20.6.2012 | 09:25
Síðasta færslan mín um Bjarnabófana......
En ég vil samt taka það framm að það kom maður hérna á föstudaginn til okkar og gaf Maístjörnunni minni nýja myndavél og honum gat ekki verið meira sama þótt við fengjum hana greidda frá tryggingafélaginu (sem við fáum augljóslega EKKI), honum langaði bara að gleðja hana sem ég er endalaust þakklát fyrir enda var hún gjörsamlega í skýjunum. Hennar myndavél var líka afmælisgjöf sem hún fékk 20.maí og tekin jafn snögglega af henni.
Svona eru tryggingafélög í dag!!
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
32 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 4870799
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Spurt er
Engin könnun í gangi einsog er.
Athugasemdir
Oj ömurlegt.
En yndislegur maður annars, fyndið því ég var einmitt um daginn að hugsa hvað væri gaman að koma og gefa elstu myndavél! gaman að fleiri hugsa eins :)
Knús á ykkur.
Alda (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 09:52
Guðrún unnur þórsdóttir, 20.6.2012 kl. 10:56
Hvar er ósanngirnin? Eða smáa letrið? Þegar þú kaupir tryggingu þá eru skilmálar á bak við hana sem tilgreina hvað er bætt og hvað er ekki bætt. Það kemur fram í öllum innbústryggingu og lausafjártryggingum að ekki sé bætt þegar viðkomandi er með ólæst eða glugga sem eru ekki hespaðir aftur. Þetta eru hvorki ný né gömul sannindi.
Hins vegar þá hef ég fulla samúð með þér, ömurlegt að lenda í svona. :(
Egill (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 11:08
@Egill
Geturðu bent mér á eitthvað tryggingafélag sem er ekki með svona smátt letur um innbústryggingu? Það er einmitt vandamálið ef þú ætlar að kaupa tryggingu þá hefurðu ekkert val um eitt eða neitt. Það sem er svo ennþá verra er að þetta eru fyrirtæki sem eru með ríkisábyrgð þannig að það er almenningur sem stendur að öllu leyti undir þessum fyrirtækjum og borgar forstjóralaunin.
Kristján Bjarni Guðmundsson, 20.6.2012 kl. 11:30
Hjá hvaða tryggingarfyrirtæki ert þú?
Jón (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 11:36
Má ég spurja hjá hvaða tryggingarfélagi þú ert? Spurning um að þeir sem eru að versla við það flytji sig frá þeim ef þeir þekkja sögu þína.
haraldur (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 11:58
Þetta er Sjóvá......
Áslaug Ósk Hinriksdóttir, 20.6.2012 kl. 12:30
Túlka tryggingarfélögin það þá þannig að maður sé sem sagt að bjóða hættunni heim með því að skilja eftir rifu á glugga heima hjá sér ef að maður skreppur út? Er það manni sjálfum að kenna að óboðinn ómerkilegur gestur fari þar inn til að skemma og stela, þetta er ferlega öfugsnúin skilaboð finnst mér. En gott að heyra að góða fólkið er enn til, eins og þessi maður. Gangi ykkur vel og vonandi eigið þið frábært sumar. Ein ókunnug sem bara gat ekki orða bundist.
Ásta Helga (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 12:52
Ógeðslegt að heyra, en af forvitni hvernig myndavél átti hún?
Anepo, 20.6.2012 kl. 13:35
Þú hefðir fengið sömu svör hvort sem þú hefðir verið hjá Vís - Tm eða Verði. Það er smá letrið sem gildir og já ég veit að það er fúlt. En það er alltaf sorglegt þegar svona gerist og ég vona svo innilega að þið eigið eftir að taka gleði ykkar á ný.
Dísa ókunnug (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 13:39
@Kristján
Nei, það er í raun ekkert "smátt" letur. Þegar þú kaupir þér tryggingu þá ertu bara að kaupa skilmálann. Það er þín ábyrgð að kynna þér hvað tryggingin bætir og bætir ekki. Varðandi innbrot þá er alltaf krafa um það af hendi tr.félaga að þú læsir íbúð til þess að takmarka líkur á svona tjóni. Ég veit ekki um neitt tr.félag á Íslandi (og víðar) sem er til í að greiða bætur vegna innbrota þar sem að viðkomandi gleymdi að læsa dyrum já eða loka gluggum.
Smáa letrið er skilmálinn og skilmálinn er varan sem þú ert að kaupa í þessu tilviki. Persónulega finnst mér það bara ábyrgðarmál hjá hverjum og einum að taka sér örstutta stund í að kynna sér aðeins hvernig sínum tryggingamálum er háttað og pæla örlítið í hvað er á bak við þjónustuna sem maður er sjálfviljugur að kaupa.
Það er svo annað og verra mál með hvernig tr.félögin hafa farið með þann hagnað sem hefur skapast af rekstri þeirra.
Egill (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 13:56
Svona eru tryggingarfélögin í dag. Var hjá VÍS frystiskápurinn klikkaði og allt í honum eyðilagðist. Átti að fá það bætt, tók myndir og fór í búðina til að finna út hvað allt kostaði (fyrir tryggingafélagið). Svo þegar ég kom með kosnaðin til þeirra þá var sjálfsábyrðin svo há að það svaraði ekki kosnaði því iðngjöldinn mín mundu hækka við tjónið. Á þessum tímapunkti í fyrra hætti ég að borga tryggingar ber mín tjón sjálf. Skil þig vel að vera Pisst nóg eru iðngjöldinn há og fá svo ekkert fyrir svona innbrot.
Margrét (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 13:56
Ég hef fulla samúð með þér. Það á enginn að lenda í því að brostist sé á heimili þeirra.
En hins vegar er það okkar ábyrgð að loka og læsa öllu vel og vandlega. Því eins tryggingar hafa sína skilmála eins og fram hefur komið. Og er það mjög eðlilegt. Það er okkar sem kaupum vöruna að vera meðvituð um hvað við erum að kaupa. Í þessu til felli finnst mér ekki við tryggingafélagið að sakast.
Gunna (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 14:26
Alltaf gaman af því að sjá fólk tala út um afturendann á sér. Skemmtilegt þetta röfl um að loka vel og læsa, og allt það.
Málið er bara það, að þó svo að allt sé lokað og harðlæst, þá brjótast menn inn. Tekur þá kannski 5-10 sekúndum lengri tíma en að kippa upp hespu á ólokuðum glugga.
Harðlokaðir gluggar og dyr stoppa ekki þjófa, eða fæla þá frá innbroti. Atvinnumenn í bransanum láta ekki svona smáatriði eyðileggja fyrir sér góða veiði. Þetta vita tryggingafélög mætavel. Þau vita að lokaður gluggi hefur nákvæmlega engin áhrif á fyrirætlanir manna sem ætla að hreinsa út.
Mikið hljóta tryggingamenn að vera þeim kommenterum þakklátir, sem gera sitt besta til að viðhalda ósanngirninni.
Hilmar (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 20:56
Kærðu Tryggingarfélagið til neytendastofu. Þeir þurfa að uppfylla sín skilyrði. Þessi afsökun Tryggingarfélagsins er rugl.
Erlingur Þorsteinsson (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 22:00
Mér finnst að maður eigi að mega fara út án þess að læsa öllum gluggum. Ef manneskja eyðileggur greinilega hlut til að komast inn á ekki að vera nokkur vafi á INNBROTI
Guðrún (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 22:18
Jú en í þessu sambandi varðum við að athuga að tryggingafélög, skilmálar og lög, eru hluti af hinu gamla kerfi, framsóknar og sjálfstæðis, þar sem menn fengu lög pöntuð og afgreidd frá Alþingi eftir þörfum. Málið var ekkert flókið, frammarar réðu yfir Samvinnutryggingum og Eyngeyjarættin yfir Sjóvá. Þingmönnum var síðan boðið í lax og bingó, málunum reddað. Spyrjið bara Sólveigu Péturs, henni þótti það nú ekki tiltökumál.
sir Humpfree (IP-tala skráð) 22.6.2012 kl. 01:50
Sæl Áslaug
Við fjölskyldan lentum í þessu fyrir nokkrum árum það var farið inn um glugga á þvottahúsinu sem var opinn. Við vorum tryggð hjá Sjóvá og þeir greiddu út því sem var stolið frá okkur. Mér finnst mjög undarlegt að þið fáið ekkert úr tryggingum. Okkur leið ekki vel eftir þessa reynslu en eftir að við forum búin að þrífa og taka til þá fundum við ró í okkar hjörtum og ég ákvað að láta þessa aumingja ekki eyðileggja meira en orðið var. Við eigum svo margar skemmtilegar minningar úr húsinu okkar sem við gátum yljað okkur við. Ég er viss um að þú munir finna þesa ró líka þetta tekar bara tíma. Takk fyrir að leyfa mér/okkur að lesa bloggið þitt þú er frábær penni og ótrúlega sterk kona Kveðja Margrét
Margrét (IP-tala skráð) 22.6.2012 kl. 21:33
Sæl Áslaug,
Það sem vátryggingafélagið er væntanlega að bera fyrir sig í þínu máli er svokölluð varúðarregla sem byggir á 26. gr. laga um vátryggingarsamninga. Skv. ákvæðinu getur vátryggingafélag lagt ákveðnar athafnaskyldur á vátryggingartaka t.d. um að læsa húsnæði, bæri dyrum og gluggum þegar húsnæðið er mannlaust (slíkar reglur koma fram í skimálum vátryggingarinnar). Sé brotið gegn slíkum varúðarreglum geta bætur fallið niður í heild eða hluta en ávallt þarf að fara fram mat á kringumstæðum sbr. orðalag ákvæðisins:
"Félagið getur gert fyrirvara um að það skuli laust úr ábyrgð í heild eða að hluta ef varúðarreglum er ekki fylgt. Slíkan fyrirvara getur félagið þó ekki borið fyrir sig ef ekki er við vátryggðan að sakast eða sök hans er óveruleg eða það að vátryggingaratburður hefur orðið verður ekki rakið til brota hans. Þótt félagið geti samkvæmt þessari grein borið fyrir sig að varúðarreglum hafi ekki verið fylgt má samt leggja á það ábyrgð að hluta með hliðsjón af því hvers konar varúðarreglu var ekki sinnt, sök vátryggðs, hvernig vátryggingaratburð bar að og atvikum að öðru leyti"
Bendi þér á að skoða úrskurð úrskurðarnefndar í vátryggingamálum í máli nr. 43/201, sem virðist vera sambærilegt og þitt mál: http://www.fme.is/media/urskurdanefndir/vatryggingamal/SAMANTEKT_URSKURDA2011.pdf
Ef þú hefur áhuga á að láta reyna á höfnun vátryggingafélagsins getur þú leitað til úrskurðarnefndar í vátryggingamálum en upplýsingar um nefndina má finna hér:http://www.fme.is/eftirlitsstarfssemi/urskurdarnefndir/urskurdanefnd-i-vatryggingamalum/
Dísa (IP-tala skráð) 23.6.2012 kl. 00:03
Sæl Áslaug
Þetta er sennilega eitthvað mismunandi á milli tryggingafélaga. Þegar brotist var inn hjá okkur var fyrst reynt að fara inn um opinn glugga á svefnherbergi stráksins okkar en þar sem gluggajárnið hélt ( þeir beygðu það ) fóru þeir að öðrum glugga sem er það kjánaleg hönnun að það er hægt að stinga höndinni inn og teygja sig í hurðahún og opna dyr við hliðina á glugganum. Við fengum tjónið okkar bætt að öllu leiti nema sjálfsábyrgð. Meira að segja áttum við tónleika miða að andvirði meira en 100 þús. sem við fengum bætta þó við ættum ekki von á því. Við lögðum áherslu á það við lögregluna að það kæmi fram í skýrslu að það sæi á gluggunum. Það kom mjög áhugalaus maður frá tryggingafélaginu okkar eftir að við höfðum farið fram á það sjálf. Ég er alger sauður með opna glugga og á ennþá erfitt með mig að gleyma mér ekki áður en ég fer út úr húsi. Það þarf samt varla að taka það fram að við höfum farið yfir þessi gluggajárna mál hjá okkur og bætt úr. Ég varð bara fjúkandi reið að sjá að þið fáið ykkar tjón ekki bætt. Það er líka erfitt að það er hvergi boðið upp á áfallahjálp þegar svona hlutir gerast. Þetta er svo mikil innrás í einkalíf allrar fjölskyldunnar. En gangi ykkur vel.
Sesselja (IP-tala skráð) 25.6.2012 kl. 13:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.