Leita í fréttum mbl.is

Ágætar fréttir en þið vitið að ágætt er best

Vitiði það ég hef ekki nennt að skrifa hérna fyrr, ég hef opnað tölvuna og fengið bara nett ógeð af heimasíðunni minni og hafði enga löngun til að skrifa.  Ég hef reyndar kanski ekki mikla löngun núna en fólk heldur alltaf ef ég skrifa ekki í einhverntíma að það sé eitthvað að þannig mér fannst ég eiginlega bara þurfa og kanski langaði mig líka að segja ykkur ágætar fréttir en ekki bara einhver leiðindi og væl einsog síðustu vikur hafa verið og eru kanski enn.  Aaaaarghhh!!

Við áttum góða helgi, á fimmtudagskvöldið fékk ég e-mail að sumarbústaðurinn sem ég var á biðlista eftir losnaði þannig við gátum skellt okkur í sumarbústað um helgina á Minni Borgir, ekki leiðinlegt!!  Mamma og pabbi voru með okkur alla helgina og svo komu tengdó seinni nóttina þannig það var mikið stuð, það var ofsalega notaleg og róleg helgi.  Tengdó tóku svo Þuríði mína með sér uppá Skaga þannig við hin ákváðum að skella okkur í fjölskyldugarðinn á Stuðmenn og það var stuð.  Svo var það Simpson í bíó í gær, Theodór fór á sína fyrstu bíómynd en entist bara í korter eheh þannig við mæðgurnar urðum á endanum einar en feðgarnir fóru heim.  Oh mæ hvað þeim fannst gaman að þessari mynd og skelltu uppúr nokkru sinnum og Þuríður var eitt bros alla myndina enda er Simpson mikið uppáhald hjá minni.

Annars kláraði Þuríður mín geislameðferðina sína á föstudaginn og mikill fögnuður í gangi eða aðallega hjá mér, ekki það skemmtilegasta að fara þangað hvað þá að horfa á alla hina sem eru að ganga í gegnum þetta líka.  Hún er strax farin að missa hárið á hliðunum en hún missir það "bara" á hliðunum við þetta, æjhi hún er komin með svo fallega þykkt hár.  Jú ég veit að það á að koma aftur en það er ekki víst (mikil hætta á því) og já ég veit að það er nú ekki það versta en samt leiðinlegt.

Svo fengum við þær ágætu fréttir og þið vitið að ágætt er best en Þuríður mín mun væntanlega fara í aðra meðferð eftir sirka mánuð well það kemur í ljós vonandi í þessari viku.  En það er ein ný krabbameinshjúkka byrjuð á barnadeildinni og hún er að koma frá NY og hún er í mailsambandi við þá úti með eina meðferð fyrir hana í huga sem er æðislegt.  Það verður þá töflumeðferð og það eru ekki innlagnir við þá meðferð sem er æðislegt og við getum séð um þessa meðferð "sjálf" þannig séð.  Jeij ég var líka hriklega glöð þegar mér var sagt þetta en þetta er nú ekki 100% komið á hreint en svona 90%, þessi meðferð gerir annaðhvort kraftaverk eða ekki neitt þannig það eru ekki neinu að tapa.  Núna er bara að krossa fingur, vona að hún fái að fara í þessa meðferð og hún muni gera kraftaverk.

Það eru engir dagar eins hjá Þuríði, einn daginn hefur hún varla orku í að labba en svo hinn daginn er einsog henni hefði verið gefið eitthvað spítt í rassgatið ehehe.  T.d. í morgun þurftum við ekki að vekja hana, var vöknuð kl sjö og farin í leikskólan kl átta en svo bara spurning hvort hún muni hafa orku í að vera mikið á leikskólanum en það munum við bara meta með þeim á leikskólanum.

Í lokin mun ég láta fylgja myndir af okkur Skara með Oddnýju og theodóri frá fjölskyldugarðinum í fyrrakvöld og þriðja myndin er af Þuríði í berjamó við Minni Borgir.

P8055472

P8055550

P8045369


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með þetta allt. Vonum svo sannarlega að lyfið góða virki, treystum alveg á það. Þið eruð hryllilega falleg fjölskyldan á myndunum.

Það er alveg rétt að ef þú skrifar ekki þá hef ég áhyggjur og örugglega allir sem eru að fylgjast með ykkur.

Þá er alveg nóg fyrir okkar stúlku að setja inn smá komment, td "allt óbreytt" eða "ekkert slæmt í gangi nema leti eða óstuð" og þá eru allir ánægðir og ekki með óþarfa áhyggjur.

Kærleikskveðja til ykkar allra.

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 7.8.2007 kl. 09:49

2 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Mikið eru þær líkar, Þuríður Arna og Oddný!! Þær gætu verið tvíburar! Og makalaust hvað þú lítur alltaf vel út, svona frískleg og sæt. Þú hlýtur að hafa svona innbyggt bjútíeliment. Sumar konur hafa það. Alveg sama hvað á gengur eða í hverju þær eru, alltaf líta þær jafn vel út!  Ég þarf að fá mér svona eliment. Já og strákarnir þínir eru voðalega myndarlegir, Skari og litli karlinn.

Mikið er það gleðilegt að reyna eigi þessa meðferð Áslaug mín. Ég samgleðst þér innilega! Þetta gefur svona ínnspýtingu í vonina hlýtur að vera. Bestu kveðjur af Vestfjörðum.

Ylfa Mist Helgadóttir, 7.8.2007 kl. 10:21

3 Smámynd: Þórunn Eva

knús og koss.... :)

vonandi að fréttirnar verði góðar í vikunni... :)

Þórunn Eva , 7.8.2007 kl. 10:43

4 identicon

Ja ja elsku fjölskylda,

                                  þetta er nú aldeilis góða fréttir og innilega til hamingju með þetta og til lukku, kraftaverk getur gerst svo við skulum bara halda áfram að biðja og biðja og kveikja á kerti fyrir gullmólanna og eins og staðinn er í dag þetta er allt á uppleið og bara æðislegt að það er til meðferð eftir geislumeðferðinna.

Það er frábært að þið áttu góðan frí það er alveg nauðsynlegt.

Gangið ykkar bara allt í haginn og eigðu góðan dag í dag og alltaf

Guð blessuð ykkar og megi hann veita ykkar stóran kraftaverk sem fyrst,

Kveðja Dee

Dee (IP-tala skráð) 7.8.2007 kl. 13:54

5 identicon

Til lukku með GÓÐU fréttirnar. Er bara að láta vita af mér fylgist alltaf með ykkur og þið eruð alltaf í bænum mínum.

Kveðja Elsie

Elsie (IP-tala skráð) 7.8.2007 kl. 17:25

6 identicon

Hæ þið fallega og bjartsýna fjölskylda.   Mikið er gaman að þið fenguð loks góðar fréttir : )  til hamingju með það.  Yndislegt líka að heyra af notalegri og skemmtilegri helgi að baki.  Sendi ykkur góðar hugsanir og ljós á kertasíðunni.  Bestu kveðjur,  Stella A.

Stella A. (IP-tala skráð) 7.8.2007 kl. 21:49

7 identicon

Sæl frábæra fjölskylda.

Mikið er stórkostlegt að heyra þessi tíðindi og við bíðum öll spennt að heyra af þessu undralyfi. Það sést á myndunum að þið hafið átt góða helgi. Hún Þuríður er stórkostleg stelpa og að hafa gerst dvo mörg kraftavek fram að þessu og því skyldi þeim linna. Ég bið Guð um góða verkun af lyfinu og að blessa ykkur öll. Fríða 

Fríða (IP-tala skráð) 8.8.2007 kl. 00:15

8 identicon

Æi hvað ég skil að þú þurfir stundum tölvu-bloggpásu...það er líka leyfilegt og ég er að átta mig á því að þetta er ekki skylda,en samt alltaf svo gott að heyra frá ykkur og fá fréttir af fallegustu hetjunni.Og gott að það eru góðar fréttir í gangi og ég krossa putta og tær að hún fái þessa meðferð og færi henni kraftaverkið sem við erum öll að biðja um og ég er sannfærð um að það tekst elskurnar..þið eruð æðisleg.Baráttukveðjur

Björk Andersen (IP-tala skráð) 8.8.2007 kl. 01:17

9 identicon

Mikið er ég glöð að sjá þessar fréttir - nú er bara að trúa því besta og skapa enn meiri jákvæðni í kringum sig. Þið eigið svo óendanlega mikið skilið að framundan verði jákvætt og að litla stelpan ykkar fái að vinna þessa baráttu með ykkur foreldrum sínum.  Ég sendi ykkur alla mína jákvæðu strauma

Berglind Elva (IP-tala skráð) 8.8.2007 kl. 01:38

10 Smámynd: Eva

En gott að frétta ég bið fyrir kraftaverki og sendi ykkur kærleiksljósið.

Eva , 9.8.2007 kl. 01:53

11 Smámynd: Helga Auðunsdóttir

Mig undrar ekki þó þér finnist þú ekki geta sest niður við tölvuna, mig undrar frekar hversu dugleg þú ert við að láta þig hafa að skrá þetta allt niður. Góður guð gefi ykkur styrk til að ganga í gegnum næstu þolraun, við biðjum fyrir ykkur.

Helga Auðunsdóttir, 9.8.2007 kl. 05:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband