10.5.2012 | 11:13
11.maí 2010
Þennan dag eru tvö ár síðan mín yndislega Maístjarna greindist aftur. Það er erfitt að heyra að barnið manns sé með illkynja heilaæxli en helmingi erfiðara að heyra að hún sé að greinast aftur þegar maður hélt að þetta væri komið gott og hún búin að vinna þessa baráttu.
Veröldin okkar gjörsamlega hrundi þennan dag og síðustu tvö ár hafa verið virkilega erfið. Það er líka erfitt þegar hin börnin eru farin að átta sig á alvarleikanum í þessu og farin að skynja þegar Maístjarnan okkar er kvalin eða þegar það gengur illa hjá henni. Þau verða gjörsamlega niðurbrotin og eyðilögð. Síðustu tvö ár hafa líka verið ROSAlega erfið hjá Blómarósin okkar - hvað þá núna hjá Gull-drengnum sem þjáist af miklum aðskilnaðarkvíða, night terrors og svo lengi mætti telja. Þetta er SKÍTT!! Sjarmatröllið okkar er líka farinn að átta sig á þessu öllu, það var t.d. sinu-eldur hérna við blokkina okkar og þar var Blómarósin okkar að fylgjast með slökkvuliðinu að slökkva eldinn þegar sá minnsti fer alltíeinu að hágráta en hann stóð dáltið frá systir sinni en þá hafði hann svo miklar áhyggjur af því að hún myndi fara í eldinn og meiðast. Þau eru öll ofsalega viðkvæm fyrir "smá"munum og mega ekki sjá neitt illt sérstaklega ekki hjá Maístjörnunniokkar því þá hafa þau strax áhyggjur.
Við skari höfum alltaf verið ofsalega dugleg að gera eitthvað saman í veikinda"súpu" Maístjörnu okkar nema síðustu tvö ár - ég veit ekki afhverju? Kanski því mér finnst ég ekki geta farið eitthvað frá þeim en ég veit líka að við verðum að vera duglegri að gera eitthvað svo við getum verið heil fyrir þau. Manni er búin að líða fáránlega illa síðustu ár og oft er erfitt að halda höfði, ég má ekki sjá börnin mín fara gráta þá fer ég líka að gráta. Einsog í morgun þegar ég kvaddi Gull-drenginn minn af leikskólanum þá vildi hann ekki að ég færi frá honum, hélt fast utan um mig (gerist nánast aldrei) og þá varð ég bara að vera fljót að "slíta" hann frá mér og rétta einni á leikskólanum hann svo ég myndi ekki brotna niður fyrirframan hann.
Ég þrái ekkert heitara en að fá góðar fréttir á þriðjudaginn, kvíðin er rosalegur en mig langar svo bara að sumarið verði yndislegt hjá okkur og "áhyggjulaust".
Hlakka til að skrifa hérna góðar fréttir á þriðjudaginn - treysti að þið sendið okkur góðar hugsanir og strauma.
Set inn í lokin eina af þeim systrum en finnst þetta ein sú fallegasta mynd sem hefur verið tekin af þeim saman. Flottustu KR-ingarnir mínir!!
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kæra fjölskylda þið standið ykkur alltaf svo ótrúlega vel.
Sendi hér með góða strauma til ykkur og stórt knús á alla.
kv Díana Guðjónsdóttir
Díana Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 10.5.2012 kl. 11:29
Kæra fjölskylda
Hef fylgst með ykkur lengi. Ég sendi ykkur góða strauma og hugsa til ykkar. Ég vona svo innilega fyrir hönd ykkar allra að þið fáið góðar niðurstöður á þriðjudaginn. Þið eigið það öll svo skilið og ekki síst Maístjarnan ykkar sem hefur barist eins og hetja í allan þennan tíma með ykkur öll sem klett við hlið sér. Góðar hugsanir og knús til ykkar allra. Eigið góða helgi kæra fjölskylda.
Sigrún Edda (IP-tala skráð) 10.5.2012 kl. 12:20
Þið eigið alla mínar góðu hugsanir og strauma.. þið eigið ótrúlega flott börn og virðist dásamleg fjölskylda. Þið eigið það miklu meira en skilið að fá bestu fréttirnar á þriðjudaginn!
Laufey (ókunnug) (IP-tala skráð) 10.5.2012 kl. 12:51
ég vona svo heitt og innilega að þið fáið góðar fréttir á þriðjudaginn .knús til ykkar allra og sérstaklega til barnanna
Guðrún unnur þórsdóttir, 10.5.2012 kl. 15:52
Sendi ykkur góða strauma.
Trú, von og kærleikur - Helga
Helga (IP-tala skráð) 10.5.2012 kl. 17:52
Hef fylgst með ykkur í gegnum árin.
Vona að þið fáið góðar niðurstöður úr rannsókninni á þriðjudaginn.
Gangi ykkur sem allra best.
Íris (ókunnug) (IP-tala skráð) 10.5.2012 kl. 23:37
Vona að þið fáið þær bestu fréttir sem hugsast getur á þriðjudaginn.
Þórleif (IP-tala skráð) 11.5.2012 kl. 07:04
Sendi góða strauma til ykkar elsku fallega fjölskylda og bið Guð um góðar fréttir á þriðjudaginn. Góða helgi.
Kristín (IP-tala skráð) 11.5.2012 kl. 09:34
Gullfalleg mynd af þeim systrum. Gangi ykkur allt í haginn þann 15.
Karen (IP-tala skráð) 11.5.2012 kl. 10:08
Þið eruð ótrúlega sterk og eigið góða að. Ég ætla að kveikja á kerti fyrir ykkur og senda bænir mínar fyrir ykkur um góðar fréttir. Gangi ykkur vel.
Sesselja (IP-tala skráð) 11.5.2012 kl. 17:44
mína bestustu óskir um gæfu og gengi og allt fari vel, góðir staumar og fullt af góðum óskum 15. maí og alla tíð:)
Didda ókunn (IP-tala skráð) 12.5.2012 kl. 11:53
Sendi svo sannarlega sterka strauma frá norð-austur horninu!:)
Kristín (IP-tala skráð) 12.5.2012 kl. 14:34
Sendi ykkur góða strauma og kveiki á kertum fyrir ykkur. Gangi ykkur sem allra best. Kv. Ella
Ella (IP-tala skráð) 12.5.2012 kl. 20:52
Sendi ykkur góða strauma kæra fjölskylda. Gangi ykkur sem best.
Sæunn ókunn (IP-tala skráð) 13.5.2012 kl. 00:22
Sendi extra hlýja strauma og fullt af kærleik og birtu til ykkar fallega fjölskylda! Kærleikskveðja!
Edda Hlíf Hlífarsdóttir (IP-tala skráð) 13.5.2012 kl. 22:08
Ég sendi ykkur mína allra bestu strauma og hugsanir og bíð spennt eftir góðu fréttunum sem ég hlakka til að lesa! Knús á línuna :o)
Ásdís (IP-tala skráð) 13.5.2012 kl. 23:07
sendi allt gott sem ég get sent og held i alla fingur og tær i von um góðar fréttir hafið það sem best Fríður
Friður Pétursdottir (IP-tala skráð) 14.5.2012 kl. 05:24
Sendi ykkur góða strauma,,,,,,,,,,,,,,,,,,, fyrir þriðjudaginn,,,,,,,,,,,,,,,,,, og þið hjónin verðið að muna að sinna ykkur, eins og þú segir til að vera heil fyrir börnin,,,,,,,,,,,,,, SVO MIKILVÆGT........................................
Karen Olsen (IP-tala skráð) 14.5.2012 kl. 07:11
Gangi ykkur rosalega vel á morgun. Ég mun krossa allar tær og fingur og senda ykkur góða strauma fyrir morgundaginn. Að sjálfsögðu koma bara til greina góðar fréttir.
Baráttukveðjur, Valdís
Valdís Jónsd. (IP-tala skráð) 14.5.2012 kl. 22:14
Kveðjur og óskir um allt gott í dag.
kv gþ
gþ (IP-tala skráð) 15.5.2012 kl. 10:23
ég sendi til ykkur extra góða strauma fyrir morgundaginn. Þið eigið það svo sannarlega skilið að fá loksins að njóta þess að eiga gott sumar og hafa engar áhyggjur
kv Linda
Linda (IP-tala skráð) 15.5.2012 kl. 20:11
Vonandi bara góðar fréttir af hetjunni :)
Inga (IP-tala skráð) 15.5.2012 kl. 22:42
Var að kíkja eftir fréttum eftir rannsóknina, vona að allt hafi gengið vel
Jóhanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 15.5.2012 kl. 22:45
Vona svo innilega að fréttirnar hafi verið góðar.
Falleg mynd af systrunum, yndisleg.
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 16.5.2012 kl. 09:06
vona að allt hafi gengið vel í rannsóknunum í gær og að þið hafið bara fengið góðar fréttir.
knús í hús.
helga sveins (ókunnug) (IP-tala skráð) 16.5.2012 kl. 12:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.