Leita í fréttum mbl.is

Bloggleysi?

Hef ekkert verið svakalega dugleg að blogga undanfarna daga þá meina ég blogga almennilega um hitt og þetta en samt aðallega þetta og það eru ástæður fyrir því.

Jú í fyrsta lagi hef ég lítið að segja og ég nenni ekki að blogga um EKKERT eða þar að segja að segja ykkur frá því hvernig dagurinn var hjá mér og mínum, frekar leiðinlegt blogg.

Öðru lagi þá er það hún Þuríður mín, jú einsog ég hef oft sagt áður þá fer líðan mín allt eftir Þuríðar minnar líðan og þegar henni líður ekkert of vel þá líður mér enn verr þar að segja andlega.  Ég hef ekki hugmynd um hvernig Þuríði minni líður því hún er ekki vön að tjá sig mikið um það þannig maður horfir mest á krafta hennar og styrk sem hefur farið aðeins niður á við síðustu dagaFrown.  Hef verið að vona síðustu daga að þetta væri einhver paranoia í mér og reyndi sem ekkert að hugsa um það en auðvidað fór þessi hugsun ekkert útí buskan. 

Hún er sem sagt farin að þreytast meira síðustu daga, þær hafa tekið eftir því á leikskólanum þó hún sé með krafta í að leika sér með krökkunum enda reynir hún að láta lítið sem ekkert stoppa sig í hlutum sem henni langar að gera en þreytan er farin að segja til sín.  Þetta var ekki nein ímyndun í mér því verr og miður því svo fórum við í sjúkraþjálfun í dag og þjálfarinn sá strax að hún var orðin valtari en hún er vön að vera og varð fljótt þreytt í tímanum en undanfarnar vikur hefur hún haft mikla krafta og ekkert látið stoppa sig.  Mikil kraftakerling hún Þuríður mín!!

Þannig þessa dagana hefur manni ekkert liðið sérstaklega vel að sjá hana þreytast er ofsalega erfitt og hnúturinn í maganum verður svakalega stór, ég vona svo heitt og innilega að þetta sé eitthvað tímabundið en ekki eitthvað sem er að draga hana niður.  Hún er búin að vera svo svakalega hress og þvílíkur styrkur í henni, finnst þetta allavega svakalega erfitt.  Hún er aftur farin að þurfa leggja sig á daginn sem hún var nánast hætt og samt sofnuð milli sjö og átta á kvöldin, ohh ég verð svo reið!

Allavega ég veit ekkert hvort ég verð í miklu bloggstuði næstu daga? kanski mun ég hafa mikla þörf fyrir að tjá mig, ég veit það ekki?  Mér finnst þetta bara erfitt en við erum að fara með hana á morgun til doktor Ólafs í smá tjekk en ef hún heldur áfram að þreytast enn meira þá munum við heimta myndatökur strax en ég vona svo heitt og innilega að við getum beðið þanga til í ágúst einsog planið var en það var aðal planið ef henni héldi áfram að líða svona "vel".

Farin að leggjast á koddan og kanski kveiki ég á imbanum eða kúri bara með henni Oddnýju minni Erlu sem bíður eftir mér að ég klári hér en hin tvö eru að sjálfsögðu sofnuð en Oddný mín er doltið gömul sál og þarf ekki að fara sofa fyrr en við förum að sofa, þarf óttanlega lítinn svefn miða við að vera bara þriggja ára gömul ehe!!

Langar í lokin að biðja ykkur að kveikja einu kerti fyrir hana Ástu Lovísu ein af hetjunum mínum hér til hliðar en hún þarf svo sannarlega á því að halda þessa dagana.  Knús til þín Ásta mín!!

Verið góð við hvort annað og ekki gleyma knúsunum, góða nótt kæru lesendur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elskulega fjölskylda.Sendi bara mínar hlyjustu kveðjur með von um það besta fyrir hetjuna og ykkur.Góða nótt.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 21:32

2 identicon

Sæl veriði

Komiði sæl!

Æj,æj. Ég sem var að vonast að nú væri þetta allt upp á við. Vona svo sannarlega að þetta sé ekkert komið til að vera. Hún er svo mikil hetja fallega stúlkan ykkar. Alveg dáist ég af þessu barni hvað hún er dugleg. Óska ykkur alls hins besta og vona að Þuríður hressist sem fyrst.

Bestu kveðjur frá Siggu Ásgeirsd.

Sigga Ásgeirsd. (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 23:23

3 identicon

Bið fyrir snúllunni ykkar þegar ég leggst á koddann og mun gera áfram.  Sendi ykkur baráttuhugsanir ! 

Lilja ókunnug (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 23:49

4 Smámynd: Þórunn Eva

sendum ofurstrauma í sveitina :)

kveikjum á kerti og biðjum fyrir litlu hetjunni og ykkur öllum :)

knús og koss

Þórunn Eva , 22.5.2007 kl. 23:50

5 identicon

Mikið óskaplega eru allar fréttir eitthvað erfiðar núna , litla hetjan ykkar er búin að vera svo dugleg að það er aðdáunar vert, er þetta ekki bara þreyta að hún hafi ætlað sér of mikið elsku litla stelpan. Vona af heilum hug að hún rífi sig upp úr þessu og haldi glöð áfram sínu striki. Gangi ykkur vel í því sem koma skal. Guðs blessun í bæinn ykkar. Kveðja að norðan

KONA (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 00:13

6 identicon

Sæl Áslaug

Mikið skil ég þig (þó enginn geti sett sig að fullu í þín spor). Hnúturinn í maganum er svo erfiður ferðafélagi. Vona svo innilega að þreytan hennar Þuríðar eigi sér eðlilegar og heilbrigðar skýringar. Hvort ég mundi biðja um tékk ef ég væri þú. Svo sannarlega. Þú bloggar svo bara þegar þörfin kallar. Þú segir okkur hvað dr Ólafur hefur til málanna að leggja.

Guð blessi ykkur öll. Kveðja F

F (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 01:24

7 identicon

Megi góður Guð vernda Þuríði Örnu og vaka yfir henni.

kveðja

Kristbjörg ókunnug

Kristbjörg (ókunnug) (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 09:40

8 Smámynd: Unnur R. H.

þetta eru ekki góðar fréttir , en litla hetjan virðist vera dugleg að berjast við sjúkdóminn. Ég kveikti samt á kerti fyrir litllu dömuna

Guð vaki yfir ykkur kæra fjölsk kv unns 

Unnur R. H., 23.5.2007 kl. 10:19

9 identicon

Elsku Áslaug

Við höldum áfram að biðja fyrir áframhaldandi kraftaverki enda hetjan gangandi kraftaverk.

Kveikjum á kerti og sendum góða strauma.

Baráttukveðjur Guðrun og co.

Guðrún Bergmann (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 11:03

10 identicon

Úff, ég sem var svo ánægð í gær að heyra að allt var í jafnvægi þá. Vona að þetta sé eitthvert tímabundið slen, en auðvitað óttast maður alltaf það versta, þó maður voni það besta. Hvet ykkur til að biðja um rannsóknir strax ef ykkur finnst ástæða til. Tíminn skiptir öllu máli ef þarf að grípa inn í með einhverja meðferð. Megi svo allar góðar vættir vera með ykkur. kveðja frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 13:14

11 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Að sjálfsögðu koma líka kveðjur héðan að vestan. Og til hammó með ammóið um daginn!

Guð geymi ykkur elsku fjölskylda.

Ylfa Mist Helgadóttir, 23.5.2007 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband