16.12.2011 | 13:03
"pay it forward"
Gegnum sjö ára baráttu Maístjörnu minnar höfum við þurft að eyða miklum tíma á Barnaspítalanum, yndislegur staður sem við hefðum samt með glöðu geði viljað sleppa að kynnast. Leikstofan þar er mjög mikilvæg, sérstaklega fyrir inniliggjandi börn, ég veit ekki hvar við værum án leikstofunnar eða þeirra Gróu og Sibbu sem gefa hverju einasta barni mikla athygli. Ef þið mynduð skella ykkur þangað í heimsókn þá sæju þið þessar yndislegu konur ekki öðruvísi en í leik með börnunum, spítalinn gæti ekki verið heppnari með leikskólakennara, það ætti að gefa þessum konum orðuna. Öll börnin mín elska að koma á spítalann bara til að hitta þessa frábæru kennara, ef Maístjarnan mín fer í tjékk á spítalann þá VERÐUM við að heimsækja líka Gróu og Sibbu og taka kanski eitt gott spil við þær tja eða bara aðeins að fíflast. Þær gera ALLT til að láta börnunum líða vel hvort sem þú ert veika barnið eða "bara" systkini sem fylgir með. Þær hafa allavega sýnt mínum börnum mikla athygli og sýnt þeim mikla væntum þykju og ég veit að þær gera það líka við hin börnin enda er ekkert gert uppá milli hjá þeim.
Ég veit því hvað það getur skipt miklu máli að hafa góða aðstöðu á spítalanum (leikstofunni)og ekki síður að það sé eitthvað við að vera eins og t.d. góð afþreying. Þess vegna langaði mig að "pay it forward" við þær á leikstofunni núna fyrir jólin, langaði líka að finna hvernig er sú tilfinning að "gefa af sér" og gleðja aðra. Ég ákvað að halda bingó, spurði þær á leikstofunni að sjálfsögðu um leyfi og fékk það, svo í byrjun nóvember byrjaði ég að hafa samband við fyrirtæki hér í borginni og leitaðist eftir vinningum í bingóið "mitt" og jú Maístjörnu minnar þar sem hún heimtar að vera bingóstjóri þó svo við séum búin að fá fullkomið "par" í það. Þið getið ekki ímyndað ykkur móttökurnar sem ég hef fengið bæði frá fyrirtækjum og einstaklingum sem voru tilbúnir að aðstoða mig að gera hið flotta bingó í næstu viku fyrir inniliggjandi börn, sem eru mikið á dagdeildinni og systkini þeirra. Börnin mín hafa líka lifað sig mikið inní þetta, þeim finnst rosalega gaman að safna vinningunum vitandi það að það er eitthvað heppið barn sem fær svona flottan vinning.
Þetta "verkefni" mitt hefur hjálpað mér ofsalega mikið síðustu vikur, gleyma mér í einhverju svona góðu og skemmtilegu, vitandi það að það eru heppin börn sem fá flotta vinninga frá frábærum fyrirtækjum hér í borginni. Ég hef nefnilega verið með einhvern stóran hnút í maganum sem ég skil ekki alveg en einu skiptin sem hann hverfur er þegar ég "sekk" mér í þetta "verkefni" og gleymi mér aðeins.
Ég skil núna tilfinninguna "sælla að gefa en þiggja".
Svo enda ég á einni af rokkaranum mínum og Sjarmatrölli. Eigið góða helgi en ég ætla að nýta mína í að dekra við börnin mín og get ekki beðið eftir næstu viku þegar stelpurnar mínar fara í skólafrí (hvað þá jólafríinu þegar við verðum öll saman í fríi) og svo ef ykkur langar að gefa Blómarósinni minni stig þá megiði klikka á þennan link: http://www.wowair.is/node/757/
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Yndislegt! Og auðvitað er maður búinn að kjósa blómarósina!
Það er alltaf gott að gefa af sér :) Góða helgi flotta fjölskylda.
Skagaskruddan :D
Helga Arnar (IP-tala skráð) 16.12.2011 kl. 13:10
Elsku fjölskylda !!
þið eruð algjörlega einstök að ég vildi að það væru til fleiri eintök af svona góðu og gjafmildu fólki :)
Sendi ykkur kærleiksknús og vona að þið eigið yndislegt og veikindalaust jólafrí
Sigrún og co (IP-tala skráð) 16.12.2011 kl. 15:30
Guðrún unnur þórsdóttir, 16.12.2011 kl. 15:48
Þú ert og verður flottust og duglegust Áslaug Ósk, knús á hópinn frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 16.12.2011 kl. 23:27
Þú ert ótrúleg Áslaug :-)
Gangi ykkur vel og góða skemmtun
Kveðja - Helga
Helga (IP-tala skráð) 17.12.2011 kl. 13:32
Frábær hugmynd..hvenær verður þetta bíngó og hvar ??? Við erum ofuráhugasöm um að styrkja gott málefni og skemmta okkur í leiðinni :)
Tóta (IP-tala skráð) 18.12.2011 kl. 10:29
Þetta bingó er fyrir inniliggjandi börn og þurfa þau ekkert að borga fyrir þetta.
Áslaug Ósk Hinriksdóttir, 18.12.2011 kl. 10:49
Sæl, Áslaug. Hef ekki kíkt hér inn lengi, vegna tímaskorts, hehe léleg afsökun.
Mikið gleður það mig að Maístjarnan bíður spennt eftir jólunum. Vonandi Blómarósin líka og bara öll fjölskyldan.
Ég hef keypt jólakort til styrktar Barnaspítala Hringsins undan farin ár.
Satt er það, sælla er að gefa en þiggja.
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 20.12.2011 kl. 08:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.