20.8.2013 | 11:35
Smá update
Fyrir einhverjum vikum ætlaði ég að fara monta mig á því að það væru liðnir heilir 23 dagar frá síðasta krampa en það var eitthvað sem sagði mér ekki að gera það því daginn eftir byrjaði Maístjarnan mín að krampa og svo leið rúm vika þanga til næst. ARGH!! Ég lýg því ekki en það er ofsalega erfitt og sárt að horfa uppá hana í krampa því hún er svo hrædd og farin að öskra úr sér lungun þegar hún fær þá og maður getur ekkert gert fyrir hana nema vera til staðar og haldið í hendina hennar. Ofsalega erfitt!
Hún er nú samt búin að vera ágætlega hress í sumar - auðvidað koma dagar sem hún vill bara liggja og hvíla sem hún fær að sjálfsögðu. Hún er dugleg að kúpla sig útur hávaða og ef hún þreytt að leika þá fer hún bara inní herbergi og lokar sig af - hún finnur alveg þegar hún þarf hvíldina sem er gott.
Maístjarnan mín er að byrja í nýjum skóla í haust eða Klettaskóla sem við erum ofsalega spennt fyrir og ég veit að þar á hún eftir að eignast góða vini og njóta þess að vera sterki einstaklingurinn en ekki ALLTAF sú lakasta í öllu. Ég er ofsalega spennt að sjá hana blómstra því ég veit að þarna á hún "heima".
Hún átti að fara í rannsóknir sínar í þessum mánuði en einsog margir vita þá er búið að vera "rugl" í gangi hjá geislafræðingunum svo rannsóknum hennar frestast frammí sept eða við tökum ekki annað í mál að hún fari í næsta mánuði því þá er liðið meira en hálft ár síðan síðast og ég læt ekki lengri tíma líða á milli en þegar hún greindist síðast þá liðu 9 mánuðir og hún var alveg að "renna út á tíma" með að leggjast undir gammahnífinn í Svíþjóð.
Litla DraumaDísin mín er búin að vera lasin eða dagur tvö í hita og sleni - mikið rosalega finnst manni alltaf erfitt þegar þau eru lasin sérstaklega þegar þau eru svona lítil en hún er rétt rúmlega þriggja mánaða. Hún hefur ekki mikið leyft mömmu sinni að sofa síðan hún fæddist - vaknar mjög oft og sefur lítið sem ekkert á daginn og ég get alveg viðurkennt það að mamman á ekki mikið bensín eftir.
Annars eru allir spenntir fyrir vetrinum og við farin að telja dagana í jólin enda okkar uppáhalds tími.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Bestu kveðjur til ykkar allra kæra Áslaug.
Þorgerður (IP-tala skráð) 20.8.2013 kl. 20:49
Bið þess að allt gangi vel hjá ykkur, sérstaklega Maístjörnunni í nýja skólanum sínum :)
Kristín (IP-tala skráð) 21.8.2013 kl. 13:56
knús og kram og góðar kveðjur og ósk um að allt gangi vel :)
Didda ókunn (IP-tala skráð) 21.8.2013 kl. 21:17
Gangi ykkur allt í haginn góða fjölskylda
Maja (IP-tala skráð) 23.8.2013 kl. 13:57
Duglegu þið!!!!!
Ása (ókunnug) (IP-tala skráð) 23.8.2013 kl. 17:48
Elsku ofur Áslaug.
Ofan á aðrar annir sefur minnstan í minni kantinum, ég átti eina svoleiðis fyrir 30 árum og ekki,annað en 10 ára englabarn með,en ég var oft alveg á tampi, hún grét reyndar mjög mikið. Þannig að ég skil alltaf minna og minna í því hvernig þú ferð að með þinn stóra fallega og kröftuga hóp.
Ég sé reyndar alltaf betur og betur hvers konar snillingur þú ert.
KNÚS í hús.
Sólveig (IP-tala skráð) 26.8.2013 kl. 23:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.