13.5.2011 | 21:30
Maístjarnan mín
Maístjarnan mín er ofsalega heppin þrátt fyrir hennar veikindi og miklu þroskahömlun. Hún á erfitt með að tengjast krökkum á hennar aldri en þrátt fyrir það þá á hún ofsalega góða verndarengla í skólanum sem gera allt fyrir hana þá meina ég ALLT. Þessar stelpur eru ári eldri en hún og leyfa henni að vera með í ÖLLU sem þær gera, þær reyna láta henni líða eins vel og hægt er, þær eru duglegar að knúsa hana, spjalla við hana, leyfa henni að vera með í snú snú í fríminútum þrátt fyrir að hún getur ekki mikið hoppað, þær gleðjast með henni ef hún gerir einhverjar hluti sem hún er ekki vön að geta. Einsog um daginn þegar hún ætlaði að fara í sinn fyrsta heila dag í skólanum síðan frá því í byrjun des þá frétti ég að ein af þessum frábærum stelpum tilkynntu mömmu sinni það kvöldið áður að "á morgun yrði merkisdagur í lífi Þuríðar" ....mamma skyldi nú ekki afhverju "jú því þá ætlaði hún að vera heilan dag í skólanum". Já þær gleðjast með henni í öllu sem hún gerir og getur annars aðstoða þær hana bara og þessar stelpur mega vera stolltar af sjálfum sér. Henni var boðið í afmæli í vikunni hjá tveimur af þessum stelpum sem er ekkert sjálfgefið hvað þá hjá bekkjarsystrum hennar enda fannst henni það þvílíkur draumur í dós og skemmti sér svona líka vel.
Myndin sem ég ætla að birta lýsir því einmitt BEST hvernig þessar stelpur eru við hetjuna mína en afmælið var haldið í Nauthólsvík, þar skelltu stelpurnar sér í pottinn, ráku tærnar í sjóinn, grilluðu og fleira skemmtilegt.
Ég elska þessa mynd, finnst hún ofsalega falleg og lýsir þessum stúlkum svo VEL.
Maístjörnunni minni líður ofsalega vel þessar vikurnar, hún er að meika'ða í sjúkraþjálfuninni, krampar minna en venjulega þó svo það koma dagar þegar hún krampar nokkra daga í röð. Hún bíður mjög spennt fyrir því að komast í sumarfrí enda vorum við mæðgur að panta okkur matjurtagarð (20fm) þar sem við ætlum að rækta okkar eigið grænmeti og hafa gaman af. Blómarósin okkar verður að sjálfsögðu líka eitthvað með okkur eða þegar hún verður ekki á æfingum sem verða ansi strembnar í júní/ágúst eða alla daga vikunnar, þrjá tíma í senn. Já loksins finnum við fyrir spenning fyrir sumrinu þó svo við erum nett stressuð fyrir 9.júní eða þegar hún fer í rannsóknirnar sínar þess vegna er nauðsynlegt fyrir okkur að hafa það skemmtilegt þanga til og finna okkkur eitthvað til að hlakka til.
Spennandi helgi framundan, eigið góða helgi öll sömul.
XOXO
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
253 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er falleg frásögn, það er gott að eiga góða vini, þessar stelpur eru perlur.
kv gþ
gþ (IP-tala skráð) 13.5.2011 kl. 22:21
Stína (Garðars) (IP-tala skráð) 13.5.2011 kl. 23:15
Yndislegar þessar stúlkur og VINKONUR hetjunnar:)
á réttum stað:)
Þær eru með
Þær gefa mikið af sér,sem er ekki sjálfgefið í dag.. og má segja að stúlkurnar létti mikið á ykkar hjarta og áhyggjum...hún er í góðum höndum,þar sem hlýja og væntumþykja er allsráðandi,snilld:)
þær fá hrós ársins,ásamt hetjunum ykkar:)
Eigið góða helgi...
Halldór Jóhannsson, 14.5.2011 kl. 01:11
Mikið er dýrmætt fyrir þuríði að eiga þessar góðu vinkonur og það er ekki síður dýrmætt fyrir þær að eiga þessa reynslu þegar þær verða eldri og fara að takast á við marga hluti í sínum lífum.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 14.5.2011 kl. 02:17
Yndislega falleg mynd og frábært fyrir hana að eiga svona flottar vinkonur.
Ella (grænu deild) (IP-tala skráð) 14.5.2011 kl. 09:37
Já þetta er sko yndisleg mynd og segir svo margt, svo sönn
Dásamlegt að heyra að maistjörnunni líður svona vel og ykkur öllum, og óska ég þess af öllu hjarta að sumarið gefi ykkur ekken nema gleði og hamingju
Sigga (IP-tala skráð) 14.5.2011 kl. 09:47
Mikið er hún heppin að eiga svona stórkostlega vini
Erna (IP-tala skráð) 14.5.2011 kl. 10:38
Þetta er yndisleg frásögn - mikið er gott að heyra svona sögu. Og allar "græða" þær á þessu.
Gott að vita að það gengur svona vel hjá kraftaverka stúlkunni.
Kærleiks-baráttuknús á ykkur
Sigrún og co (IP-tala skráð) 14.5.2011 kl. 11:27
mikið er þetta yndisleg mynd og það er alltaf gott að eiga góða vini að
,gott að hétjuni minni liður vel og knús til ykkar allra
Guðrún unnur þórsdóttir, 14.5.2011 kl. 12:32
Vá hvað ég er innilega sammála þeim sem eru búnar að skrifa hér fyrir ofan. Myndin er alveg yndisleg og þessar stelpur alveg ótrúlegar flottar fyrirmyndir! Gaman að sjá Þuríði skemmta sér svona vel og heyra af því hve vel gengur, knús á línuna
Ásdís Steingrímsdóttir (IP-tala skráð) 14.5.2011 kl. 15:44
Falleg mynd, falleg frásögn og enn á ný deilir þú mín kæra með okkur því mikilvægast í lífinu, kærleikanum. Yndislegar þessar stúlkur og gott að lesa að hetjan ykkar er hamingjusöm og glöð og líði vel. Það er gott að kíkka hér við
Tendra ljósin og bænir bið. Kærleikskveðja á ykkur
4 barna mamman.
4 barna mamman (IP-tala skráð) 14.5.2011 kl. 16:11
Jeminn ég fékk bara tár í augun og gæsahúð þegar ég las þetta. Yndislegar þessar stelpur og hjartahlýjar. Og Stjarnan þín fallega heppin að eiga þær að. Vona að þið eigið yndislegan og skemmtilegan tíma fram að rannsóknum og ég krossa alla putta og tær fyrir jákvæðum fréttum, ekkert annað í boði. Knús.....
Þóra (IP-tala skráð) 14.5.2011 kl. 16:37
Góðir vinir eru svo dýrmætir
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 14.5.2011 kl. 16:57
Og þær heppnar að eiga Þúríði að :)
Freyja Haralds (IP-tala skráð) 14.5.2011 kl. 17:28
Mikið eru þetta fallegar sálir og ekki sjálfsagður hlutur að gera svona lagað.Mikið eruð þið ríkar að eiga þessar stelpur í lífi ykkar.
Gleðilegt sumar öll fimm :)
Helga Haralds (IP-tala skráð) 14.5.2011 kl. 22:43
Æ, hvað þessar ungu dömur eru yndislegar.Ég er sammála
Freyju,þær eru líka heppnar að eiga Þuríði að.
Takk fyrir að segja okkur frá þessu Áslaug mín.Manni hlýnar um hjartaræturnar að heyra stundum frábært ungt
fólk sem erfir landið.kær kveðja.
Halla (IP-tala skráð) 14.5.2011 kl. 23:25
Gott að heyra að vel gengur.
Anna (IP-tala skráð) 15.5.2011 kl. 00:19
Yndislegar stelpur alla fjórar! Falleg mynd af þeim:) Sonur bróður míns fékk viðurkenningu frá minnir mig Fréttablaðinu fyrir nokkrum árum því hann tengdist svo sterkum vinaböndum við fjölfatlaðann dreng. Sá drengur er fluttur erlendis en þeir eru ennþá tengdir sterkum böndum og hringja mikið á milli. Í eitt af fáum skiptum sem kennari hefur þurft að hringja í bróður minn út af syninum var þegar hann varði þennan vin sinn með hnefanum þegar eldri strákar voru að stríða honum.
Drengurinn hefur ekki gefið minna af sér til frænda míns en hann honum og mér finnst gríðarlega mikilvægt að hvetja börn til að þykja vænt um náungann þó svo hann sé etv í hjólastól eða getur ekki leikið eins og önnur börn.
Yndislega falleg þessi mynd sem sýnir svo fagran kærleik:*
Katrín Ösp (IP-tala skráð) 15.5.2011 kl. 10:02
Foreldrar þessara stúlkna mega vera stoltir af sínum frábæru stúlkum. Frábær frásögn. Það hríslast um mann sæluhrollur
Ragnheiður , 15.5.2011 kl. 12:20
Manni hlýnar um hjartaræturnar að lesa um svona góðar vinkonur. Núna þegar mest er talað um einelti. Þær eru yndislegar og með gott hjartalag. Vonandi verður þetta ævilöng vinátta. Foreldrar stelpnanna mega vera stolt af stelpunum sínum.
Sesselja Jónsdóttir (IP-tala skráð) 16.5.2011 kl. 10:40
Vá hvað er fallegt að lesa þetta, einkum þar sem að börn geta verið svo grimm, þetta eru greinilega einstakar stúlkur og mér hlýnar alveg við að lesa þetta.
Lilja (IP-tala skráð) 16.5.2011 kl. 10:47
ekkert smá flott mynd
og yndislegt að Maistjörnuni liði vel
Þórunn helga garðarsdóttir (IP-tala skráð) 16.5.2011 kl. 18:06
maður fékk bara tár í augun að lesa , það er ekki sjálgefið að eiga góða vini ,og hún og þær eru heppnar að eiga hvort aðra að , yndislegar stúlkur alla saman :)
spennan magnast hér líka styttist að skólin klárist 30 maí er dagurinn , þær geta ekki beðið :)
flottar myndir af litlu prinssunum ykkar , alltaf gaman að fá að hjálpa til en lika bráðnauðsynlegt að slappa af :) :)
sendum góða strauma og kærleikskveðjur úr sveitinni
Dagrún (IP-tala skráð) 16.5.2011 kl. 23:56
En yndislegt að lesa þetta :) Ekki laust við að maður fái smá kökk við lesturinn og myndina . Þetta eru greinilega eðal stelpur .. og mikið er Þuríður heppin að hafa þær með sér.
Ásta (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 13:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.