13.4.2011 | 09:37
Biðin heldur áfram til 7.júní
Það eru nánast engar breytingar á æxlinu frá því í febrúar sem er að sjálfsögðu gott, geislarnir eru ennþá að vinna sína vinnu en hvursu lengi þeir verða að vinna þá vinnu vitum við ekki. Hvað gerist þá? Einsog læknirinn okkar segir þá er þetta ólæknandi en við vitum að læknavísindin eru alltaf að þróast og ég trúi því að það MUN finnast lækning fyrir Þuríði mína.
Þetta er gjörsamlega að éta mig að innan, ég þrái ekkert heitara en Maístjarnan mín fái að upplifa heilbrigt líf. Þetta verður sem sagt bara áfram bið nema að hún fari að sýna einhverjar verri aukaverkanir þá verður gripið inní......
Hún var frekar þreytt þegar hún fór í skólann í morgun og langaði helst bara að kúra heima með mér en ákvað svo að skella sér í tvo tíma og svo knúsast með mér eftir það.
Við Skari áttum annars kærustupara-helgi um helgina í Boston, ég vann gjafabréf í bingói fyrir áramót frá Icelandair og ákváðum við að nýta það og fara þessa helgi. Við ætluðum reyndar að bíða með það frammí í sumar og fara í sólina eða NY en fundum það að við gátum ekki beðið svo lengi, þráðum smá kærustupara-frí, njóta þess að vera saman, gleyma okkur aðeins og það gerðum við svo sannarlega um helgina. Skoðuðum borgina, kíktum í kirkjur, vínsmökkun (bjórverksmiðja), borðuðum góðan mat og svo lengi mætti telja og jú það má ekki gleyma að ég "gellaði" Maístjörnuna mína upp en ekki hvað (að sjálfsögðu fengu hin líka) og hún er alveg í skýjunum með pilsin þrjú sem ég keypti á hana og gellubolina. Endalaus hamingja og auðvidað eyddi hún deginum í gær (eftir rannsóknir) í að máta öll fötin sín. Það verður sko ennþá meiri hamingja þegar síðustu stera-kg verða farin.
Mig langar í lokin að þakka þeim hjá Icelandair (starfsfólk - þeir sem lesa síðuna mína vita hverjir eiga að taka þetta til sín) fyrir að leyfa okkur að sitja á Saga-class í þvílíku dekri. Nei við pöntuðum okkur ekki Saga-class sæti heldur vorum við uppfærð þangað af þeim. Endalausar þakkir, gaman að láta dekra svona við sig. ...og hótelið sem við fengum var ÆÐI. TAKK TAKK TAKK!!
Sem sagt núna heldur biðin áfram og næstu rannsóknir 7.júní (síðastalagi).
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
253 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Áslaug mín,
mikið er ég ánægð að heyra að þið Óskar áttuð góða helgi saman í Boston.....ekki veitti ykkur af.
Trúi því að góðu fréttirnar bíði ykkar í júní, kveiki á kerti og hef ykkur í bænum mínum áfram.
Kærleiks-baráttuknús til ykkar
Sigrún og co (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 10:11
Æðislegt hjá ykkur að fara til Boston og njóta þess að vera saman. Gangi ykkur allt vel.
Oddný (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 10:13
En yndislegt að þið fenguð smá frítíma fyrir hvort annað, held að enginn eigi það meira skilið en þið tvö
Sendi ykkur hlýjar hugsanir og góða strauma í biðinni sem framundan er
Berglind (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 10:40
Húrra húrra æðislegt að ekki hafa orðið neikvæðar breytingar
Og yndislegt að heyra af helginni ykkar Skara.
Ég veit að biðin eftir 7 júní verður erfið og étandi, en það er bara trúin, vonin og kærleikurinn sem þú ert svo dugleg að hafa í þínu lífi, sem blífur.
Sendi RISAKNÚS í hús, frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 10:50
Komið þið sæl, ég þekki ykkur ekki, en ég þekki Jesúm Krist sem hefur læknað mig stórkostlega af ólæknandi sjúkdómi og ekki bara mig heldur marga fleiri, ég hvet þig til að snúa þér til Lindarinnar útvarpsstöðvar til að byrja einhvers staðar og fá fyrirbæn. Svo getið þið farið með barnið ykkar í Fíladelfíu og látið biðja fyrir henni. Þið hafið engu að tapa. Guð blessi ykkur.
Jórunn (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 11:01
knús og kram til ykkar elsku Áslaug mín
Guðrún unnur þórsdóttir, 13.4.2011 kl. 11:12
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 11:36
Mikið er ég glöð að heyra að það hafi ekki verið nein breyting og að geislarnir séu enn að vinna. Ég er líka sannfærð um að einn góðan veðurdag finnst lækning, það er ótrúlegt hvað læknavísindin geta gert.
Frábært að heyra að þið Skari hafið átt góða helgi saman fyrir rannsóknirnar, mér finnst að þið eigið ekki að breyta þeirri venju, þ.e. að hafa kærustupara-helgi fyrir rannsóknir.
Ég get sko vel ímyndað mér að Maístjarnan hafi verið ánægð með gellufötin því það er sko alveg hægt að vera fínn í gellufötum þó maður sé með nokkur aukakíló (tímabundið).
Biðin til 7. júní verður örugglega ekki auðveld en nú fer veðrið vonandi að batna og það gerir allt miklu auðveldara.
Hugsa til ykkar og bið fyrir ykkur - Helga
Helga (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 11:53
Þetta var sko það sem ykkur raunverulega vantaði-Boston-.Vonandi eru bara bjartir tímar framundan ekkert annað í boði.Kærleikskveðjur.
hrönn (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 12:01
Yndislegt að þið gátuð notið ykkar vel um helgina - tvö saman -
Frábært þetta með Saga Class.
Frábært að heyra að æxlið hefur EKKI stækkað og ætla að vera MJÖG vongóð með næstu fréttir. Kærleiksknús á ykkur öll
Hólmfríður Bjarnadóttir, 13.4.2011 kl. 12:17
Knús til ykkar, gott að það eru engar breytingar á æxlinu til hins verra. Gangi ykkur vel og vonum það besta fyrir rannsóknirnar í sumar!
Berglind (ókunnug) (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 13:08
Frábært að þið gátuð átt góða helgi hjónin! Baráttukveðjur, Kv. Ásdís.
Ásdís Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 13:50
Frábært hvað þið gátuð notið ykkar og verið tvö og Icelandair frábært...alltaf gott að sýna kærleika :) Næstu fréttir verða góðar við trúum því og þið trúið því. Baráttan tekur á en þið eruð yndislegt fólk, kærleiksrík og hafið einstaka sýn á lífið og tilveruna og það fer með ykkur alla leið. Á ykkar leið kennið þið okkur hinum það fallega og góða við lífið, deilið með okkur vonbriðgðum og alls kyns vanlíðan og um leið gleðinni sem þið eigið svo auðvelt með að finna með öllum fallegu gullmolunum ykkar. Takk fyrir það. Þið eruð flottasta mamman og flottasti pabbinn sem ég þekki og mér finnst forréttindi að líta hér við og staldra við því í hvert skipti sem þú bloggar duglega mamma kennir þú okkur eitthvað um lífið.
Guð gæti ykkar og ég ætla að halda áfram að tendra ljósin
með kærleikskveðju 4 barna mamman
4 barna mamman (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 13:58
Mér finnst yndislegt að lesa þessa færslu, þar sem ég er að fara erlendis í fyrramálið. Og veit ekki hversu nettengd ég verð næstu vikuna.
Ég er einmitt að fara að fljúga með Icelandair, svo mín er ánægjan að fljúga með þeim, þó ég verði ekki á Saga Class.
Þið áttuð það svo sannarlega skilið!!!!!!
En ég vona innilega að Maístjarnan njóti sín í gellu fötunum.
Gangi ykkur vel og hafið það sem allra, allra best kæra fjölskylda.
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 15:46
Æi, mikið var gaman að heyra að þið skulið hafa skellt ykkur í dekurferð, bara tvö! Og gott að æxlið sé ekki stækkandi þó maður vildi að sjálfsögðu að það færi minnkandi. Haldið áfram að vera dugleg að rækta kærustusambandið ykkar
Knús á línuna, Ásdís
Ásdís Steingrímsdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 18:40
Gott að það sé ekki að stækka. Yndislegt að heyra að þið áttuð kæró helgi. Þakklát fyrir hvað Icelandair voru yndislegir. Vil núna fara að fá kraftaverk fyrir hana Þuríði. Var að hugsa að það þarf nú ekki mikið til að gleðja hana nokkrar gellu flíkur þá er hún glöð. Yndisleg þessi stelpa, eins og þið öll.
Held áfram að biða guð um heilbrigt líf fyrir ykkur öll. Sá dagur Áslaug sem að ég " sé" þig blogga um draslið heima hjá þér eða hvað vinnudagurinn var erfiður ..... þá vitum við að kraftaverk hefur gerst.
Haltu áfram elsku Áslaug mín ( þekki þig samt ekkert en finnst þú mín) haltu áfram að vera svona frábær. Án þín er bloggheimurinn ekkert.
Berglind (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 18:43
Gott að heyra að geislarnir séu enn að vinna sína vinnu. Frábært líka að heyra að þið hjónin áttu góða helgi saman í Boston ;)
Kv.
Aníta Ósk
Aníta Ósk Sæmundsdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 20:02
Yndislegt að heyra um helgina ykkar.
Vonandi vinna geislarnir áfram sitt verk.
Ragnheiður , 13.4.2011 kl. 21:58
Gott að þið gátuð gert eitthvað saman hjónin, gangi ykkur vel :)
Kristín (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 23:00
Höldum áfram að biðja fyrir Maistjörnunni og ykkur öllum..þetta kemur..hægt og bítandi..skref fyrir skref..:o)
Gott að vita að þið hafið aðeins getað hvílt ykkur og farið burt um stund..gangi ykkur áfram rosalega vel...o)
Kærleikskveðja..:o)
Bergljót Hreinsdóttir, 14.4.2011 kl. 00:28
Sæl Áslaug mín og co..
Vona að 4 barna mamman gefi mér leyfi og fyrirgefi..
Mér langar að taka undir hvert orð sem hún skrifar og það er ekki hægt að skrifa betri sannleika um þig og þína
Kærleikskveðjur..
Halldór.
Halldór Jóhannsson, 14.4.2011 kl. 05:53
Elsku Áslaug. Ég tek líka undir með 4ra barna mömmunni :) Hún orðar þetta svo vel og fallega.
Þið eruð dásamleg.
Hanna (IP-tala skráð) 15.4.2011 kl. 17:30
KNÚS Á YKKUR ÖLL
kv Dagbjört
Dagbjört Jakobsdóttir (IP-tala skráð) 17.4.2011 kl. 02:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.