2.1.2012 | 19:44
"Skemmtileg" byrjun á nýju ári
Maístjarnan mín ákvað að fagna nýja árinu með því að heimsækja bráðamóttökuna uppá Barnaspítala en hún fékk svona slæmt bráðaofnæmi í gærkveldi, svaf með blautan þvottapoka í alla nótt til að nudda sig og "kæla" og vaknaði svo í morgun þrútin í framan og öll útklóruð. Þegar við mættum uppá spítala þá var henni gefið tafla við kláðanum og stór kokteill af sterum sem er sko ekki okkar uppáhalds lyf. Núna er hún ofsalega þreytt af lyfjakokteilinum sem hún fékk í morgun en hætt að vera svona þrútin og með mikin kláða sem betur fer. Vonandi verður hún bara orðin góð í fyrramálið en þá gef ég henni síðasta koteilin vegna ofnæmisins en við vitum ekkert fyrir hverju hún hefur svona mikið ofnæmi fyrir??
Það er vika í næstu rannsóknir hennar eða þriðjudaginn 10.janúar sem ég er ALLTAF kvíðin fyrir og það er ekkert öðruvísi í þetta skipti.
Mig langar annars að birta nokkrar af þeim systrum en það var einn snillingur sem tók þær fyrir okkur og við völdum nokkrar fyrir jólakortið í ár. ...síðar koma svo af þeim bræðrum.
Maístjarnan mín á fimleikaslánni en núna eftir áramót ætlum við að einbeita okkur að sjúkraþjálfuninni hennar og styrkja hana vel. Þannig það verða engir fimleikar eftir áramót en við erum ótrúlega þakklát hvað fimleikafélagið Ármann hefur gert margt gott fyrir hana og tilbúnir að gera ALLT, bara ef við biðjum um það. Ekki hægt að biðja um meira.
Endalaust flott.
Blómarósin mín er ótrúlega flott í fimleikum, ég er ofsalega stollt af þessari stelpu en hún er góð í öllu sem hún tekur að sér.
Fimleikarnir hafa hjálpað henni rosalega mikið í rússíbana Maístjörnu minnar en þar hefur getað gleymt sér og notið þess að vera "bara hún" það er líka frábært að hafa haft þjálfara sem þekkir inná fjölskyldulífið okkar og veit afhverju hún er stundum ofur viðkvæm.
Henni leiðist heldur ekkert að sýna sig fyrir öðrum þrátt fyrir að vera ofur feimin og lokuð. Ef hún veit að hún er góð í einhverju þá er hún ekkert feimin að sýna það fyrir öðrum þrátt fyrir að þekkja einstaklingana ekki baun.
Ég er sú allra stolltasta af þessum flottu stelpum. Hver væri að ekki?
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
266 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flottar stelpur :)
Ásdís (IP-tala skráð) 2.1.2012 kl. 19:57
Endalaust duglegar hetjurnar ykkar...
Knús í hús...
Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 2.1.2012 kl. 21:33
Gleðilegt nýtt ár - þakka fyrir liðin blog og fés ár - sendi ofnæmisstúlkunni bílhlass af bataóskum
Hólmfríður Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 2.1.2012 kl. 22:36
Sæl elsku fjölskylda og gleðilegt nýtt ár.
Það er nú ekki skemmtilegt að fá svona heiftarlegt ofnæmi og hafa heldur ekki hugmynd af hverju. Ég vona að allt gangi vel eftir viku, hugsa til ykkar og bið fyrir ykkur. Knús og kossar, Kristín Amelía.
Kristín Amelía Þuríðardóttir (IP-tala skráð) 3.1.2012 kl. 01:33
Gleðilegt heilsuhreystiár til ykkar allra á heimilinu.
Vona að komið sé í ljós hvað olli ofnæminu hjá stjörnunni. Allavega að hún sé einkennalaus nú, og komi svo í ljós hvað olli til að geta varist.
Svo er það sá 10. við skulum ákveða að það verði góður dagur, góðrar útkomu, en að þurfa að standa í svona kvíðaátökum fyrir ykkur sem venjulegt fólk, og þó, þið eruð ekkert venjulegt fólk. Þið eruð SUPERSTAR, frábær og ótrúleg.
Sólveig (IP-tala skráð) 3.1.2012 kl. 11:43
þetta eru alveg dásamlegar stelpur og ekki eru drengirnir síðri hvað þá foreldrarnir, sem að ég þekki ekki baun, en finnst ég þekkja samt svo mikið. Gleði og hamingja megi vera með ykkur á nýju ári og þá alveg sérstaklega litliu Maístjörnunni, hugsa extra mikið til ykkar í janúar.
kv gþ
gþ (IP-tala skráð) 3.1.2012 kl. 21:01
Gleðilegt ár flotta fjölskylda og megi nýja árið færa ykkur gleði og góðar fréttir.
Kristín (IP-tala skráð) 3.1.2012 kl. 22:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.