Leita í fréttum mbl.is

Góðar og "slæmar" fréttir

Þá erum við búin að heyra í lækninum okkar, alltaf erum við í þessari óvissu endalaus óvissa en ég held samt að það sé betra heldur en við heyrum alltaf eitthvað slæmt, æjhi ég veit það samt ekki?  Allavega æxlið hjá Þuríði minni hefur frekar minnkað ef eitthvað er sem eru mjög góðar fréttir svo kemur alltaf ENN.....  Það er einhverskonar blaðra inní æxlinu sem hafði stækkað í síðustu myndatökum og hún hefur haldið áfram að stækka og að sjálfsögðu vill maður ekki að neitt sé að stækka þarna inni.  Þannig það eru ekki góðar fréttir en læknirinn okkar veit eiginlega ekki hvað hann á að halda með hana þannig næst á dagsskrá er að ath með smá ef það má kalla smá aðgerð hjá Þuríði minni og taka sýni úr þessari blöðru og það góða við aðgerðina að hún yrði gerð hérna heima sem betur fer. (en þetta eru mjög erfiðar aðgerðir, svo mikið sem þarf að fara í "gegnum")  Þeir eru komnir með aðeins betri græjur hérna heima heldur en þeir voru með fyrir rúmu ári síðan þegar við fórum með Þuríði til Boston.  Þannig okkar næstu fundur með læknunum er á fimtudaginn og þá fáum við væntanlega að vita meira og þá verða líka allir krabbameinslæknarnir búnir að tala saman.

Þannig biðin heldur áfram og ég held áfram að vera stressuð fyrir fimtudeginum og með mikla magapínu, þetta er ótrúlega erfitt allt saman. Aaaarghh!!  Við fjölskyldan höfum ákveðið bara að fara úr þessu stressi hér í bænum og ætlum að fara í sveitina og hafa það kósý saman.

Heyrumst síðasta lagi aftur á fimtudaginn þegar við erum búin að fundastCrying.

psssssssss.ssss æjhi ég nennti ekki að breyta textanum sem ég var búin að skrifa en málið er að æxlið hefur ekkert minnkað, það er svo erfitt að útskýra allt þetta læknamál sem ég er ekki alveg að orka í.  Skuggamyndunin í æxlinu hefur minnkað þar að segja á myndum, æjhi ég nenni ekki að útskrýa en það er allavega gott en blaðran sem er þar inní hefur stækkað og þess vegna getur verið að Þuríður mín hefur verið svona þreytt þú stækkun getur verið farin að þrýsta á sem er ekki gott.  Æjhi mér finnst ég alltaf hafa meiri og meiri vonda tilfinningu gagnkvart þessu öllu saman þegar ég hugsa meira um þetta þess vegna held ég líka að það sé gott fyrir okkur að fara í sveitina og anda að okkur einhverju öðru lofti og leika okkur í pottinum og fleira.
Knús og kossar
Slauga dapra


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það er í raun ekkert hægt að segja nema knús og njótið þið þess að vera saman. þið eruð ótrúlega sterk og ég  hugsa til ykkar oft á dag þegar ég er að fást við mína erfiðleika"""""""

kossar og knús... ókunnug Birna en finnst ég samt þekka ykkur.

Birna Hrönn (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 16:45

2 identicon

Hafið það gott í sveitinni, njótið þess í tætlur að vera öll saman og safnið upp orku. kv Guðrún Bergmann

Guðrún Bergmann Franzdóttirg (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 16:52

3 Smámynd: Þórunn Eva

hæ sæta

já það er tilvalið að þið drífið ykkur bara eitthvað og hafið það alveg svakalega gott

ég hef sko trú á henni og að þetta blessist allt.....

elsku Áslaug þú ert algjör hetja kiss og knús

Þórunn Eva , 4.6.2007 kl. 16:58

4 identicon

Njótið þess að vera í sveitinni Áslaug mín.

knús knús

kv Unnur

unnur Einarsdóttir (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 17:35

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Var að lesa viðtalið við þig í Ísafold áðan, mjög fínt viðtal. Vona að sveitaferðin verði góð og að þið náið að hlaða batteríin, duglegu hetjur.

Guðríður Haraldsdóttir, 4.6.2007 kl. 18:56

6 identicon

Sæl Áslaug mín.

Vona svo innilega að það verði hætt að gera eitthvað jákvætt fyrir Þuríði Örnu. Þið eruð algjörar hetjur og hafið það sem best í sveitinni. Njótið þess að vera í faðmi hvers annars og dúllast með litlu fallegu englana ykkar. Bestu kveðjur til ykkar allra frá Siggu Ásgeirsd.

Sigga Ásgeirsd. (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 19:29

7 identicon

Kæra fjölskylda!

Fallegar myndir af ykkur í Ísafold!  Þuríður er svo dreymin á þeim og svipurinn á henni segir svo margt.  Verum nú dugleg að kveikja á kerti fyrir fjölskylduna þið allir sem komið hér inn og munum eftir bæninni því hún hjálpar mikið!

Þið eruð svakalega dugleg munið það og takk fyrir að deila þessu öllu með okkur hinum, þið haldið áfram að kenna okkur svo ótal margt!

góðar kveðjur 4 barna mamma

4 barna móðir (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 21:03

8 identicon

ÚFF ekki eru þetta nógu góðar fréttir, en þó ekki þær verstu.

Sendi ykkur allt það besta sem hægt er að senda í hlýjum góðum hugsunum og er einlægur aðdándi þinn og ykkar í þessari erfiðu raun.

Með kærri baráttukveðju frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 21:44

9 identicon

Elsku Áslaug ! 

Hugsa til ykkar og sendi hlýja strauma........  Þuríður Arna er sannkölluð hetja, bið fyrir góðum fréttum á fimmtudaginn.  Hafið það gott fallega fjöldskylda :)

Kveðja úr Mosfellsbænum

Berglind (ókunnug) (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 21:50

10 identicon

Kæra fjölskylda. Var að lesa viðtalið við þig Áslaug í Ísafold, mjög gott viðtal og ég dáist af því hvað þið eruð dugleg, takk fyrir að deila þessu með okkur hinum, þið kennið mér svo margt. Gangi ykkur vel. Kær kveðja Birna, ókunnug.

Birna (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 23:51

11 identicon

Sæl Slauga

Já það er stundum erfitt að höndla allr sem sagt er við mann í svona málum og ekki síst þegar mikil álag er í gangi. Gott hjá ykkur að drífa ykkur í sveitina og slaka á. Það er líka mjög mikilvægt fyrir þuríði að komast í ró og frið, en þó í víðaáttu og frelsi. Mikið er gott hvað þið standið vel saman og haldið hvert utanum annað. Guð veri með ykkur og gefi ykkur góðar fréttir á fimmtudaginn.

Verða foreldrar einhvern tíman öruggir um barnið sitt sem er alvarlega veikt, hversu góðar fréttir sem þeir fá?

Kveðja Fríða

Fríða (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 00:10

12 identicon

Þú stendur þig afar vel en orðin úrvinda sem sést á þínum færslum.  Litla skottan er það sem skiptir mestu máli en auðvitað þið öll líka. Veikindi hennar hafa tekið sinn toll af ykkur en ekki síst henni.  Lífið á ekki að snúast um að skapa minningar helfur njóta hverrar stundar.

Vona að ég sé ekki særandi en get ekki stillt mig um þessar vinsamlegu ábendingar

GBG (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 01:27

13 Smámynd: Elsa Nielsen

Elsku Áslaug

Endilega drífið ykkur í sveitina og hlaðið batteríin - gott að fá ferskt loft í sveitinni :) Við biðjum fyrir góðum fréttum á fimmtudaginn!

Flott viðtalið við þig í Ísafold - las það í gær ;)

...svo kem ég við tækifæri með smá ammælispakkling fyrir þig "gamla" mín - hehe - GLATAÐ að hafa misst að veislu ársins!!

KNÚÚÚÚS og hafið það gott !!

Elsa Nielsen, 5.6.2007 kl. 09:41

14 identicon

Njótið ykkar í sveittini og hafið það gott þar.

Þuríður er svo mikil hetja og þið lika. 

Hulda Klara (ókunn) (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 10:23

15 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Veit ekkert hvað ég á að segja við þig núna elsku Slauga. Svo ég segi bara: kossar, knús og stóóórt faðmlag. Þuríður litla verður áfram í bænum mínum.

Ylfa Mist Helgadóttir, 5.6.2007 kl. 11:03

16 Smámynd: Linda

Við sem fáum þann heiður að fylgjast með sögu ykkar, styðjum við bakið á ykkur, ég persónulega mun halda áfram að biðja fyrir dóttur þinni og ykkur.  Kv. Linda.

Linda, 5.6.2007 kl. 12:04

17 identicon

Sæl Álaug

Sá þessa fínu mynd af þér í mogganum í hópi annarra styrkþega hjá Glitni. Innilega til hamingju með styrkinn.  Það er alveg frábært að þú skulir fá þennan styrk. Það hjálpar þér fjárhegslega að fara í þetta nám, en ekki síður er þetta leið til að hafa verkefni sem tekur hugann frá glímunni við veikindi Þuríðar Örnu. Njótið ykkar vel í sveitinni og fáið svo góðar fréttir af hetjunni. Kveðja Fríða

Fríða (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 13:35

18 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Það er erfitt að rita eitthvað hér inn.

Það eru svo heitar tilfinningar, svo miklar vonir, svo miklar væntingar, svo mikil og yfirþirmandi örvænting, allt er þetta tengt þeim sem maður elskar,--börnin hvað mest og sætsárast.

HInn Hæsti Höfuðsmiður Himins og Jarðar veri með ykkur í baráttunni og verði Hans vilji.

Baráttan er erfið og tekur mjög á ykkur öll.  Bæði vonin, vonbrigðin og væntingarnar.  AUðvitað er allt sem maður hugsar lítilmótlegt við mæliker upplifunarinnar, sem þið þurfið nú að ganga í gegnum.

Þakkir fyrir að fá að lesa færslurnar þínar.  Kveðjur til þín og þinna.

Megi þrek og þor fara í endurnýjun lífdaga í blessaðri sveitinni.

Miðbæjaríhaldið 

Bjarni Kjartansson, 5.6.2007 kl. 13:52

19 identicon

Guð gefi þér styrk og haldi utan um ykkur. Ekki gleyma að biðja um hjálp ef þú þarft á henni að halda. Við erum mörg sem getum aðstoðað þig. Ekki draga það að biðja um aðstoð Áslaug mín.

betu kveðjur,

Jónína Ben

Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 17:22

20 identicon

Það er rétt hjá ykkur að fara í sveitina og reyna að slaka á.  Ekki veitir af að hlaða batteríin.  Eigiði góðar stundir í sveitinni og guð veri með ykkur í þessari baráttu.  Það eru margir sem hafa ykkur í bænunum sínum.

Sigga (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 18:32

21 identicon

Kossar og knús til ykkar allra!
Frétti að afmælið hefði verið frábært, fúlt að missa af því!! 

Hafið það gott í sveitinni.

Kv. Oddný  

Oddný (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 23:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband