25.10.2011 | 09:33
25.okt'04 - komin sjö ár
Í dag eru sjö ár síðan Maístjarnan mín veiktist fyrst og stúlkan mín rétt rúmlega níu ára gömul. Við erum búin að upplifa hreint helvíti með henni en við erum líka búin að sjá hvað það er ofsalega gott fólk í landinu okkar sem vill allt fyrir okkur gera þegar Maístjörnunni minni líður sem verst. Við erum búin að fá að upplifa marga hluti vegna veikinda Maístjörnu minnar sem við hefðum reyndar aldrei gert nema vegna hennar veikinda og sem ég hefði frekar viljað sleppa og eiga heilbrigt barn en ég er ofsalega þakklát fyrir allt sem þið hafið gert fyrir hana og okkur hin. Oft á tíðum hefur það bjargað okkar geðheilsu.
Hérna eru nokkrar frá hennar veikindum en ég á myndir í heila bók af hennar veikindum, tekið myndir af öllum stundum hvort sem þær eru slæmar eða góðar:
Maístjarnan mín á Barnaspítalanum í okt'04 en hérna er verið að reyna greina hana. Hjúkkurnar okkar muna ennþá eftir fyrstu dögum hennar á spítalanum á þessum tíma þar sem hún söng hástöfum og þá aðallega "kolakassa-lagið" og þar voru allar hjúkkurnar að detta í kolakassann. Ég man sérstaklega eftir fyrstu nóttinni hennar í spítalanum en þá tók okkar uppáhalds á móti henni sem er því miður hætt á spítalanum og hún grét með okkur þegar hún sá hana krampa.
Einsog ég sagði þá höfum við gengið í gegnum hreint helvíti með henni en á þessum tíma var hún að krampa ca 50 krampa á dag og skall beint í jörðina (við urðum að elta hana hvert skref til að vera tilbúin að grípa hana en því miður tókst það ekki alltaf) og svona leit hún út eftir það. Hérna er hún nýbúin að krampa og "rotaðist" um leið í svefn enda stórir og miklir krampar. Á þessum tíma var hún komin með "hjálm" vegna krampana til að verja litla höfuðið.
Maístjarnan mín hefur verið heppin að eignast góðar vinkonur í gegnum veikindin sín en ein af þeim uppáhalds er Halla Hrekkjusvín en Vigdís Gunnarsdóttir leikona er alltaf tilbúin að hitta hana og gera allt fyrir hana. Þessi kona er með stórt hjarta og er mikill kærleikur búin að myndast á milli þeirra og alltaf mikil gleðistund fyrir okkur að sjá þær hittast.
Við höfum hitt margar stjörnunar sem mæta uppá Barnaspítala til að gleðja bæði okkur foreldrana og veiku börnin. Man reyndar ekki hvað þessi kappakstur"gaur" heitir en á víst að vera "frægur". Hérna er Maístjarnan mín í sterkri lyfjameðferð og orðin frekar veik, stuttu eftir þessar myndatökur ('o6) tilkynntu læknarnir okkur að hún ætti ekki langt eftir en sem betur fer vita læknarnir okkar ekki allt.
Hérna sit ég yfir henni á gjörgæslunni í Boston þegar hún fór í aðgerðina sína í nóv'05. Mikið rosalega var þetta erfiður tími.
Hérna er fallegasta mín í Boston eftir aðgerð en ég ákvað ekki að setja inn þá "verstu" þó svo mér finnist þessi alveg nógu erfið.
Tekin í Svíþjóð júlí'10 en þarna var nýkomin undan "gammahnífnum".
Barnaspítalinn des'10 nýbúin að lamast algjörlega á hægri hlið líkamans en var öll að koma til eftir sterka sterameðferð.
Maístjarnan er ágætlega hress í dag en hún hafði ekki krampað síðan í byrjun sept en fékk einn í gær sem er alltaf jafn erfitt en Blómarósin mín sat með henni aftur í sæti útí bíl og knúsaði hana á meðan hann stóð yfir þar sem foreldrarnir voru frammí og við á ferð.
Ég er ofsalega stollt af börnunum mínum sem hafa staðið sig hrikalega vel í baráttunni með okkur.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Elsku duglega Áslaug Ósk.
Þú ert algerlega einstök manneskja, en það er ég svo oft búin að segja þér áður, en góða vísa er ALDREI of oft kveðin.
Hugsa sér 7ár af 9 í mjög alvarleg veikindi og þú og þið á fullu að gera ykkur lífið eins gott og mögulegt er, á góðu tímunum með skemmtilegheitum. Það er eins og þú segir að þessi tími hefur kennt ykkur ÖLLUM og þroskað með þeim hætti sem maður vill alls ekki þroskast. En Guð hefur gefið að þið standið öll upprétt, falleg, heilbryggð og ótrúlega sterk sem fjölskylda, og ég held að þið lifið ríkara lífi en margur sem hefur ekki kynnst hinum erfiðu hliðum lífsins.
Þið eruð hetjurnar mínar í öllum skilningi og ég sendi ykkur enn og aftur allt það besta og mesta sem til er í heiminum og svo RISA RISA KNÚS í viðbót, frá Sólveigu
Sólveig Adamsdóttir, 25.10.2011 kl. 09:52
Vá hvað það tók á að skoða þessar myndir. Maður þarf að þakka fyrir á hverjum degi að eiga heilbrigð börn.
Guð og allir englarnir veri með ykkur öllum og gefi ykkur styrk.
Jóna (ókunnug) (IP-tala skráð) 25.10.2011 kl. 10:11
Falleg færsla og fallegar myndir, myndirnar segja manni allt. Langur og erfiður tími, hörð og mikil barátta, vonir og þrár, ást og kærleikur. Við hin stöndum og fylgjumst með, vanmáttug og finnum til þegar sporin ykkar hafa verið þung. Gleðistundir, dugnaður, jákvæðni, styrkur, viska vonir og trú hefur flutt ykkur yfir fjöll og borið ykkur áfram og það er einstakt og ég segi það einu sinni enn, að á þessari leið hafið þið verið leiðbeinendur og lærdómur fyrir okkur hin. Fyrir það er ég þakklát.
Tjáning þín Áslaug er einlæg og falleg og fyrir okkur hin sem lesum forréttindi. Þú hefur líka hjálpað svo mörgum, kennt svo mörgum, leiðbeint svo mörgum og fengið okkur hin til að meta, elska og trúa.
En eins og þú segir svo réttilega sjálf, enginn vill fá að upplifa það sem þið hafið upplifað með hetjunni ykkar og við skiljum ekki hvers vegna svona litið barn þarf að finna svona mikið til og ganga þennan veg.
Ef ég gæti tekið allt það erfiða í burtu frá ykkur myndi ég gera það og það er yndislegt hvað margir hafa getað lagt ykkur lið og sýnt ykkur kærleika því kærleikurinn flytur fjöll.
Ljósin mín verða tendruð áfram, bænin beðin
Kærleiksknús yfir fjöllin 4 barna mamman
4 barna mamman (IP-tala skráð) 25.10.2011 kl. 10:31
Guðrún unnur þórsdóttir, 25.10.2011 kl. 14:46
Ég felldi tár þegar ég las þessa færslu. Þetta er búin að vera löng og ströng vegferð hjá ykkur en styrkur ykkar, von og trú alltaf jafn mikill, ég dáist að því.
Ég hef ykkur alltaf með í bænum mínum og kveiki reglulega á kertum handa ykkur, hér á síðunni eða í kirkjum, hérlendis eða erlendis.
Trú, von og kærleikur - Helga
Helga (IP-tala skráð) 25.10.2011 kl. 15:56
Þið hafið verið og eruð alveg ótrúlega sterk. Svakalegt álag sem á litlu stúlkuna og ykkur hefur verið lagt. En alltaf getur maður lesið baráttuviljan hérna, alveg frábært.
Ég á 6 börn og þakka guði og gæfunni fyrir hvern dag sem ég á með þeim öllum heilbrigðum og hraustum því eins og þú veist manna best er það ekki sjálfgefið.
Guð haldi áfram að veita ykkur styrk og trú á lífið!
Edda Bjork (IP-tala skráð) 25.10.2011 kl. 18:49
Með tárin í augunum sendi ég ykkur knús
Þóra (IP-tala skráð) 25.10.2011 kl. 19:38
Kristín (IP-tala skráð) 25.10.2011 kl. 21:56
Kærar kveðjur til ykkar baráttufólksins...
Átakanlegar myndir af hetjunni, enda ekki laust við að það sé kökkur í hálsi og tár á hvarmi... (hentar ekki sérstaklega vel þegar maður situr í vinnunni, heheh...)
Begga Kn. (IP-tala skráð) 26.10.2011 kl. 06:54
<3 knús á ykkur kæra fjölskylda ég dáist endalaust af ykkur
Maja (IP-tala skráð) 26.10.2011 kl. 11:57
Eins og aðrir hér þá felldi ég mörg tár við að lesa þessa ótrúlegu hetjusögu sem þið eruð öll búin að ganga í gegnum. Þú ert svo einlæg og góður penni. Takk fyrir að deila reynslunni með okkur þó maður geti aldrei sett sig nákvæmlega í ykkar spor. Það þarf mikið til. Áframhaldandi hetjukveðjur frá mér og knús til ykkar allra þó þið þekkið mig ekki neitt.
Audur Brynjolfsdottir (IP-tala skráð) 26.10.2011 kl. 13:29
Það er ótrúlegt hvað er lagt á stelpuna og ykkur öll! ég tek undir með hinum, það er átakanlegt að sjá þessar myndir, en það sem skín í gegn er kærleikur, styrkur og baráttuvilji og ég er mjög þakklát eins og aðrir fyrir að fá að fylgjast með og læra af ykkur, því þú gefur ótrúlega mikið af þér með skrifum þínum, og lærir að meta ákveðna hluti á nýjan hátt.
Sendi mínar bestu og fallegustu hugsanir til ykkar, jafnvel þó ég þekki ykkur ekki neitt nema í gegnum þessa síðu.
Laufey (ókunnug) (IP-tala skráð) 27.10.2011 kl. 23:38
Takk fyrir að leyfa mér að fylgjast með ykkur. Þekki ykkur ekkert en þessi síðasta færsla þín lét mig fara að hágráta við tölvuna. Þetta er langt og strangt ferðalag en vá hvað hún er mikil hetja og þið öll. Þuríður er svo fallegt barn. Bestu kveðjur til ykkar og gangi ykkur vel í einu og öllu í lífinu. :)
Katrín Eva (IP-tala skráð) 28.10.2011 kl. 15:08
Sæl og takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með þó við þekkjum ykkur ekki. Það er meira en að segja það að opna svona á fólk úti í bæ. Þessi stúlka ykkar er algjör hetja í mínum augum og þið ekki minni hetjur að standa svona þétt við bakið á henni. Fjölskyldur langveikra barna missa svo oft stuðningsnetið sem þeir þurfa virkilega á að halda vegna þess að þeim er kippt út úr samfélaginu í mis langan tíma og vita stundum ekkert hvað er að gerast "þarna úti ". Þið eruð líka með góða fjölskyldu og ég dáist alltaf af þér að gera plön um eitthvað til að hlakka til. Þetta er gríðarlega mikilvægt.
Vildi líka láta þig vita að Formúlugaurinn heitir Mark Webber og er frá Ástralíu ;-) Ekki svo að það breyti miklu fyrir ykkur.
Gangi ykkur áfram sem allra best og ég hef ykkur í bænum mínum áfram.
Sesselja Jónsdóttir (IP-tala skráð) 28.10.2011 kl. 23:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.