Leita í fréttum mbl.is

Washington calling.....

Jæja þá erum við búin að fá fyrstu hringinguna frá Washington en það var víst ekki New York sem er nú aukaatriði, allavega þetta var góð hringing sem ég ætla kanski ekki að fara nánar útí fyrr en þetta er allt komið á hreint.  Allar myndir af höfði Þuríðar voru sendar út í gær þannig við bíðum eftir næstu hringingu (verður vonandi strax í næstu viku) og vonandi verður hún ennþá betri en einsog ég sagði þá vill ég ekki segja of mikið fyrr en þetta er allt saman komið á hreint, mig langar ekki að gefa neinum of miklar vonir eða sjálfri og vera kanski að skrifa eitthvað hérna sem verður svo kanski ekki.  En ég lofa samt að þetta var gott símtal allavega í áttina og vona að þau verði ennþá betri og við fáum bara góðar fréttir, well reyndar get ég ekki fengið þær fréttir að æxlið er orðið góðkynja og allt á bataleið það yrði ekki svo gott en við tökum eitt skref í einu og vonumst alltaf eftir kraftaverkinu "lækning".  Einsog hjúkkan okkar sagði við okkur í gær að sjálfsögðu væri bara best ef það væri hægt að hrista Þuríði mína þannig þetta myndi bara poppa út en svo auðvelt er þetta ekki þó glöð við vildum en við vitum samt að læknavísindin eru alltaf að fara frammá við sem er best í heimi þó þeir eru ekki farnir að finna lækningu eða kraftalyf við þessum krabba labba en það verður einhverntíman.  Vildi samt óska þess að það yrði í dag en ekki eftir 20 ár, bwaaaahhh!!  

En eitt er víst að læknarnir okkar hérna heima eru að reyna gera sitt allra besta til að reyna láta Þuríði okkar líða sem best og annað er ekki hægt að biðja um.  Við erum ofsalega heppin með læknateimið okkar þó svo að maður verður stundum pirruð og fúl útí þá og vildi óska þess að þeir hefðu svör við öllu en svo fullkomin erum við ekki og ekki einu sinni læknarnir sem við viljum að séu með svör við öllu.

Það er svo skrýtið með þetta orkuleysi hjá mér, ok kanski ekkert skrýtið en mér finnst svona smátt og smátt að það er verið að sjúga hana úr mér sko orkuna.  Ég vaknaði í morgun reyndar svaf ég mjög illa í nótt sem ég veit ekki afhverju og ég hafði mig varla frammúr því ég fann varla fyrir líkamanum, ég sit núna við tölvuna og finn varla fyrir puttunum þeir eru orðnir svo dofnir af orkuleysi.  Theodór minn situr reyndar hérna hjá mér (og horfir á Skoppu og Skrítlu sína eða gítlu einsog hann segir sjálfur eheh) og það er ofsalega gott að finna allavega fyrir honum en litli pungsi minn er lasinn í dag sem er væntanlega vegna 18 mánaða sprautunnar sem hann fékk fyrir viku.  Ég sit eiginlega stjörf hérna við tölvuna og sé varla hvað ég er að skrifa, damn hvað mig langar að sofa í sólarhring kanski ég leggi mig bara með Theodóri mínum á eftir og þá hef ég líka krafta í að fíflast í stelpunum þegar þær koma úr leikskólanum.  Jeij góð hugmynd!!

Þessir dagar hjá Þuríði minni eru svo skrýtnir en suma dagana hefur hún enga orku og labbar um íbúðina einsog einhver vofa en aðra daga er hún súper hress og lítur ekki út einsog hún sé eitthvað veik.  Ofsalega skrýtið!!  Gærdagurinn var góður hjá henni, Ása vinkona mömmu kom í gærkveldi og gaf okkur smá orku þar að segja mér og henni sem var ofsalega nice.  Knús til þín Ása mín.  Þuríður var ofsalega hress allan daginn og sofnaði ekki fyrr en hálftíu í gærkveldi sem er mjööööög seint á hennar mælikvarða.  Very nice!!

Svona í lokin langar mig að senda knús til Brynju og Elsu en þær voru að eignast stelpu og strák eða Elsa eignaðist litla mús fyrir þrem dögum og Brynja eignaðist lítinn pung í gær, bara gaman!!  En það eru endalausar óléttur í kringum mig næstu mánuði ég man ekki eftir öðru eins og ég ekki ólétt ehehe!!  Nokkrar í nóvember, ein í desember og tvær í janúar hvað er málið með ykkur stelpur ehe?

Eigið góða helgi kæru lesendur og verið góð við hvort annað.
Slauga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott að heyra að þið fengu hringingu frá Washington.Bið Guð að gefa litla gullmólan ykkar krafta verk.

Góða Helgi og guð vernda og geyma ykkar og gefa að þú fáir smá orku tilbaka.

Kær kveðja Dee

Dolores Mary (IP-tala skráð) 10.8.2007 kl. 14:08

2 Smámynd: Elsa Nielsen

Frábært að fá svona góða hringingu - vonandi gengur allt upp varðandi hana!!

Takk fyrir knúsið - músin er yndisleg ;) MEGA ORKUKNÚÚÚS tilbaka

Elsa Nielsen, 10.8.2007 kl. 15:28

3 identicon

hæ elskurnar ætlaði bara að kassta kverðju

Lára (IP-tala skráð) 10.8.2007 kl. 15:40

4 identicon

hæ sæta stelpa

Ég dáist að ykkur öllum þið eruð mestu hetjur sem til eru.....þú þekkir mig örugglega ekki mikið en ég er að vinna með Oddnýju systir þinni hún er svo mikil dúlla og þú ert rík að eiga hana..... knús og kremja til ykkar.............

rakel (IP-tala skráð) 10.8.2007 kl. 15:49

5 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

VÁ !  yndislegt ef það verða áfram góð símtöl og góðar fréttir elsku krakkar mínir.

Nú verðum við öll sem eitt að leggjast á bæn, senda ósk um að góðir hlutir gerist hjá Þuríði litlu okkar, kveikjum á kertum á síðunni hennar og heima. Þegar við sameinumst í bæn, getur allt gerst.  Hvað segið þið kl 22.00 í kvöld ?!

Guðrún Jóhannesdóttir, 10.8.2007 kl. 17:10

6 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Úff... nú fékk ég heldur betur spark í rassinn!! Ég er búin að vera í sjálfsvorkunarkasti í dag, þreytt og hef peningaáhyggjur og velti mér uppúr því sem ég get sjálf lagað ef ég bara druslast til þess!

Svo las ég bloggið þitt elsku Slauga mín og BÚMM!!! Fann bara hvernig sparkað var í rassgatið á mér!! Ég dauðskammast mín fyrir vesaldóminn og LOFA sjálfri mér því nú að hætta að velta mér uppúr smámunum!!!

Guð blessi þig og gefi þér orku.

Ylfa Mist Helgadóttir, 10.8.2007 kl. 21:03

7 identicon

Elsku Áslaug og þið öll...það er yndislegt ef þið eruð að fá einhverjar jákvæðar fréttir og ég vona það af öllu hjarta,ég bið guð á hverjum degi að gefa litlu hetjunni minni kraftaverk og takk elsku Áslaug fyrir hlýjar kveðjur og að hugsa til mín.*Vona að þið hafið átt dásamlega helgi í þessu fallega veðri og að krúttstelpunni líði vel..knús og kram

Björk töffari (IP-tala skráð) 12.8.2007 kl. 15:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband