Leita í fréttum mbl.is

Takk Ása :)

 

Hér er eitt ljóð eftir hana Ásu vinkonu hennar mömmu um hana Þuríði mína, stórt knús til þín Ása mín.  En hvar er textinn sem þú söngst í afmælinu mínu?Wink 

Þegar þú komst í heiminn dóttir góð
með dökka hárið svo falleg og rjóð
gleðin var svo mikil við þessa sýn
og við ætlum lengi að fá að njóta þín

En svo kom höggið sem enginn vil
hvað get ég? hvaða kraftaverk er til
við ætlum að taka einn dag í einu
og vera við guð í sambandi beinu

Gleðin sem skín úr augunum þínum
fær mig til að gleyma áhyggjum mínum
ég ætla að brosa og græt ekki lengur
því milli okkar er órjúfandi strengur.

Góða helgi allir!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá hvað þetta er fallegt ljóð Ása

Oddný sys (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 15:39

2 Smámynd: Þórunn Eva

vávává ég sá það örugglega í commentunum er þaggi ???

þetta er eitt það fallegasta sem ég hef lesið :)

hafðu það ógó gott um helgina svkís :) og já þið öll hehe :)

gaman að heyra í þér í morgun  þó þú hafir átt erfitt með að tala hehe :)

koss og knús

Þórunn Eva , 15.6.2007 kl. 15:49

3 identicon

Mjög fallegt ljóð!! Mikil tilfinning á bak við það :)

Katrin Ösp og Ólöf Alda (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 17:11

4 identicon

Þetta er bara æðislegt ljóð fyrir æðislegt stelpa Ö)Eigðu frábært helgi og skemmta ykkar vel 17 júní ef hægt er eða ef það má ,ó ég veit ekki hvernig á að orða það ég meina bara hafið það bara ofsalega gott kæra fjölskylda

Kær kveðja Dee

Dolores Mary (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 17:20

5 Smámynd: Bryndís Helgadóttir

Fallegt - gangi ykkur vel!

Bryndís Helgadóttir, 15.6.2007 kl. 18:15

6 identicon

Þetta ljóð er frábært, en ég vil bara óska ykkur alls hins besta og mun biðja fyrir ykkur og að sjálfsögðu Þuríði Örnu líka í bænum mínum. Verið hvort öðru góð í ykkar raunum. Ókunnug

Ókunnug (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 19:26

7 identicon

Sæl Áslaug

Þetta er fallegt og einlægt ljóð. Það er ekki nema von að svona falleg og góð stelpa fái ortar um sig fallegar vísur. Bið Guð að blessa ykkur öll. Góða helgi. Fríða

Fríða (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 19:46

8 identicon

Mikið ofboðslega er þetta fallegt ljóð.  Maður sér fyrir sér þessa undurfögru snót sem prýðir síðuna þína. Ég vona að þið eigið góða þjóðhátíðarhelgi öll saman.  

Hildur Sif 

Hildur Sif (IP-tala skráð) 16.6.2007 kl. 15:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband