennar Oddnýjar minnar að reyna vinna í einni myndasamkeppni "Stella McCartney".  Hún á þar inni eina mynd og slóðin að þeirri mynd er:
http://contest.stellamccartneykids.com/littleproject/participation.php?id=418  Þú verður að sjálfsögðu að vera signuð inná face-ið þitt og "like-a" þessa síðu og svo gera "love it" við mynd Blómarósar minnar.  
Þúsund þakkir fyrir hjálpina.  En þetta er mjög auðvelt.

Annars er ástandið á Maístjörnunni minni ekki gott, jújú hún er alveg hress þannig séð en hún er að krampa á hverjum degi fékk meir að segja tvo í gær og gjörsamlega "ónýt" eftir það.  Lagði sig um daginn og sofnaði svo 18:40 í gærkveldi og svaf í tólf tíma og stuttu eftir að hún vaknaði fékk hún aftur krampa.  Það er ofsalega "skrýtið" hvernig hún upplifir þessa krampa sína en hún byrjar á því að öskra (væntanlega af hræðslu því hún veit hvað er í vændum) og svo kemur krampinn en þá dettur hún út á meðan.  Virkilega erfitt!  Ég hef aldrei verið með jafn stóran hnút í maganum einsog núna, HELVÍTI HVELVÍTI.  Afhverju fær hún ekki að lifa sem heilbrigaðst, afhverju þarf það alltaf að vera eitthvað að hjá henni, afhverju þarf hún að þjáðst svona??  Stórt er spurt en fátt er um svör.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Áslaug, ég gat gert þetta við fyrri myndina en svo kom bara error í seinni myndinni... þú kíkir á þetta. Bestu kveðjur og vona heitt og innilega að Þuríði fari að líða betur....og ykkur öllum! ósanngjarnt! Ásdís.

Ásdís Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 24.3.2011 kl. 11:56

2 identicon

stórt knús á ykkur, er búinn að gera like á aðra myndina en seinni linkurinn virkaði ekki :)

Guðrún ( boston ) (IP-tala skráð) 24.3.2011 kl. 12:07

3 identicon

sjálfsagt,fann ekki seinni myndina .Fyrri myndin er flott Guð blessi ykkur og styrki.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.3.2011 kl. 13:49

4 identicon

Sama sagan hjá mér og þeim hér að ofan - blómamyndin virkar ekki.

Sendi kærleikskveðjur til ykkar

Hólmfríður Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 24.3.2011 kl. 14:16

5 identicon

Auðvitað hjálpar maður Blómarósinni.. En því miður gat ég ekki like-að seinni myndina..

Sendi ykkur góða strauma.

Petra Kirstín Kristindóttir (IP-tala skráð) 24.3.2011 kl. 15:22

6 identicon

Búin að kjósa myndina, flott hjá blómarósinni. Hugurinn leitar oft til Maistjörnunnar þinnar og finn engin orð yfir þessu óréttlæti að lítil börn þurfi að þjást svona ár eftir ár.

Kærleikskveðjur

ragna (IP-tala skráð) 24.3.2011 kl. 20:16

7 identicon

Búin að gera like á myndina hjá Oddnýu Erlu blómarós ;) ;)

Vonandi fara þessir krampar að hætta hjá Þuríði Örnu maístjörnu og hún fari að geta lifað lífinu sem allra eðlilegast.

Kv.

Aníta Ósk

Aníta Ósk Sæmundsdóttir (IP-tala skráð) 24.3.2011 kl. 21:11

8 identicon

Er búin að lika og gerðið það með glöðu geði. Góðar kveðjur Stjörnunnar, Rósarinnar og ykkar allra.

gþ (IP-tala skráð) 24.3.2011 kl. 21:51

9 identicon

Kvitt kvitt fyrir fallegu myndinni hennar Oddnýju Erlu :)

Knús á ykkur og baráttukveðja.

Kveðja Jóhanna.

Jóhanna (IP-tala skráð) 25.3.2011 kl. 01:36

10 identicon

Auðvitað set ég "Like" á myndina, þetta er bara skemmtilegt

Ég bið fyrir því að Þuríði Örnu fari að líða betur.

Góða helgi fallega fjölskylda

Helga

Helga (IP-tala skráð) 25.3.2011 kl. 06:38

11 identicon

Elsku Áslaug það er von þú spyrjir, afhverju, afhverju afhverju??????? og svo líka andskotans og allt það í löngum bunum.

Sendi endalaust knús til ykkar frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 25.3.2011 kl. 11:20

12 identicon

Að sjálfsögðu setti ég "like" á myndina :) Vildi samt svo mikið óska þess að ég gæti gert eitthvað mikið meira! Vona að þessum veikindum fari að ljúka svo að þið fjölskyldan getið farið að njóta lífsins öll saman.

Góða helgi til ykkar allra.

Arna Ósk (IP-tala skráð) 25.3.2011 kl. 17:40

13 identicon

Búin að setja like á myndina hennar Oddnýjar, rosa flott mynd =)

En leiðinlegt að kramparnir skulu vera farnir að ágerast...vonandi sleppur hún við að auka aftur sterana, krossa putta og tær ;)

Batakveðjur

Ingveldur (IP-tala skráð) 25.3.2011 kl. 18:09

14 Smámynd: Ragnheiður

Dríf mig í þetta :)

Knús á þig Áslaug

Ragnheiður , 25.3.2011 kl. 20:53

15 identicon

Búin að like á flottu myndina. Já það er helvíti skítt að þið getið ekki lifað eðlilegu lífi. Vona að nú fari sólin að skína á ykkur fallega fjölskylda.

Berglind (IP-tala skráð) 27.3.2011 kl. 15:50

16 identicon

hæhæ

Búin að kvitta á myndina , flott mynd hjá henni :)

vonandi fer þetta að lagast hjá þuríði Örnu

Risaknús til ykkar

kveðja að austan

Dagrún (IP-tala skráð) 27.3.2011 kl. 18:05

17 identicon

Yndisleg mynd ég er búin að íta á ,vonandi fara kramparnir að hætta

kv Dagbjört

Dagbjört Jakobsdóttir (IP-tala skráð) 28.3.2011 kl. 01:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband